Iðnaður og tízka - 01.09.1933, Page 22
Tóll mannlegar óskir
Hér eru nefnd tólf atrioi, sem fólk ætti að athuga. Ef við viljum selja meiri vörur, verð-
um við að gefa þessum atriðum gaum.
Það breytir engu, hvaða vörur þú selur eða hvaða verk þú vinnur, þú ínunt alltaf verða
þess greinilega var, að þessi atriði snerta verkahring þinn.
j. auglýsingum þínum og tali við viðskiptavinina, átt þú að iýsa vörum þinum eða verki
út frá sjónarmiði kaupandans.
Kjörorðið er: Seldu fólkinu það, sem það þarfnast. Og það, sem það þarf, er að mestu
leyti falið i þessum óskum.
Oskir þessar eru:
1. Peningar.
öll endurbæting á skrifstofum og verksmiðjum
ásamt nýtísku búðarskreytingum, veita aukna
möguleika til þess að hagnast á rekstrínum.
Vörur, sem keyptar eru til að hagnast á þeim,
kosta kaupmann í rauninni ekki neitt, sökum
þess, að sala þcírra endurgreiðir kaupverðið
og meira til.
Sama má segja um auglýsingar. Ef þær eru
vel gerðar, auka þær mjög hagnaðinn.
3, Skemmtanir.
Þetta er líklegast almennasta óskin. Ef vörur
þínar eða starf auka gleði fólksins, eða ef þú
starfrækir skennntistað eða veitingahús, þá er
starf þitt á þvi sviði, sem eftirspurnin er mest.
Það er verzlun með skemmtanir, þegar fólkinu
er seldur aðgangur að leikhúsum eða bió-
sýningum, sömuleiðis sala á bókum, leikföng-
um, bilum. víni o. s. frv.
Þeir, sem verzla með skemmtanir, ættu að
auglýsa þær og tala um þær, þvi að fólkið er
reiðubú'ð að eyða fé fyrir aukna gleði.
2. Sparnaður.
Fæstir óska eftir að spara, en margir eru
neyddir til þess. Fæstir liafa getu ti) að kaupa
allt, sem þá langar til.
Þessvegna á kaupmaðurinn að selja eins ó-
dýrt og hann getur. Ve.rð hlutanna hefir það
niikið að segja, að 85°/o at' fólkinu verður
að haga kaupum sinum samkvæmt þvi. Ef
vefnaðarvörukaupmaður getur iækkað vöru-
verðið uin 20°/o, tvöfaldast salan.
5. Þægindi.
4. Tízkan.
Flestar stúlkur og margir karlmenn vilja fylgja
tiskunni eftir megni. Ef vörurnar eru eftir
nýjustu tízku, seljast þær með hærra vcrði
og.betur en ella.
Allur vinnusparnaður í heimilum, kemur und-
ir þennan lið. Allar þvottavélar, þvottahús,
ryksugur, rafboltaiyaf- og gaseldavélar, sem
sagt allt, sem léttir húsverkin.
Hægindastólar auka þægindí, sama má segja
um góða skó og föt, miðstöðvarhitun, bila
o. s. frv. Sérstaklega er eldra fólk reiðubúlð
til að borga mikið fyrir aukin þægindi.
6. Heilsa.
Fátt er tiðara umtalsefni en heilsan
og skemmtanir. Fólk segir „Góð heilsa er
aldrei of dýru verði keypt“. Það fer til
lækna, kaupir meðöl og t'erðast. Veikur mað-
ur er reiðubúinn til þess að gefa aleigu sina
fyrir heilsuna.