Vísbending - 28.09.2016, Page 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
28. september 2016
32 . tölublað
34. árgangur
ISSN 1021-8483
Róðurinn þyngist hjá sveitar-
félögunum
r
VP rsreikningar sveitarfélaganna fyrir
árið 2015 benda til þess að rekstur
X Xþeirra sé að þyngjast eftir talsverðan
bata eftir hrun. I árslok 2013 voru skuld-
ir flestra á niðurleið og þau sýndu aðhald í
rekstri. Miklar launahækkanir hafa reynst
þungar í skauti og styrking krónunnar dreg-
ur úr tekjum sjómanna, sem aftur lækkar
útsvarstekjur, þó að þau áhrif komi einkum
fram árið 2016.
Mörg sveitarfélög komu illa út úr hrun-
inu. Eftirlitsnefhd með fjármálum sveitarfé-
laga setti sumum þeirra úrslitakosti þannig
að þau urðu að takast á við vandann. Nú
heyrist aftur að sveitarfélögin verði að fá
meiri tekjur. Samningar við kennara virðast
hafa verið umfram greiðslugetu sveitarfé-
laganna. Þau fá ekki beinar tekjur af heim-
sóknum ferðamanna sem auðvitað reynir á
innviði þeirra.
Afkoma margra sveitarfélaga var nei-
kvæð árið 2015. Einkunnir þeirra í mati
Visbendingar fara heldur lækkandi, þó ekki
muni miklu að meðaltali. A árinu jukust
skuldir sveitarfélaganna í heild að raunvirði
um 3%.
Mörg lækka í einkunn
Athygli vekur að einungis 13 af 36 stærstu
sveitarfélögunum hækka í einkunn. I þetta
sinn fengu 22 sveitarfélög af þeim 36 stærstu
meira en fimm í einkunnagjöf hjá Vís-
bendingu, eða einu minna en árið áður. Flest
sveitarfélögin nota hæstu útsvarsprósentu og
því erfitt fyrir þau að bæta fjárhaginn frekar
nema með auknu atvinnustigi, fjölgun íbúa,
niðurskurði útgjalda eða sölu eigna.
Byggðarlög í vanda
Veik staða nokkurra sveitarfélaga er mjög
alvarleg. Hún hefúr orðið til þess að þau
hafa dregið úr framkvæmdum og einnig
leitt til samdráttar í þjónustu. Reykjanesbær
hefúr verið mikið í fréttum vegna slæmrar
stöðu og Fljótsdalshérað er líka mjög skuld-
sett. Skuldahlutföll (skuldir sem hlutfalla af
tekjum) er hátt hjá Reykjavík, Kópavogi og
Hafnarfirði, en þetta eru nokkur af stærstu
sveitarfélögum landsins. Athygli vekur að tvö
sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garða-
bær og Seltjarnarnes hafa miklu betri tök
á sínum fjármálum, en báðir bæirnir hafa
lengi verið í fremstu röð í einkunnagjöf Vís-
bendingar.
Skuldastaða Reykjanesbæjar, Hafnar-
fjarðar, Kópavogs og Reykjavíkur er vel yfir
150% af tekjum, sem er lögboðið hámark.
Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ tala nú í alvöru
um að gjaldþrot vofi yfir sveitarfélaginu.
Bæjarfélagið hefur verið undir nánu eftirliti
eftirlitsnefndar sveitarfélaga í allmörg ár og
úrræði hafa ekki fundist til nauðsynlegra úr-
bóta. Efúrlitsnefnd sveitarfélaga nefndi í árs-
skýrslu sinni vegna ársins 2014 að Reykjanes-
bær og Breiðdalshreppur væru í sérstakri
umfjöllun. Sveitarfélög sem skulduðu í lok
árs 2011 meira en 150% af tekjum sínum
fengu allt að 10 ár hjá nefndinni til að ná
150% skuldaviðmiði og því þarf að gera
meiri kröfur í rekstri gagnvart þeim. Við
framsetningu viðmiða er miðað við lág-
markskröfur og ekki er gert ráð fyrir nema
takmarkaðri fjárfestingu, þar sem svigrúm til
nýrra fjárfestinga/lántöku hjá þeim sveitarfé-
lögum sem skulda meira en 150% af tekjum
sínum, er mun þrengra en þeirra sem skulda
150% og minna. Viðmið fyrir þau sveitarfé-
lög sem skulda minna en 150% af tekjum
gerir ráð fyrir óbreyttu skuldahlutfalli þeirra
við skoðun á lágmarksviðmiðum, þ.e.a.s. ef
sveitarfélag skuldar 100% af tekjum sínum
eru viðmiðin til þess fallin að viðhalda 100%
skuldahlutfalli.
Einkunnagjöf
Vísbending hefúr í mörg ár skoðað fjár-
hag sveitarfélaga og gefið einkunnir eftir
nokkrum þáttum. Slíkt getur auðvitað ekki
veitt fullnægjandi svör vegna allra þeirra
spurninga sem upp koma um fjárhagslegt
bolmagn sveitarfélaganna. Einkunnagjöfin
hefur oft vakið eftirtekt og stundum hafa
sveitarfélög mótmælt niðurstöðunni á þeim
forsendum að hún mæli ekki lífsgæði í
sveitarfélögunum. Því er rétt að undirstrika
að einkunnagjöfin mælir fyrst og fremst fjár-
hagslegan styrk sveitarfélaganna. I tölunum
hér á eftir er miðað við rekstrartölur úr árs-
reikningum sveitarfélaga árið 2015 sem eru
nýjustu tölur sem fyrir liggja. Upplýsinga-
veita Sambands íslenskra svcitarfélaga binir
gögn á Netinu.
Mjög mikilvægt er að líta á heildarskuldir
sveitarfélaga þar sem meðtaldar eru skuldir
vegna eftirlaunaskuldbindinga og ábyrgðir
vegna einkaframkvæmda svo að dæmi séu
tekin. Einkafjármögnun framkvæmda naut
mikilla vinsælda sumra stjórnmálamanna,
ekki bara vegna þess að hún sé hagkvæmari
en framkvæmdir hins opinbera heldur ekki
síður vegna þess að hún kom ekki fram í
skuldum. Þetta hefúr nú breyst bókhalds-
lega, en enn tala stjórnmálamenn þó um
einkaframkvæmdir, nú síðast í vegamálum.
framh. á bls. 2
1 Hagur sveitarfélag- A Mörg sveitarfélög kvarta ^ : Vestmannaeyjar eru • A Margir hneykslast á
1 anna fer versnandi f l undan því að tekjustofnar i J j draumasveitarfélagið frambjóðanda í forseta-
í kjölfar dýrra standi ekki undir j í ár, í fyrsta sinn. kosningunum í BNA, en
kjarasamninga. útgjöldum. þriðjungur kjósenda styður hann.
VÍSBENDING • 32. TBL. 2016 1