Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.04.1986, Qupperneq 4

Fréttabréf Íþróttasambands Íslands - 01.04.1986, Qupperneq 4
Heilbrigt líf — hagur allra Greinarkorn eftir Hermann Nielsson í tilefni af heilbrigðisári Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar og átaki heilbrigðisráð- uneytisins hér á landi gegn hreyf- ingarleysi, hefur trimmnefnd ÍSÍ ákveðið að ganga fram fyrir skjöldu og freista þess að sam- eina starf frjálsra félagasamtaka um að bjóða öllum lands- mönnum til hollrar hreyfingar dagana 20., 21., og 22. júní n. k. undir kjörorðunum „Heilbrigt líf - hagur allra“. Föstudagurinn 20. júní verður tileinkaður leikfimiiðkun og mun Fimleikasamband íslands ann- ast allan undirbúning á því sér- sviði. Laugardagurinn 21. júní verð- ur síðan dagur sundsins í umsjón Sundsambands Islands hvað varðar faglegan undirbúning. Sunnudagurinn 22. júní verður svo auðvitað dagur gönguferða, skokks og útivistar. Allir geta fengið sér hressandi gönguferð í tilefni dagsins eða tekið þátt í skokki ákveðna vegalengd eftir getu, leiðbeinendur munu verða til aðstoðar á vegum Frjáls- íþróttasambands íslands. Göngudagur fjölskyldunnar sem UMFÍ hefur gengist fyrir ár- lega fellur á þennan dag og ung- mennafélögin um land allt drífa fólk til fjalla. Þá munu Ferðafélag (slands og Útivist bjóða upp á fjölbreytt úrval skoðunarferða í nágrenni Reykjavíkur án endurgjalds. Engin skráning þátttakenda er fyrirhuguð, viðurkenningar verða til staðar fyrir þá sem vilja slíkt annars er þátttakan aðalatriðið og að fólk fái að kynnast þeim möguleikum sem fyrir hendi eru á Islandi til að trimma á ódýran en ánægjulegan hátt. Að allir Með þátttöku í „Hollri hreyfingu" verða allir sigurvegarar. verði með á einhvern hátt skiptir megin mali í einu atriði einhvern daganna, eða jafnvel með í öllu saman allt eftir óskum og vilja hvers og eins. Kynning, auglýsingar og fræðsluerindi verða undirbúin sameiginlega fyrir allt landið að vissu marki en æskilegt er að framkvæmdaraðilar á hverjum stað geri svolítið aukalega til að ýta við fólki, fá sem flesta með og kynna fyrirhugaða dagskrá á þann hátt sem best hentar á hverjum stað fyrir sig. Fjölmiðlar skipta miklu máli hvernig til tekst og verður reynt að fá þá til samstarfs um kynn- ingu og jafnvel þátttöku í fram- kvæmd trimmdaga ’86. Trimmnefndin hefur óskað eftir samstarfi við starfsmannafélög fyrirtækja og stofnana, félags- miðstöðvar, félög eldri borgara og sem flesta hópa og samtök í landinu um að hvetja sína félaga til þátttöku í „trimmdögunum '86. “ Sameiginlegt markmið okkar hlýtur að vera að ná til allra sem starfa vilja með í þeirri viðleitni að hvetja alla íslendinga til heilbrigðari lífsvenja og til að stunda holla hreyfingu í einhverri mynd á reglubundinn hátt. Mikilvægt er að öll íþrótta- og ungmennahreyfingin leggist á eitt um að gera trimmdagana '86 sem ánægjulegasta, árang- ursríka og eftirminnilega. Einstökum framkvæmdaraðil- um á hverjum stað eða hverfi er í sjálfsvald sett hvort uppákomur svo sem lúðrasveit, skemmti- atriði eða sýningar verði með til hátíðarbrigða en sjálfsagt er að bjóða forystufólki í þjóðmálum og bæjarmálum ásamt öðrum þekktum persónum og taka þátt og jafnvel ganga fram fyrir skjöldu. Tillaga samþykkt á sambands- stjórnarfundi 12. apríl sl. I tilefni af heilbrigðisári Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar og átaki heilbrigðisráð- uneytisins gegn hreyfingarleysi undir kjörorðunum „Heilbrigt líf - hagur allra, lýsir 10. sambandss- tjórnarfundur ÍSl yfir stuðningi við „Trimmdaga ’86“ og hvetur öll íþrótta- og ungmennafélög til myndarlegrar þátttöki. Jafnframt skorar fundurinn á alla landsmenn að nota tæki- færið og kynnast þeim mögu- leikum til hollrar hreyfingar sem í boði eru dagana 20., 21., og 22. júní n. k. Með baráttukveðju, f. h. trimmnefndar ÍSÍ Hermann Níelsson 4

x

Fréttabréf Íþróttasambands Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Íþróttasambands Íslands
https://timarit.is/publication/1458

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.