Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.04.1986, Qupperneq 2

Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.04.1986, Qupperneq 2
FRÉTTABRÉF / / ISI Útgefandi ÍSl, ritstjóri og ábyrgðarmaður: Valgarð S. Halldórsson. Skrifstofa ISÍ, íþróttamiðstöðinni í Laugardal, sími 83377. HVERS ER AÐ VÆNTA Föstudagsins 18. apríl 1986 mun væntanlega verða minnst sem sögulegs dags í íþróttasögunni. Þá voru samþykkt á Alþingi lög, sem heimila ÍSÍ, UMFI og ÖBl, starfrækslu tálna- og/eða bókstafaget- rauna, öðru nafni Lotto. Undirbúningur að Lotto á sér langan aðdrag- anda, sem ekki eru tök á að rekja hér. Ýmsar vangaveltur hafa verið uppi um, hvers vegna íþróttahreyfingin hafi ekki í heil 14 ár nýtt sér heimild í lögum til að stofna og starfrækja þetta vinsæla happdrætti, sem alls staðar þar sem það hefur tekið til starfa, hefur gefið hlutaðeigandi góðan arð. Svörin hafa verið á ýmsa vegu og sýnist sitt hverjum. En eins og málum er nú komið tjáir ekki að hugsa um liðna tíð, heldur að hugsa til framtíðarinnar og þeirra möguleika sem kunna að vera á bak við fyrrgreinda lagasetningu. Fyrir málum skipaðist svo, að um samstarf við aðra aðila varð að ræða um Lottorekstur, mun víst engum dyljast að „þrenningin": íþróttasamband Islands, Ungmennafélag Islands og Öryrkja- bandalag íslands, séu ákjósanlegur vettvangur til að annast þennan rekstur og sameiginlega höfði þau til verulega stórs hluta lands- manna, er beri til þeirra hlýhug og vilji efla og styðja starfsemi allra samtakanna eftir föngum. Að sjálfsögðu mun Lottorekstur eins og allur annar rekstur byggj- ast á markaðslögmálum og vinningsvon þeirra sem taka þátt í happdrættinu. Hitt er eigi að síður staðreynd, að fólk almennt hefur misjafnar taugar, ef svo má segja, til hinna ýmsu menningar og framfaramála. Og enginn vafi er á, að íþrótta- og ungmennafé- lagshreyfingin, er láta sig svo miklu varða heill og hamingju fólks á öllum aldri víðsvegar um landið, á afar sterkan hljómgrunn meðal fólksins í landinu. Málefni öryrkja eru þess eðlis, að allir vilja Ijá lið málefnum þeirra sem eiga erfitt uppdráttar vegna líkamlegrar eða andlegar vanheilsu. Þegar þannig samtök þeirra sem eru hraustir og vel á sig komnir og samtök hinna sem minna mega sín, snúa bökum saman, hefur myndast samstarfsvettvangur sem vekja mun verulega athygli og eiga sinn þátt í góðum árangri Lottostarfseminnar. En hvers er að vænta? Hvað er hér um miklar tekjur að ræða fyrir þessi samtök, sem alltaf vantar fjármagn til starfsemi sinnar? Því verður ekki svarað fyrirfram. Reynslan ein sker þar úr og veldur hver á heldur eins og svo oft áður. Ef hinsvegar tekin eru mið af reynslu annarra, er ástæða til að vera bjartsýnn. Nýjasta landið sem hafið hefur Lottostarfsemi er Noregur. Sam- kvæmt upplýsingum þaðan, var sala Lottoseðla fyrstu vikuna 15.0 milljónir norskra króna eða u. þ. b. 87 millj. ísl. króna. sé þetta staðfært til okkar eigin lands, miðað við fólksfjölda, jafngildir það um 4,4 millj. króna vikusölu og þá í vinninga til þátttakenda um 2.0 millj. króna. Enda þótt hér sé um einfaldan samanburð að ræða, er ástæða til að taka nokkurt mið af því sem annars staðar gerist, því reynslan sýnir, að þróunin hefur orðið mjög svipuð, alls staðar þar sem Lottorekstur hefur hafist. Það er því fyllsta ástæða til að fagna þeim áfanga sem þegar hefur náðst og óska framkvæmdaraðilum allra heilla og farsældar í því mikla verkefni sem framundan er. S.M. Aðalfundur Ólympíunefndar íslands Aðalfundur Ólympíunefndar Is- lands var haldinn 19. mars s. I. í húsakynnum ÍSÍ í Laugardal. Formaður Ólympíunefndarinnar, Gísli Halldórsson, setti fundinn og stjórnaði honum. Hann minnt- ist hinnar frábæru frammistöðu handknattleiksmanna okkar á Heimsmeistaramótinu í Sviss. Samkvæmt lögum Ólympíu- nefndar fer fulltrúakjör og kosn- ing í framkvæmdanefnd aðeins fram 4ra hvert ár eða á fyrsta fundi nýburjaðs Ólympíutímabils. Á fundinum var samþykkt að taka þátt í Ólympíuleikunum 1988; annarsvegar í sum- arleikunum, sem fara fram í Seoul í S-Kóreu frá 17. sept. til 2. október 1988 og eins í vetrar- leikunum, sem verða í Calgary, Kanada í ársbyrjun það ár eða frá 13. til 28. febrúar. Þá var samþykkt formlega að taka þátt í handknattleik á Ól- ympíuleikunum í Seoul, en borist hefur staðfesting H.S.Í á því að nýta áunninn rétt til þátttöku í handknattleikskeppni Ólympíu- leikanna 1988. Þá var samþykkt að veita þjálf- unarstyrki á árinu 1986 til eftirfar- andi sérsambanda: Siglingasamband íslands Judosamband íslands Frjálsíþr.samband íslands Sundsamband íslands Skíðasamband Islands Handknattl.samband íslands Þá var samþykkt að mynda sérstakan sjóð - Ólympíusjóð - sem hafi þann tilgang að fjár- magna ferða- og dvalarkostnað þátttakenda, sem Ólympíunefnd íslands kann að velja vegna þátt- töku á Ólympíuleikunum í fram- tíðinni. 2

x

Fréttabréf Íþróttasambands Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Íþróttasambands Íslands
https://timarit.is/publication/1458

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.