Iðnaður og tízka - 01.09.1933, Blaðsíða 24
Samkvæmisföf
EFNI: Næstum allt af svart, en má gjarna vera ofurlítið bláleitt, þanuig að það sýnist svart í ljósi. Hornin á kjólnum eiga að vera úr silki eða satin.
BUXUR: Með mjóum, röndóttum legging- um eða sléttuvn en breiðvtm.
VESTI: Úr livítu pique, moire eða silki, annaðhvort ein- eða tvíhneppt. Þægilegast er að nota bak- laust vesti.
SOKKAR: Svartir silki- eða cashmirsokkar, slóttir eða snúnir. Bezt er að framleisturinn sé úr ull.
FLIBBI: Harður, einfaldur með hvössum, útaflögðum hornum,
SKYRTA: Hvít, stífuð skyrta með einföld- um manchettum.
BINDl: Aðeins má nota hvítt pique- eða moire-bindi, ein- eða tvíbund- ið. Bindið á að vera breitt til endanna, en þó ekki eins breitt og flibbinn.
HATTUR: Silkihattur.
SKÓR: Reiinaðir lakkskór með eða án táhettu.
SKART: Brjósthnappar, manchettuhnapp- ar og vestistölur er oft haft af sömu gerð.