Hreyfing - 01.06.1999, Page 10
Kvennahlaup í
Garðabæ 19. júní
Fjölmennasti íþróttavidburd-
ur ársins
í tíunda sinn ætla konur að koma
saman og eiga samverustund í
Kvennahlaupinu.
Á tímamótum er vert að líta um öxl
og rifja upp upphaf Kvennahlaupsins.
ÍSÍ lagði til að á Íþróttahátíð 1990
væri meðal annars horft til aukinnar
þátttöku kvenna í líkamsrækt
Fyrsta Kvennahlaupið var haldið í
Garðabæ fyrir tilstuðlan ÍSf og tókst
það í alla staði mjög vel.
Megin markmið hlaupsins þá og nú
er að hvetja allar konur ungar sem eldri
til að vera með.
Allar geta verið með, ganga, hlaup
eða skokk allt eftir getu hvers þátttak-
anda. Með aðeins eitt að megin mark-
miði, að taka þátt í Kvennahlaupinu og
Viðurkenning til
þeirra sem hafa
tekið þátt frá
upphafi
í tílefni þess að Kvennahlaup ÍSÍ
er nú haldið í 10. skipti ætla
samtökin ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA
að heiðra þær konur sem tekið
hafa þátt í hlaupinu frá upp-
hafi.
Þær konur sem hlaupið hafa öll
tíu skiptin þurfa að tilkynna
það í síma 553 8910 eða 581
3377 á skrifstofutíma og fá þá
sent viðurkenningarskjal.
með því að hvetja til aukinnar hreyf-
ingar og hollra lífshátta í góðum fé-
lagsskap.
í Kvennahlaupinu eru allir þátttak-
endur jafnir, vegalengdin skiptir ekki
máli, tímalengdin ekki heldur því í
markinu verða allir sigurvegarar.
Óhætt er að fullyrða að mikilvægi
Kvennahlaupsins hefur fyrir löngu
sannað gildi sitt. Óteljandi göngu-,
skokk- og útvistarhópar eiga einmitt
upphaf sitt að rekja til samverustunda í
Kvennahlaupinu.
I\lýr lífsstíll
Með aukinni atvinnuþátttöku kvenna
hafa orðið miklar beytingar á hlutverki
kvenna í samfélagi nútímans. Konur
sinntu áður umönnunarhlutverkinu að
mestu leiti í hlutverki móður, dóttur,
ömmu og frænku. En með aukinni at-
vinnuþátttöku hefur orðið mikil breyt-
ing á. Lengd viðvera barna í skóla, lengri
leikskólavist, og síðast en ekki síst aukin
menntun, hefur stuðlað að því að flest-
ar konur eru virkar í atvinnulífinu í dag.
Eigi að síður hefur umönnunarhlut-
verkið verið áfram í verkahring kvenna
og störf á hinum almenna vinnumark-
aði hafa bæst við fyrri störf. Ljóst er að
til þess að þetta takist verða til æði
margar ofurkonur. Hætt er við að
heilsufar kvenna verði undir í þessum
átökum öllum.
Ástæða er til að hvetja konur til að
velja réttari lífsstíl, reyna að finna stund
til líkamsræktar og útivistar.
Veljum líf sem veitir vellíðan og jafn-
vægi í samskiptum við umhverfið.
Þannig má öðlast heilbrigði í lífs-
gæðum sem er eftirsóknarvert.
Laufey Jóhannsdóttir
Kvennahlaup ■ Cardabæ
19.júni
Undirbúningur hátíðarinnar 19. júní
stendur sem hæst. Allt er gert til þess að
konur eigi saman góða stund á þessum
merkisdegi okkar íslenskra kvenna og
að undirbúningur og umgjörð hlaupsins
verði með sem bestum hætti.
Hreyfing er öllum holl, ganga hlaup
og skokk, allt með þeim hraða sem
hver þátttakandi kýs. í ár verður mögu-
leiki að bæta við vegna þess að nú
verður í fyrsta sinn boðið upp á 10 km
vegalengd, auk hinna hefðbundnu
leiða, 2 km, 5 km, 7 km.
í Garðabæ hefur Kvennahlaupið
skapað sér fastan sess og mun fara
fram samkvæmt venju á svæðinu við
Garðaskóla við Vífilsstaðaveg.
Kæru konur; Verið velkomnar í
Garðabæ 19. júní. Hreyfing og útivist er
holl, njótum saman samverustundar-
innar, hlúum að nýjum lífsstíl og stuðlum
þannig að betra lífi og auknu heilbrigði.
Njótum Kvennahlaupsins - Vel-
komnar í Kvennahlaupið í Garðabæ
Laufey Jóhannsdóttir - formaður
undirbúningsnefndar
um framkvæmd Kvennahlaups í
Garðabæ
10