Vísbending


Vísbending - 05.10.2016, Blaðsíða 1

Vísbending - 05.10.2016, Blaðsíða 1
ÍSBENDING Vikurit um viðskipti og efnahagsmdl 5. október 2016 33 . tölublað 34. árgangur ISSN 1021-8483 Nóbelsverðlaunin í hagfræði 2016 Sverrir H. Geirmundsson, hagfrœðingur agfraeðingarnir Oliver Hart, pró- fessor í hagfræði við Harvard háskólann og Bengt Holström, prófessor í hagfræði við Tækniháskólann í Massachusetts (MIT) skipta á milli sín Nóbelsverðlaununum í hagfræði í ár. Verð- launin fá þeir fyrir rannsóknir á sviði samn- ingafræði (e. contract theory). Oliver Hart Oliver Hart fæddist á Bretlandseyjum þann 9. október 1948 og er því 68 ára gamall. Faðir hans starfaði við rannsókn- ir í læknisfræði og móðir hans var kven- sjúkdómalæknir. Olivei lauk BA-prófi í stærðfræði frá Kings College í Cambridge og MA-prófi í hagfræði frá Háskólanum í Warwick árið 1972. Hann hélt síðan til Bandaríkjanna og lauk doktorsprófi í hag- fræði frá Princeton háskóla í New Jersey. Sérsvið hans eru á sviði samningafræði, kenninga um fyrirtækið (theory of the firm), fjármál fyrirtækja (corporate finance) og réttarhagfræði (law and economics). Oliver var prófessor við London School of Economics, en á árinu 1984 snéri hann aftur til Bandaríkjanna og sinnti kennslu í MIT og síðar Harvard. Hann var skipaður prófessor í hagfræði við Harvard háskólann á árinu 1997 og var deildarforseti á árun- um 2000 - 2003. Eiginkona hans er Rita B. Goldberg, prófessor í bókmenntum við Harvard háskóla og eiga þau tvo syni. Bengt Holström Bengt Holström er finnskur hagfræðing- ur sem fæddist í Helsinki þann 18. apríl 1949. Hann er því 67 ára gamall. Hann lauk BS-prófi í stærðfræði frá Háskólanum í Helsinki og MS-prófi í aðgerðagreiningu (e. operations research) frá Stanford há- skóla í Bandaríkjunum árið 1975. Hann lauk síðan doktorsprófi frá Stanford árið 1978. Bengt var aðstoðarprófessor við Kellog viðskiptaháskólann í Illinois og prófessor við Yale háskóla í New Haven í Connect- icut ríki í Bandaríkjunum fram til ársins 1994 þegar hann réði sig til MIT. Hann var deildarforseti hagfræðiskorar MIT á árun- um 2003 - 2006. Bengt er þekktastur fyrir rannsóknir á sviði umboðskenninga (e. pr- incipal-agent theory). Eiginkona hans er Anneli Kuusakoski og eiga þau einn upp- komin son. Framlag til samningafræda I tilkynningu sænsku nóbelsverð- launanefndarinnar segir að Oliver og Bengt fái verðlaunin fyrir „framlag þeirra til samningafræði“. Nútíma hagkerfi grund- vallast á margvíslegum samningum milli hinna ýmsu stofnana (e. institutions). Að mati nefndarinnar gegna þau fræðilegu tól sem Oliver og Bengt hafa þróað mikilvægu hlutverki til að skilja betur þessa samninga og stofnanir ásamt þeim gildrum (e. pit- falls) sem geta verið fyrir hendi í samninga- gerðinni. Sem dæmi má nefna samningatengsl milli hluthafa og yfirstjórna fyrirtækja, tryggingafélaga og bifreiðaeigenda eða opinberra aðila og þeirra sem selja ríkinu þjónustu. Til að koma í veg fyrir hags- munaárekstra þarf að hanna samninga þannig að báðir hafi ávinning af ákvörðun- um. Samningafræðin mynda ramma til að greina ýmis ólík viðfangsefni í tengslum við samningagerðina og -tengslin. Sem dæmi má nefna árangurstengd laun til yf- irstjórnenda fyrirtækja og einkavæðingu verkefna sem áður var sinnt af opinberum aðilum. Bengt hefur eins og áður segir ein- beitt sér að umboðskenningum og samspili áhættu og hvata. Oliver hefur hefur hins vegar fjallað um ófullkomna samninga (e. incomplete contracts) þar sem skilgreint er hvor samningsaðilinn hafi heimild til að taka ákvörðun um einstök efni og við hvaða aðstæður. Þessi fræðilegu tól gagnast t.d. við sameiningu fyrirtækja, ákvörðun um hagkvæmustu samsetningu lánsfjár- magns og hlutafjár hjá fyrirtækjum o.fl. Samanlagt hljóta þeir 8 milljónir sænskra króna eða jafnvirði liðlega 100 m.kr. sem þeir skipta á milli sín. Q IOliver Hart og Bengt Holström hljóta Nóbelsverðlaunin í hagfræði Húsnæðisliður neysluverðsvísitölunnar er eilíft þrætuepli í umræðunni 3: Við afnám hafta þarf • að draga úr leitni • fjármagns úr landi 4Geta umboðskenningar skýrt hina margumtöluðu gjá milli þings og þjóðar? VÍSBENDING • 33. TBL. 2016 1

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.