Vísbending - 24.06.2016, Page 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
24 . júní 2016
22 . tölublað
34. árgangur
ISSN 1021-8483
Sjálfsprottnar reglur
Eitt af því sem margir minnast frá
því fyrir hrun er hve mikil áhrif
Viðskiptaráð hafi haft á stefnu
stjórnvalda. Árið 2006 gaf ráðið út að Alþingi
hafi farið að tillögum þess í 90% tilvika.
Ráðið telur umsagnir um lagafrumvörp
og þingsályktunartillögur eitt af sínum
mikilvægusm hlutverkum. Tillögur ráðsins á
Viðskiptaþingi vorið 2007 voru settar fram
undir yfirskriftinni: Hvernig verður Island
best í heimi? Ein af hugmyndunum sem þar
komu fram var um svonefndar sjálfsprottnar
reglur. Hugmyndin var skýrð svona:
„Höftum og íþyngjandi reglum verði aflétt
af öllum atvinnuvegum og viðskiptalífinu
verði í auknum mæli gefinn kostur á að setja
sér sjálft reglur.“
Eftir hrun hafa efasemdir um eigið eftirlit
fyrirtækja verið miklar og hugmyndir af
þessu tagi verið nefndar sem dæmi um á hve
miklum villigötum atvinnulífið hafi verið.
Eftirlit hefiir stóraukist á ýmsum sviðum
og reglur hertar af löggjafanum. Þetta gerist
ekki bara á íslandi heldur víða um heim.
Ráða menn við sjálfa sig?
I stjóm FL Group kom upp sérstæð staða
fyrir hrun. Þegar Inga Jóna Þórðardóttir
sagði sig úr stjórn fyrirtækisins í júlí 2005
tiltók hún að í ársskýrslu félagsins kæmi
fram að stjórnin legði sérstaka áherslu á að
viðhalda góðum stjórnunarháttum, og þar
væru leiðbeiningar Kauphallarinnar, SA og
VI um stjórnunarhætti tilgreindar sérstak-
lega. Hún sagði í ræðu á hluthafafundi: „í
veigamiklum atriðum er misbrestur á að
farið sé eftir þeim reglum, sem í gildi eru.“
Enginn fjölmiðill sýndi þessu máli sérstakan,
a.m.k. ekki nægan að minnsta kosti til þess
að fylgja því eftir. Löngu síðar var Hannes
Smárason ákærður fyrir að hafa fært fé ftá
félaginu, en hann hafði þá gleymt málinu og
var á endanum sýknaður.
Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnar-
formaður FL Group, staðfesti í janúar 2006
að samið hefði verið um laun við forstjóra fé-
lagsins án atbeina starfskjaranefndar á vegum
stjórnar. I leiðbeiningum Kauphallar Islands,
Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins um
stjórnarhætti fyrirtækja var kveðið á um að
stjórn skipi starfskjaranefnd, þar sem meiri-
hluti nefndarmanna sé óháður félaginu, til
að semja um laun við framkvæmdastjórann
og aðra stjórnendur. Skarphéðinn Berg sagði
að samningurinn við forstjórann - sem kvað
á um 48 milljóna árslaun, sem geta hækkað í
192 milljónir - væri í samræmi við lög. LeiS-
beinandi tilmœli varu einmitt leiðbeinandi!
Rök gegn opinberu valdi
Viðskiptaráð setti sumarið 2006 fram
skoðun um sjálfsprottnar reglur þannig að
þingið vorið 2007 var ekki í fyrsta sinn þar
sem þessi hugmynd kom fram. I skoðun
ráðsins sagði:
„Röksemdir gegn opinberri reglusetningu
og eftirliti á fjármagnsmarkaði eru meira
sannfærandi en röksemdir með slíkum opin-
berum afskiptum. Miklu skynsamlegra væri
að láta markaðsaðilum það eftir að setja sér
eigin reglur og framfylgja þeim. Besta leiðin
til að meta hvort rétt sé að gefa fjármagns-
markaðnum aukið frelsi til að setja sér reglur
er að kanna hvernig reynsla hefur verið af
slíku frelsi hingað til, hérlendis og erlendis.
... Þar sem reynsla þessi er góð eru vandséð
að nokkuð sé að vanbúnaði að halda áfram
á þeirri braut.“
Þessi tilvitnun virkar eins og öfugmæli
eftir að í ljós kom að fjármálakerfið fór á
bakvið opinber lög og reglur með ýmsum
hætti fyrir hrun eins og margir dómar vima
um. Alþekkt er að þær tilraunir sem gerðar
vom til þess að hafa eftirlit mættu mikilli
mótspyrnu og bankarnir hegðuðu sér eins
og ríki í ríkinu. Ekki virðast sérstakar líkur
á því að virðingin hefði orðið meiri þó að
reglurnar hefðu verið sjálfsprottnar.
„ÞRÓUNIN EKKINÓGU
GÓГ
Viðskiptaráðið hélt áfram með ofangreindri
fyrirsögn: ,A síðustu áratugum hefúr höft-
um og bönnum verið aflétt af viðskiptalífi,
og fjármagnsmarkaði vestrænna ríkja, sem
hefúr skapað því víðara svigrúm til athafna
en áður hefúr þekkst. Þetta svigrúm hefúr
viðskiptalífið notað til að vaxa og þróast þrátt
fyrir að ríkisvaldið hafi enn töluverða stjórn
á viðskiptum með margvíslegri íhlutun og
íþyngjandi reglusemingu.
I raun hefúr regluverk viðskiptalífs og
fjármagnsmarkaðar aldrei verið flóknara og
viðameira. Aukin tækni og framþróun virðist
hafa einfaldað allt líf manna nema reglurnar
sem þeir búa við. Fyrirfram hefði mátt búast
við því að aukin framþróun sem einfaldar
líf og viðskipti myndi einnig einfalda lög og
reglur. Reynslan hefúr verið þveröfúg.“
Skoðun Viðskiptaráðs er mjög svipuð og
mótbárur andstæðinga Evrópusambands-
aðildar Breta. Auðvitað eru ónauðsynlegar
reglur afleitar, en ekki er betra að afnumdar
séu reglur sem eru til góðs, til dæmis til þess
að skapa staðla eða tryggja öryggi neytenda.
Viðskiptaráðið heldur áfram:
„Sjálfiprottnar reglur em rcglur sem em ekki
sett af ríkisvaldi heldur þeim sem ædað er að fára
efúr þeim. Þannig teljast sjálfsprottnar teglur á
verðbréfamarkaði, reglur sem verðbiéfamarkað-
ur, markaðsaðilar eða fúlltrúar þeirra setja fyrir
verðbrcfamarkaðinn."
Löggjíifinn sé í eðli sínu regluglaður og
því sé heppilegra að viðskiptalífið setjir sín-
ar eigin reglur. „Viðskiptalífið hefúr sýnt að
því er treystandi“, segir ráðið í skoðun sinni.
Þessi setning er ekki eins sannfærandi nú
og þegar hún var sett fram fyrir réttum tíu
árum.
I álitinu sagði: „Ef félögum gæfist til
dæmis aukið svigrúm til að móta inntak sitt
með samþykkmm gætu samtök fyrirtækja í
landinu mótað viðmiðunarreglur um atriði
sem nú er kveðið á um í hlutafélagalögum.
Félög gætu þannig vísað til þess í samþykkt-
um sínum að slíkar viðmiðunarreglur giltu.
Ef það væri gert gætu fjárfestar, kröfúhafar
og aðrir haghafar treyst því að viðmiðunar-
reglurnar væm skuldbindandi fyrir viðkom-
andi félag.“
Hugsunin er sú að farsælast sé að
menn séu heiðarlegir og að ríkið þurfi
ekki að leiðbeina mönnum með það.
Reynslan bendir samt til þess að ekki liði
á löngu áður en einhver stjórnarformað-
urinn benti á að „viðmiðunarreglur væru
bara til viðmiðunar.“ GS
1 Viðskiptaráð kemur oft A Fyrirgreiðslupólitík Bretar ákváðu að ganga A Orðum og ákvörðunum
X með þarfar ábendingar, var einu sinni talin yj úr Evrópusambandinu fylgir ábyrgð. Nema ef
en fyrir hrun gekk það vænleg til vinnings í og heimsbyggðin er í menn eru á móti öllu, þá
býsna langt. stjórnmálum. vanda. : skiptir ekken máli.
VÍSBENDING • 22. TBL 2016 1