Hreyfing - 01.06.1999, Side 4
10. Kvennahlaupið:
Til hamingj u konur!
Kvennahlaupið er í eðli sínu sterkur
og jákvæður viðburður. Vöxtur hlaups-
ins með hverju árinu segir meira en
nokkur orð.
Þann 19. júní n.k. hlaupa konur ís-
lands saman í 10. sinn og finnst þeim
sem þátt taka alltaf jafn gaman. Sam-
kenndin sem skapast á meðal kvenna
um hlaupið er einsdæmi og eru sam-
staðan og fjöldinn meginstyrkleikar
Kvennahlaupsins.
Með Kvennahlaupinu hefurverið lyft
grettistaki hvað varðar áhuga kvenna á
hreyfingu og betri lífsstíl. Þessu
grettistaki hafa konurnar sjálfar lyft,
því þær eru þátttakendurnir og þær
hvetja hver aðra. Þær standa saman.
Það gefur auga leið að stór hluti þeirra
kvenna sem tekur þátt í Kvennahlaup-
inu heldur áfram að hreyfa sig sér til
heilsubótar. Þar eru mæður og verð-
andi mæður að stunda íþróttir. Með
því hvetja þær sínar dætur til íþrótta-
iðkunar. Á nokkrum stöðum á landinu
er þátttakan orðin 100% og eru konur
jafnvel farnar að miða sitt tímatal við
Kvennahlaupið.
Þátttökufjöldinn í fyrsta Kvenna-
hlaupinu sem haldið var í Garðabæ og
á sjö öðrum stöðum þann 19. júní
1990 var um 3000. Á hverju ári hefur
verið fjölgun og á síðasta ári hlupu
22.900 konur. Gaman er að segja frá
því að samtals lögðu Kvennahlaups-
konur að baki um það bil 100 þúsund
kílómetra í síðasta hlaupi eða rúmlega
72 hringi kringum landið! Ekki á þó að
einblína á fjölgun í hverju hlaupi því ár-
angur er ótrúlegur. Rúmlega 15% ís-
lenskra kvenna tóku þátt í Kvenna-
hlaupinu á stðasta ári. Frekara mark-
mið er að leggja áherslu á áframhald-
Helga Guðmundsdóttir.
andi markvissa hreyfingu þeirra kvenna
sem taka árlega þátt, halda utan um
samkennd íslenskra kvenna sem er
dýrmæt. Og ekki stst að hvetja áfram
dætur okkar. Mæðgur sem vilja hvor
annarri vel fara saman í Kvenna-
hlaupið. Þetta á einnig við um vin-
konur.
Stærsta hlaupið verður sem fyrr í
Garðabæ. Einnig verður hlaupið í Mos-
fellsbæ og á 80 stöðum víðs vegar um
landið. Á hverjum stað eru tengiliðir, í
flestum tilfellum eru það konur. Þetta
eru valkyrjur íslands, áhugasamar og
duglegar, hvetjandi konur. Þetta sterka
Kvennahlaupstengiliðanet sem unnið er
með er lykillinn að góðri undirbúnings-
vinnu og vel heppnuðu Kvennahlaupi.
Aðgreining Kvennahlaupsins frá
öðrum hlaupum er mikil. Þar keppir
hver kona á sínum forsendum og þar
er engin tímataka. Sett eru mörg per-
sónuleg met og oft heyrist „þetta var
miklu auðveldara en í fyrra" og
hugsað: Ég er í betra formi en síðast!
Ég býð ykkur velkomnar í 10. Kvenna-
hlaupið.
Helga Guðmundsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Kvennahlaups ÍSÍ.
Konur!
Þið finnið hvergi meira
úrval af hlaupafatnaði
og hlaupaskóm.
Við bjóðum toppmerki
og flottar vörur og
tökum örugglega vel
á móti ykkur.
ÞlN FRÍSTUND -
OKKAR FAG
YINTER
Idsh'öfða 20 • 112 Reykjavík • sími 510 8020
ÍllBI
V/SA
49
Græ nn lífseðill
- gagnast þér allt lífið -
0
4