Hreyfing - 01.06.1999, Qupperneq 11

Hreyfing - 01.06.1999, Qupperneq 11
Makamissir Inngangur Dauðinn er hluti af lífinu. Engu að síður eigum við flest erfitt með að tala um dauðann. Það sem hann hefur í för með sér fyrir aðstandendur er heldur ekki hlutur sem við ræðum um eða gefum gaum að, nema þegar við verðum að takast á við þá staðreynd að einhver okkur nákominn deyr. Þess vegna veit fólk almennt fremur fátt um hvað gera skal og hvað er til ráða þegar lífsgöngu ástvinar er lokið. Ung kona stóð frammi fyrir líki mannsins síns, sem andaðist í heimahúsi og sagði sorgmædd og ráðþrota við börnin sín: hvað á ég að gera nú? Hún hafði aldrei séð lík fyrr og aldrei komið nálægt undirbúningi jarðarfarar né kynnst þeim hlutum sem gera þarf þegar manneskja missir maka sinn. Það er erfitt að takast á við sorgina við makamissinn og jafnframt að reyna að vera börnum sínum til stuðnings og huggunar. Þess vegna er hjálp að vita nokkurn veginn hvað gera skal, þegar svo er komið. Auður Matthiasdóttir, félagsráðgjafi Hvað skal gera? Á íslandi deyja árlega 1500 - 2000 manneskjur, konur, karlmenn og börn. Nákvæm tala er fyrir hendi frá Hag- stofu íslands fyrir árið 1994, en það ár dóu alls 1717 einstaklingar og þar af 276 á einkaheimilum. Þegar andlátið ber að í heimahúsi skal kalla til héraðslækni og lögreglu, ef ekki hefur verið læknir í sambandi við heimilið, sem annast hefur hinn látna. Hafa þarf samband við útfararþjónustu til að sjá um flutning líksins. Læknir gefur út dánarvottorð. Prestur þarf að fá það í hendur fyrir útförina og sendir hann það síðan til Hagstofu íslands. Hluti dánarvottorðsins fer til skiptaráð- anda og þurfa aðstandendur að sjá um það. Ef aðstandendur þurfa á sérstöku dánarvottorði að halda vegna bóta eða trygginga þá gefur prestur það út. Sækja þarf um setu í óskiptu búi hjá skiptaráðanda, sé þess óskað. Þegar manneskja deyr á sjúkrahúsi getur starfsfólk þar veitt aðstand- endum upplýsingar varðandi næstu skref í ferlinu. Aðstandendur óska í vaxandi mæli eftir kveðjustund við dánarbeð, segir séra Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur í bók sinni Von. Hann bendir á þann kost að syrgjendur fá Nýjar Pampers Þœgilegar eins og bómull, þurrnr eins og Pampers. Fyrstu Pampers bleiurnar, sem veita barninuþínu sömu þœgilegu tilfinninguna og bómullarfatnaður. Pampers Cottonlike eru einstaklega mjúkar, ekki ólíkt uppáhalds bómullarflík barnsins þíns. Þær hleypafersku lofti í gegn um sig að húð barnsins. Flugsaðu þér hversu miklu betur barninu þínu líður með nýju Pampers Cottonlike. Húð barnsins þíns er viðkvœm og þarfnast stöðugrar umönnunar og verndunar, ekki síður en þœginda. IPampers Cottonlike eru enn rendur af „Lotion Care“ mildum húðlegi, sem myndar verndandi lag og stuðlar að því að húð barnsins haldist mjúk og slétt. Pampers kjarninn er jafn þurr og áður og á sinn þátt í að halda húð barnsins þíns heilbrigðri. Mjúkar eins og bómull Þurrar eins og Pampers

x

Hreyfing

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hreyfing
https://timarit.is/publication/1456

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.