Vísbending - 19.01.2016, Side 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
19. janúar 2016
2. tölublað
34. árgangur
ISSN 1021-8483
Er yfirgangur Rússa
vandi íslendinga?
Viðskiptabann Rússlands á íslensk
fyrirtæki hefur mikil áhrif að
sögn útvegsmanna. Þannig hafa
tekjur dregist töluvert saman hjá um
120 starfsmönnum Síldarvinnslunnar
í Neskaupstað. „Vegna bannsins fæst
nú um 35% lægra verð fyrir síldar- og
makrílafurðir, en þokkalega hefur þó
gengið að finna markaði fyrir þessar af-
urðir“ að sögn Gunnþórs Ingvasonar,
framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar.
Þetta mál er ekki einfalt og rétt að skoða
það nánar.
Skýrsla um málið
Nýleg skýrsla fyrirtækisins Reykjavík
Economics um áhrif viðskiptaþvingana
Rússa gegn Islendingum á viðskipti þjóð-
anna hefur helst vakið athygli fyrir að
vera á ensku, en minna fjallað um efni
skýrslunnar og niðurstöður. I henni kem-
ur fram að nokkuð stór hluti útflutnings
íslendinga á sjávarafurðum fer til Rúss-
lands eða um 1% af VLF.
Þegar núvirt eru viðskipti til þriggja
ára er það niðurstaða skýrsluhöfundar að
tapið kunni að vera milli 3 og 18 millj-
arðar króna á þremur árum, en þó legg-
ur hann áherslu á að þetta sýni einungis
stærðargráðu af hugsanlegu tapi en sé
ekki spá.
I skýrslunni segir um forsendur í þýð-
ingu Vísbendingar. „Þegar gert er ráð fyrir
föstu verði verður að viðurkenna að hag-
kerfi Rússlands fæst við miklar áskoranir.
Samkvæmt nýlegu mati AGS minnkaði
VLF Rússlands um 3,8% árið 2015 og
búist við minni samdrætti upp á 0,6%
vegna mótvindar sem fylgja lægra olíu-
verði. Þess vegna er ljóst að kaupmáttur
hefur minnkað í Rússlandi og það hefur
áhrif á eftirspurn eftir vörum. Óljóst er
hvaða áhrif þetta myndi hafa á innflutn-
ing á uppsjávarfiskafurðum frá Islandi er
óljóst vegna þess að þær eru uppspretta af
ódýru prótíni.“
Höggið
Hér er skýrsluhöfundur kominn að
kjarna málsins. Forstjóri Síldarvinnslunn-
ar sagði: „Loðnan er sú fisktegund sem ég
tel að mesta höggið verði í vegna banns-
ins. Þá er ég að tala um bæði til lengri
og skemmri tíma.“ Rússar hafi keypt um
50% af hrognaframleiðslu fyrirtækisins á
síðasta ári. „Við sjáum því fram á umtals-
verðan samdrátt í sölunni sem leiðir af sér
aukið framboð á aðra markaði. Það leiðir
aftur til verulegrar verðlækkunar.“
Islendingar hafa undanfarin ár selt
makríl til Rússlands. Aðgerðir Rússa voru
tilkynntar 13. ágúst síðastliðinn. Tveimur
mánuðum fyrr, eða 12. júní 2015, sagði
í Morgunblaðinu-. „Undanfarin ár hefur
makrílvertíð byrjað er líður á júnímánuð,
en mikil óvissa er um sölu makríls á
næstu mánuðum. Hermann Stefánsson,
framkvæmdastjóri Iceland Pelagic, sem er
eitt stærsta fyrirtækið í útflutningi á mak-
ríl, segir að þó svo að markaður sé fyrir
hendi í Rússlandi sé efnahagsástandið
erfitt í landinu og rúblan hafi gefið eftir
undanfarið. Rússland hafi síðustu ár verið
langstærsti markaðurinn fyrir makríl frá
íslandi. Áður hefur komið fram í fréttum
að útflytjendur hafi lent í erfiðleikum á
síðasta ári í viðskiptum við Rússland
vegna gjaldþrota fyrirtækja þar í landi.
framh. d bls. 2
IDeilan um viðskipta-
þvinganir Rússa gegn
Islendingum er dæmigerð
um margt.
Hún snýst fyrst og fremst
um tilfinningar, en að litlu
leyti um staðreyndir eða
grundvallarsjónarmið.
3Hlutabréfamarkaðurinn
sveiflast upp og niður,
stundum í takt við útlönd,
stundum ekki.
4Heimskan er verri óvinur
en illskan, staðreyndum
þarf einfaldlega ekki að
trúa.
VÍSBENDING • 2 . T B L 2016 1