Vísbending - 30.05.2016, Qupperneq 3
Hjá þeim sem eru yfir sjötugt eru
launatekjur orðnar heldur litlar að jafn-
aði. Hlutfallið lækkaði úr 14% í 11% af
viðmiðunartekjunum frá 1992 til 1994 en
hefur haldist nokkuð stöðugt síðan. Hjá
fólki á aldrinum 76-80 ára er hlutfallið
3-5% allan tímann, en fer þó lækkandi.
Þessi þróun virðist nokkuð öfugsnúin
miðað við miklu betra heilsufar en áður og
lengri meðalævi.
X/íSBENDING
V
Mynd 3: Laun aldurshópa 66-80 ára sem hlut-
fall af launum 41-45 ára. 1992-2014
60%
30%
Hlutföll segja ekki alla sögu
Hér að framan er miðað við hlutfall launa-
tekna af viðmiðunarhópi sem er með einna
mestar tekjur, en það segir ekkert um það
hvernig kaupmáttur hefur þróast. Hvort
standa menn betur eða lakar í lok tímabils-
ins en í upphafi? Mynd 4 skýrir þetta.
Myndin sýnir að kaupmáttur allra stóð
í stað til 1995, en batnaði svo nokkuð jafnt
fram yfir aldamót. Þar skilja leiðir. Yngsti
hópurinn, 18-25 ára, er hreinlega skilinn
eftir og kaupmáttur hans versnar mikið
eftir hrun og skömmu síðar fær hópurinn
26-30 ára svipuð örlög. Ein skýring á þessu
er að fyrirtæki hafi mætt erfiðum rekstri
með því að lækka laun í störfum þeirra
sem eru nýráðnir. Svo má auðvitað benda
á að störf í ferðaþjónustu eru ekki mjög vel
launuð upp til hópa, en slíkum störfum
hefur fjölgað mikið að undanförnu. Þau
eru að nokkuð stórum hluta mönnuð af
innflytjendum.
Myndin sýnir auðvitað glöggt áfallið
sem varð við hrunið og bókstaflega má
sjá hengiflug milli áranna 2008 og 2009.
Síðan hafa kjör batnað allt til ársins 2014
og vitað er að sú þróun hefur haldið áfram
árin 2015-16. En það eru þó einkum þeir
sem eru yfir fertugt sem hafa stefnt upp
á við á ný meðan kaupmáttaraukning er
lítil hjá fólki milli þrítugs og fertugs og
kaupmáttur hreinlega minnkar hjá þeim
yngstu.
Launaferill hliðrast
Loks er hægt að horfa á það hvernig
launaferillinn í heild hefur færst til hægri.
Þetta þýðir að þeir sem eldri eru fá nú
hlutfallslega meira en árið 1992 af heildar-
kökunni en þeir sem yngri eru fá minna.
Þetta gæti í sjálfu sér verið í lagi ef kakan
hefði stækkað mikið á tímabilinu og allir
fengið hlutdeild í batanum. Svo er hins
vegar alls ekki. Mynd 4 sýnir að kaup-
máttur fólks undir þrítugu var svipaður í
lok tímabilsins og í upphafi þess og talsvert
verri en um aldamótin. Ef horft er á hækk-
anir á húsnæðisverði væri myndin enn
svartari fyrir þennan hóp, því að húsnæði
hefur hækkað mun meira en neysluvörur
almennt. B
Heimild: rsk.is, útreikningar Vísbendingar
Mynd 4: Kaupmáttur launa eftir aldurshópum
1992-2014
Mynd 5: Dreifing launa eftir aldurshópum
1992 og 2014
— 1992 —2014
Myndin sýnir laun aldurshópa sem hlutfall af launum 41-45 ára.
Heimild: rsk.is, útreikningar Vísbendingar
VÍSBENDING 19.TBL.2016 3