Hreyfing - 01.06.1999, Side 14
Bein eru idandi af lífi
Tæpur þriðjungur táningsstúlkna fær
innan við ráðlagðan dagskammt af kalki.
Sama gildir um nær fjórðung kvenna við
tíðahvörf. Að mínu mati þarf að bæta
þetta ástand. Barnshafandi konum er
einnig hætt við kalkskorti á meðgöngu.
Gangi á náttúrulegan kalkforða líkamans
geta afleiðingarnar verið beinþynning.
Bein eru í raun iðandi af lífi. í þeim á sér
stað stöðugt niðurbrot og endurbygging
á beinvefnum. Við beinþynningu dregur
hins vegar úr endurbyggingunni. Þegar
sjúkdómurinn hefur grafið um sig verða
beinin stökk og geta brotnað við minnsta
átak. Hryggjarliðir falla auðveldlega
saman og líkaminn verður hokinn og
krepptur. Lærlegg, mjaðmarbeini og
beinum í upp- og framhandlegg stafar
sérstök hætta af beinþynningu.
Árlega verða fleiri en 1500 beinbrot
vegna beinþynningar hér á landi en konur
eru í mun meiri hættu en karlar. 80 pró-
sent af sjúklingum eru konur og þá sér-
staklega um og eftir tíðahvörf. í Ijósi þessa
á boðskapur þessarar greinar fullt erindi til
ykkar sem þreytið þetta hlaup.
Mjólkurvörur lausnin
í baráttunni við beinþynningu er
sterkasta vopnið að halda kalkbúskap lík-
amans í góðu lagi. Að jafnaði nýtir líkam-
inn aðeins þriðjung af því kalki sem hann
fær. Rannsóknir sýna þó að nýting kalks
úr mjólk og mjólkumat er mun betri en
úr öðrum fæðutegundum. 70 prósent af
öllu því kalki sem líkaminn þarfnast
kemur úr margvíslegum mjólkurvörum.
Kalk er meginburðarefni líkamans enda
er það aðstoð bæði beina og tanna.
Við fæðumst yfirleitt með nægilegt kalk
í Itkamanum en beinmassinn í heilbrigðum
einstaklingi er að myndast fram undir þrí-
tugt. Lengi býr að fyrstu gerð og því er mik-
ilvægt að ná sem mestum beinmassa fram
að þeim tíma. Því eru það skilaboð mín til
kvenna í Ijósi þessara mikilvægu stað-
reynda að ungar konur og reyndar konur á
öllum aldri auki kalkforða sinn með
mjólkurneyslu til að fyrirbyggja vandamál
sem erfitt verður að leysa í framtíðinni.
Faraldur 21. aldarinnar
Beinþynning og beínbrot hafa verið köll-
uð faraldur 21. aldarinnar líkt og
Ólafur Ólafsson, form. Beinverndar
kransæðasjúkdómar 20. aldarinnar. Því
hyggst Beinvernd leggja í mikla herferð í
samstarfi við mjólkuriðnaðinn. Þar verður
bent á orsakir og afleiðingar beinþynn-
ingar en markmiðið er ekki síður að
benda á hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir
eru mögulegar. Það er því með ánægju
sem ég segi við ykkur sem takið þátt í
Kvennahlaupinu að regluleg hreyfíng er
góð forvörn gegn beinþynningu. Hún er
hins vegar einungis fyrsta skrefið því
neysla léttra mjólkurvara, osts og græn-
metis er ekki síður mikilvæg.
Ólafur Ólafsson, form. Beinverndar
VINTERSPORT
ÞÍN FRÍSTUND - OKKAR FAG
Gestabók-Myndaalbúm
Hlaupsins 1999
Nú geta Kvennahlaupskonur skráð
sig í gestabók hlaupsins á Netinu.
Sjóvá Almennar tryggingar hf.,
aðalstyrktaraðilar hlaupsins, munu
sjá um gestabókina. Netfangið er:
www.sjal.is. Þar verður einnig hægt
að sjá myndir úr hlaupinu. Á
þennan hátt verður til mikilvæg
heimild um Kvennahlaup ÍSÍ.
Með íþróttakveðju
íþróttir fyrir alla t Sjóvá-Almennar
tryggingar hf.
Þessi fyrirtæki vita að kona sem tekur fyrsta skrefið kemst alla leið
ÍÞRÓTTIR FYRIR ALLA þakkar þeim hvatninguna
Höfuðborgarsvæðið
Hárgreiðslustofan Kultura Glæsibæ
Andrómeta, hárgreiðslust. Iðnbúð 4
Grænt og gómsætt, Tæknigarði
v/Dunhaga
Stórar Stelpur, Hverfisgötu 105
Vogue, Stórhöfða 15
Reykjavikurborg
Kópavogskaupstaður
G.H. Heildverslun, Garðatorgi 3
Bílaryðvörn Þórðar, Smiðshöfða 1
KPMG, Vegmúla 3
Hreyfing, Faxafeni 14
Aco, Skipholti 17
Vesturland
Sparisjóður Mýrarsýslu
Sundhöll Isafjarðar
Haraldur Böðvarsson
Austurland
Albert frændi, hársnyrti- og sólbaðs-
stofa, Búðavegi 49, Fáskrúðsfjörður
Suðurnes
Iðnsveinafélag Suðurnesja
Hitaveita Suðurnesja
Sandgerðisbær
Reykjanesbær
Fiskanes Grindavík
Vatnsleysustrandarhreppur
Verslunarmannafél. Suðurnesja
Norðurland
Kaupfélag Skagfirðinga
Þórshafnarhreppur
Akureyrarbær
Siglufjarðarbær
Ólafsfjarðarbær
Akoplastos, Akureyri
Suðurland
Vestmannaeyjabær
Ölfushreppur
@
14