Vísbending


Vísbending - 19.01.2016, Blaðsíða 4

Vísbending - 19.01.2016, Blaðsíða 4
Aðrir sálmar lcyti og á þessari stundu ekki sérlega líklegt að tilkynnt verði um áföll þegar ársreikn- ingar þeirra verða birtir á næstu vikum. A grafinu sést að bandaríski markaður- inn féll í ágúst síðastliðnum álíka mikið og nú án þess að það virðist hafa valdið nema örlitlum hiksta á Islandi. Hvers vegna bregðast menn svona skart við alþjóðleg- um hreyfingum núna? Skýringin kann að vera sú að fjárfestar hafi talið að hin mikla hækkun í fyrra hafi verið leiðrétting eft- ir svartsýni áranna eftir hrun og nú eigi markaðurinn að fylgja alþjóðlegum hreyf- ingum eftir að hann er orðinn „réttur“. Miklar hækkanir á markaðinum í fyrra eru augljóslega ekki mögulegar mörg ár í röð, þó að hlegið hafi verið að þeim sem bentu á slíkt fyrir hrun. Fáir eru jafngleymnir og peningamenn og hjörðin hefur oft sérstak- an áhuga á því að láta sem allt sé í himna- lagi. Svo er líka hugsanlegt að fjárfestar á íslandi hafi flestir verið í sumarfríi í ágúst og ekki tekið eftir hreyfingum erlendis. Útlitið Á íslandi er aðalhættan fólgin í því að samkeppnishæfni fyrirtækja minnki vegna styrkingar krónunnar og mikilla launa- hækkana. Enn sem komið er eru verð- hækkanir tiltölulega litlar að meðaltali, en þess ber að geta að innfluttar vörur hafa lækkað um 3% á 12 mánuðum sem vegur gegn innlendum verðhækkunum í verð- bólgumælingum. Olíuverð heldur áfram að lækka og Islendingar njóta þess eins og flestar aðrar vestrænar þjóðir. Sú lækk- un ætti að virka hvetjandi á atvinnulífið. Satt að segja er vandséð að ytri aðstæður ógni íslensku atvinnulífi. Eins og margoft hefur verið bent á eru hættumerkin fyrst og fremst heimatilbúin. Ríkið hefur verið í fararbroddi í óraunsæjum launahækkun- um. Vinnudeilan í Straumsvík er komin í þann hnút að hugsanlegt er að verksmiðj- unni verði lokað, að því er virðist vegna þrjósku verkalýðsleiðtoga sem ekki vilja missa spón úr aski sínum. Ríkið mun væntanlega grynnka mikið á skuldum sínum þegar gert verður upp við slitabúin. Augljóst er þó að erfitt kann að reynast að hefja söluferli bankanna vegna mikillar tortryggni eftir einkavæð- inguna fyrri. Enn hafa ekki verið settar skorður við hve stóran eignarhlut hver og einn má eiga í bönkum. Um aldamótin sýndi Davíð Oddsson mikla framsýni þegar hann vildi setja skorður við því hve mikið einn aðili mætti eiga í banka, þó að hann sneri seinna við blaðinu, því að ein aðalástæða hrunsins var einmitt hve stóran hlut svonefndir kjölfestufjárfestar fengu, jafnframt því sem bankarnir urðu gerend- ur í stað þess að vera þjónustustofnanir. Sú hætta er fyrir hendi að bankarnir verði aft- ur ríki í ríkinu. Krónan er áfram óstöðug í eðli sínu. Fróðlegt var að heyra forsætisráðherra fjalla annars vegar um verðtryggðu krónuna sem stöðugasta gjaldmiðil í heimi og skömmu síðar leggja til að hún yrði afnumin í þjóðaratkvæðagreiðslu. Engin stefnumót- un um stöðugleika hefur komið frá for- sætisráðuneytinu meðan fjármálaráðherra hefur oft talað um nauðsyn þess að ísland nái jafnvægi til frambúðar í hagstjórn. Q Um heimskuna r Inýlegu riti Hins íslenska bókmennta- félags, Fangelsisbréfin eftir Dietrich Bonhoeffer, segir: „Heimskan er háska- legri óvinur hins góða heldur en illskan. Hinu illa má mótmæla, það verður auð- veldlega afhjúpað, ef í hart fer er hægt að stemma stigu við því með valdi, hið illa felur alltaf í sér sjálfseyðileggingu með því að það skilur ávallt eftir sig vanlíðun meðal fólks. Gegn heimskunni erum við varnarlaus. Gegn henni duga hvorki mótmæli né vald; ástæður skipta engu máli; staðreyndum, sem eru andstæðar eigin fordómum, þarf einfaldlega ekki að trúa — í slíkum tilvikum verður hinn heimski meira að segja gagnrýninn - og svo er hægt að víkja þeim til hliðar sem þýðingarlitlum undantekningartilvikum þegar þær eru óhjákvæmilegar. Þannig er hinn heimski, andstætt hinum illa, ávallt ánægður með sjálfan sig; já, hann er meira að segja hættulegur vegna þess að auðvelt er að vekja hann til árása. Þess vegna er mikilvægt að hafa meiri gát á sér í samskiptum við hinn heimska en hinn illa. Aldrei framar munum við reyna að sannfæra hinn heimska, það er tilgangs- laust og hættulegt. Til þess að vita hvernig við komumst hjá heimskunni verðum við að reyna að skilja eðli hennar. Svo mikið er víst að hún er ekki brestur í gáfnafari held- ur er hún mannlegur veikleikir. Það er til fólk sem skortir ekki gáfur en það er samt heimskt og svo er það sem skortir gáfur en fjarri því að vera heimskt. Þessa uppgötvun gerum við okkur til undrun- ar við ákveðnar aðstæður. Þá fær maður það síður á tilfinninguna að heimska sé meðfæddur ágalli heldur en að ákveðnar aðstæður geri fólk heimskt. ... Hinn heimski er oft þrjóskur, en það leynir samt ekki ósjálfstæði hans. Þvert á móti finnur maður það í samtali við hann að maður er ekki að tala við hann sjálfan, við hann persónulega, heldur við slagorð, yfirlýsingar o.s.frv. sem hafa náð valdi yfir honum. Honum er ekki sjálfrátt, hann er blindaður, í reynd hef- ur hann verið misnotaður, honum hef- ur verið misþyrmt. Þegar hinn heimski hefur þannig verið gerður að viljalausu verkfæri er hann einnig fær um að vinna illvirki og jafnframt ófær um að skynja hið illa.“ bj Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson Crgehindi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík. Sími: 512 7575. Netfang: benedikt@heimur.is. Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök. Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita án leyfis útgefanda. 4 VÍSBENDING • 2 , T B L . 2016

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.