Vísbending - 28.03.2016, Blaðsíða 3
VíSBENDING
--------------------V-------
Nýr spítali er hagkvæmur kostur
Heilbrigðismál eru afar erfiður
málaflokkur. Flestir segja í orði
kveðnu að þeir séu fylgjandi því
að aukið fjármagn fari til hans og á sama
tíma finnst mörgum ósmekklegt þegar
talað er um kostnaðinn sem honum
fylgir. Heilsa og mannslíf eigi ekki að
vera metin með köldum mælikvörðum
hagfræðinnar. Þegar þetta er ritað hafa
85 þúsund Islendingar skrifað und-
ir áskorun til Alþingis um að það verji
11% af vergri landsframleiðslu (VLF) til
heilbrigðismála. Samkvæmt forsendum
söfnunarinnar sjálfrar er þetta aukning
upp á um 2,3% af VLF eða nálægt 50
milljörðum króna árlega. Ef ekki er gert
ráð fyrir auknum sköttum er þetta til-
færsla innan fjárlaga upp á 7%. Þetta er
heldur lægri fjárhæð en nemur rekstri
Landspítalans í ár.
Flestir sem þekkja til heilbrigðiskerf-
isins virðast sammála um að þar sé mikil
eyðsla á fjármunum sem ekki nýtist vel.
Vandinn er sá að menn eru sjaldnast
sammála um hagræðingartillögur. Hags-
munir sveitarfélaga eða heilbrigðisstétta
fara ekki endilega saman við hagmuni
sjúklinga og annarra sem þjónustunnar
þarfnast.
Ný spítalabygging
Fyrirsjáanlegt er mjög aukið álag á heil-
brigðisþjónustuna vegna þess hve stór-
ir árgangar eru nú að komast á efri ár.
Einn þeirra þátta sem miklu skiptir er
bygging nýs spítala. Ymsar tölur hafa
verið nefndar í sambandi við kostnað,
en líklegt virðist að hann verði á milli
80 og 100 milljarðar króna með tækj-
um. Stjórnmálamenn segjast yfirleitt
hlynntir byggingu nýs spítala, en hafa
í mörg ár fundið sér ýmsar ástæður til
þess að fresta framkvæmdum.
Framkvæmd af þessari stærðargráðu
hefur áhrif á hagkerfið í heild og eðli-
legt að það sé metið. Ætla má að áhrifin
verið þeim mun meiri sem spennan er
meiri í hagkerfinu. Nú er atvinnuleysi
lítið og útlit fyrir að svo verði áfram
næstu ár. Við þær aðstæður er líklegt að
áhrifin verði meiri en ella.
Hagfræðistofnun Háskólans reikn-
aði árið 2014 út hver áhrifin á nokkrar
þjóðhagsstærðir gætu verið miðað við
ákveðið þjóðhagslíkan. í líkaninu er
miðað við að kostnaðurinn dreifist á níu
ár, en áætla má að í stað þess að miða
við 2014 sem grunnár sé óhætt að miða
við 2016. Meginþunginn í framkvæmd-
unum yrði þá á árunum 2018 til 2020.
Meiri verðbólga
Hagfræðistofnun tekur fram að hún
gerir ráð fyrir því að seðlabankinn grípi
inn í með hækkun vaxta og reyni þannig
að sporna við þensluáhrifunum. Áhrif
á VLF, vinnustundir, verðlag og laun
eru því minni en þau væru við óbreytta
stýrivexti.
Samkvæmt útreikningum stofnunar-
innar verður innlent verðlag 0,9% hærra
árið 2022 (niðurstöður stofnunarinnar
eru hér færðar til baka um tvö ár) ef ráð-
ist verður í byggingu nýs spítala en ella.
Stýrivextir seðlabanka verða jafnframt
35 punktum (0,35 prósentustigum)
hærri árið 2020.
Samt hagkvæmt
Niðurstaða Hagfræðistofnunar var að
núvirtur kostnaður (5% vextir) við nýj-
an Landspítala, að meðtöldum kostnaði
við að endurnýja gamalt húsnæði væri
nærri 87 milljörðum króna á verðlagi
2014. Borinn er saman byggingarkostn-
aður við nýlegar spítalabyggingar annars
staðar á Norðurlöndum og stofnunin
telur áætlanir raunhæfar miðað við þann
samanburð. Frá byggingarkostnaði má
draga söluverð eldri eigna, sem gæti ver-
ið á bilinu 8-11 milljarðar króna.
Til samanburðar tók Hagfræðistofn-
un mat á kostnaði við að uppfæra það
húsnæði sem fyrir er, en tekur fram að
það mat sé mjög óvisst. Þar gæti kostn-
aður hæglega farið langt fram úr þeim
áætlunum sem nú eru gerðar. Við-
miðunarkosturinn styðst við mat starfs-
manna Landspítala á lágmarksþörf fyr-
ir endurnýjun og viðhaldi á húsakosti
spítalans. Þar er einkum notuð reynsla
undanfarinna áratuga af viðhaldi spít-
alans. Viðhaldskostnaður dreifist yfir
langan tíma. Alls verður núvirtur kostn-
aður við viðhald og endurnýjun á þessu
tímabili tæplega 30 milljarðar króna skv.
skýrslunni.
Gera má ráð fyrir að rekstur Landspít-
alans truflist eitthvað meðan unnið er að
nýjum spítala. Hér er sá kostnaður met-
inn um 5 milljarðar króna.
Hér er sparnaður spítalans af nýj-
ungum talinn 2-3% af rekstrarkostn-
aði spítalans á ári. Gert er ráð fyrir 5%
reiknivöxtum og 50 ára endingartíma og
fæst þá að hagnaður spítalans núvirtur sé
19-20 milljarðar króna. Við bætist ábati
sjúklinga af bættri þjónustu og þetta
samanlagt gefur tæplega 23 milljörðum
króna. Sennilega er ábati af nýju hús-
næði mestur í upphafi.
framh. á bls. 4
VÍSBENDING -12. T B L . 2016 3