Vísbending - 30.05.2016, Page 2
VíSBENDING
Ungs manns blús
Mynd 1: Laun aldurshópa 18-45 ára sem hlut-
fall aflaunum 41-45 ára. 1992-2014
Mynd 2: Laun aldurshópa 41-65 ára sem hlut-
fall af launum 41-45 ára. 1992-2014
110%
Laun skipta auðvitað afar miklu máli
í samfélaginu. Stéttir eru fljótar að
taka eftir því ef þær dragast aftur úr
öðrum „viðmiðunarhópum". Nú síðast
vilja flugumferðarstjórar að laun þeirra taki
mið af launum flugstjóra, læknar miða sig
við erlenda kollega sína, aðrar heilbrigðis-
stéttir við lækna og svo mætti lengi telja.
Minni athygli vekur munur á dreifingu
launa eftir aldri. Flestir gera eflaust ráð fyr-
ir því að laun séu að jafnaði hæst hjá þeim
sem eru á aldrinum 40 til 50 ára. Þeir eru
á miðjum starfsferli sínum, vinna mikið og
hafa oft fengið þann starfsframa sem þeir
ná á ferlinum. Asgeir Jónsson hagfræðingur
vakti nýlega athygli á því að ein skýringin
á því hve erfitt ungt fólk á með að eignast
húsnæði er að laun þess hafi lækkað miðað
við aðra aldurshópa. I þessari grein er skoðuð
launaþróun eftir aldri allt frá árinu 1992.
Þeir yngstu dragast aftur úr
A mynd 1 sést launaþróun eftir aldurs-
hópum hjá launþegum frá 18 til 45 ára
aldurs. Myndin sýnir glöggt að Asgeir
hefur rétt fyrir sér. Laun 18-20 ára hafa
minnkað úr því að vera 16% af launum
41-45 ára í að vera 11%. Það er í sjálfu sér
ekki einkennilegt að hlutfallið sé ekki mjög
hátt, því að flest fólk á þessum aldri er í
skóla, en hins vegar er greinilegt að hópur-
inn hefur ekki haldið í við þá eldri.
Enn athyglisverðara er að skoða aldurs-
hópana yfir tvítugu. Þau sem eru 21-25 ára
hafa lækkað úr 43% af launum 41-45 ára
í 29%. Aldurshópurinn 26-30 ára lækkar
úr 67% í 48% af „fullum launum“ ef svo
má að orði komast. Og jafnvel þeir sem
eru 31-35 ára hafa lækkað úr 83% í 71%
af launum þeirra sem eru á milli 41 og 45
ára á þessu tímabili.
Augljóst er að þetta þýðir að kyn-
slóðabil er að aukast. Fólk sem kemur úr
ströngu og löngu námi fær ekki jafngóð
störf og buðust fyrir 20 árum. Þróunin er
til langs tíma og er nokkurn veginn á sömu
lund allan tímann. Það er ekki fyrr en horft
er á hópinn sem er á aldrinum 36 til 40 ára
sem hlutfallið virðist nokkuð stöðugt, en
þó heldur niður á við, ef eitthvað er.
Hvað um þá sem komnir eru
yfir miðjan aldur?
Skoðum næst hvernig hópunum sem
eru eldri hefur vegnað. Á mynd 2 sést að
þar er þróunin talsvert önnur. Enn er við-
miðunarhópurinn fólk á aldrinum 41 til
45 ára. Myndin sýnir að þeir sem nálgast
Heimild: rsk.is, útreikningar Vísbendingar
fimmtugt eru á svipuðu róli. Tekjur þeirra
sveiflast í kringum 100% sem þýðir að
sum ár eru þeir með meiri tekjur en 41-45
ára, en sum ár minni.
Hagur fólks yfir fimmtugt vænkast líka
hlutfallslega eins og mynd 2 sýnir. Með-
allaun hópsins hækka úr 92% af launum
viðmiðunarhópsins í 97%. Sum árin eru
þau meira að segja svipuð. Þeir sem eru 55-
60 ára eru eflaust eitthvað farnir að draga
úr vinnu, en launatekjur þeirra jukust á
tímabilinu úr 83% af launum 41-45 ára í
91%. Hjá þeim sem eru 61-65 ára aukast
tekjurnar úr 71% í 81% af viðmiðun-
arhópnum. Þetta bendir til þess að at-
vinnuþátttaka sé vaxandi hjá þessum hópi.
Af myndum 1 og 2 má draga þá álykt-
un að laun þeirra sem eldri eru hafi hækk-
að meira en laun hinna yngri á undanförn-
um áratugum. Þetta staðfestir áhyggjur af
kaupgetu þeirra yngstu.
Ellilífeyrisþegar
vinna minna
Eftir 65 ára aldur má æda að vinnuþátt-
taka minnki talsvert. Mynd 3 bendir til
þess að svo sé. Þrátt fyrir að mælingar sýni
að meðalævi lengist fer launahlutfall þessara
aldurshópa mjög lækkandi. Launatekjur 66-
70 ára minnka úr 50% í 40% af tekjum 41-
45 ára. Þessi lækkun virðist gerast í áföngum
og hlutfallið hefur ekki lækkað frá hruni.
2 VÍSBENDING • I9.TBL. 2016