Vísbending - 28.09.2016, Page 4
ÍISBENDING
Tafla 3: íbúafjöldi í stærstu bæjar-
félögunum
Bæjarfélag 2013 2014 2015 Breytim
Reykjavík 119.764 121.230 121.822 0,5%
Kópavogur 31.726 32.308 33.205 2,8%
Hafnarfjörður 26.808 27.357 27.875 1,9%
Akureyri 17.966 18.103 18.191 0,5%
Reykjanesbær 14.231 14.527 14.924 2,7%
Garðabær 13.872 14.180 14.453 1,9%
Mosfellsbær 8.978 9.075 9.300 2,5%
Sveitarfélagið Árborg 7.826 7.889 8.052 2,1%
Akranes 6.625 6.699 6.767 1,0%
Fjarðabyggð 4.629 4.675 4.747 1,5%
Seltjarnarnes 4.322 4.381 4.411 0,7%
Vestmannaeyjar 4.221 4.264 4.272 0,2%
Sveitarfélagið Skagafjörður 4.010 3.978 3.910 -1,7%
Isafjarðarbær 3.748 3.639 3.629 -0,3%
Borgarbyggð 3.469 3.535 3.539 0,1%
Fljótsdalshérað 3.434 3.463 3.454 -0,3%
Grindavíkurbær 2.860 2.888 2.995 3,7%
Norðurþing 2.864 2.822 2.806 -0,6%
Hveragerði 2.291 2.333 2.384 2,2%
Sveitarfélagið Hornafjörður 2.166 2.167 2.150 -0,8%
Fjallabyggð 2.012 2.010 2.037 1,3%
Sveitarfélagið Olfus 1.900 1.906 1.885 -1,1%
Dalvíkurbyggð 1.864 1.867 1.861 -0,3%
Rangárþing eystra 1.735 1.708 1.749 2,4%
Snæfellsbær 1.722 1.691 1.679 -0,7%
Sandgerði 1.581 1.609 1.580 -1,8%
Rangárþing ytra 1.518 1.553 1.548 -0,3%
Sveitarfélagið Garður 1.429 1.409 1.425 1,1%
Húnaþing vestra 1.177 1.173 1.171 -0,2%
Stykkishólmur 1.112 1.095 1.107 1,1%
Sveitarfélagið Vogar 1.105 1.127 1.102 -2,2%
Eyjafjarðarsveit 1.012 1.026 1.032 0,6%
Vesturbyggð 941 949 1.002 5,6%
Bláskógabyggð 897 931 961 3,2%
Bolungarvík 918 950 923 -2,8%
Þingeyjarsveit 914 917 920 0,3%
Grundarfjarðarbær 905 872 900 3,2%
Hverjir eru bestir?
Garðabær og Seltjarnarnes eru í algjörum sérflokki þegar kemur að útnefningu
draumasveitarfélagsins. Garðabær hefur sex sinnum hlotið hnossið og Seltjarnarnes átta
sinnum alls. Þau hafa líka oft verið í öðru sæti og þannig skera þau sig úr öðrum sveitar-
félögum á þessu tímabili. Niðurstaðan hefur verið sem hér segir:
1996 Selfoss
1997 Akureyri/Seltjarnarnes
1998 Seltjarnames
1998 Seltjarnarnes
2000 Seltjarnarnes
2001 Seltjarnarnes
2002 Ölfus
2006 Garðabær
2007 Garðabær
2008 Seltjarnarnes
2009 Snæfellsbær
2010 Garðabær
2011 Garðabær
2012 Garðabær
2013 Garðabær
2014 Seltjarnames
2015 Seltjarnarnes
2016 Vestmannaeyjar
Á ámm áður var algengt að sveitarfélög kvörtuðu undan slæmri niðurstöðu úr grein-
ingu Vísbendingar. Oftar en ekki vom það sveitarfélög sem síðar hafa farið í gegnum
mikla erfíðleika. Eftir að eftirlitsnefndin hóf sín störf og varð sýnileg hafa kvartanir af
þessu tagi að mestu horfið. Auðvitað á ekki að leggja of mikið upp úr minniháttar mun á
einkunnum, en þær gefa þó góða hugmynd um almennan §árhagslegan styrk sveitarfélag-
anna og stjóm á fjármálunum.
Aörir sálmar
Þú værir í fangelsi
Flestum flnnst dapurlegt að fylgjast
með kosningabaráttunni í Bandaríkj-
unum. Þegar maður heldur að Trump hafi
náð botninum sekkur hann dýpra. Hann
vakir um nætur og sendir út tíst um það
hversu vitlausir og óhæfir samherjar hans
eru og hve mikill glæpamaður Hillary er.
Islendingar þekkja vel að áfengi og samfé-
lagsmiðlar eru ekki góð blanda, en Trump
mun hafa haldið sig frá áfengi allt sitt líf,
þannig að ekki er það skýringin. Frétta-
skýrendur af lakari gerðinni töldu hann
sjúga mikið upp í nefið í kappræðum
vegna kókaín neyslu, sem sýnir að hann
er ekki einn um sérstæðar kenningar. Nú
hefur hann lagt til lyfjapróf fyrir fram-
bjóðendur, eins og um kappleik sé að
ræða!
Trump heldur því blákalt fram að
svindlað verði í kosningunum, einkum í
kjördeildum þar sem svartir kjósendur eru
í miklum meirihluta. Það mun auðvitað
koma mjög á óvart ef í ljós kemur að þessi
mikli mannréttindafrömuður fær lítið
fylgi meðal svartra kjósenda, svo ekki sé
talað um þá sem eru upprunnir í Mexíkó.
Öllum þykir gaman að láta kalla sig afæt-
ur og nauðgara. Frambjóðandinn stærir
sig af því að áreita konur kynferðislega og
kallar svo þær konur sem staðfesta sögu
hans lygara.
En vandinn er kannski ekki bara
Trump. Hann er kosinn af stórum hluta
fylgismanna Repúblikana til þess að vera
frambjóðandi flokksins. Tugþúsundir
mæta á fundi hans þar sem hann segir
nánast það sem honum dettur í hug, án
nokkurra tengsla við raunveruleikann.
Sú hugmynd hvarflar að manni að allt
framboðið sé einkennilegt grín einhvers
háðfugls. Hver trúir því að helmingur
kjósenda (eða þó að það verði þriðjung-
ur) vilji öfgamann sem forseta? A kjördag
stökkvi svo stjórnandinn fram og sýni al-
heiminum falda myndavél.
Með framferði sínu hefur Trump skert
siðferðisvitund almennings og frétta-
skýrenda. Það tók hálftíma fyrir speking-
ana sem fjölluðu um kappræðurnar að
þeim Ioknum að nefna að Trump hefði
hótað því að setja Hillary í fangelsi. Ein-
hvern tíma hefði kjósendum brugðið við
að heyra frambjóðenda sem vill verða
leiðtogi hins frjálsa heims segjast ætla að
fangelsa andstæðing sinn. bj
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Benedikt Jóhannesson
Útgefandi: Heimur hf., Borgartúni 23,105 Rvík.
Sími: 512 7575.
Netfang: benedikt@heimur.is.
Prentun: Heimur. Upplag: 700 eintök.
Öll réttindi áskilin. © Ritið má ekki afrita
án leyfis útgefanda.
4 VÍSBENDING • 32. IBL. 2016