Vísbending


Vísbending - 05.10.2016, Blaðsíða 3

Vísbending - 05.10.2016, Blaðsíða 3
ÍSBENDING Bein erlend fjárfesting og afnám hafta Kröfluvirkjun á norðurlandi. Mikil sérhæfðþekking er hér á landi á virkjun jarðvarma, svo sem í Kröflu- virkjun, þaðan sem raforkuframleiðsla er m.a. nýtt af Becromal á Akureyri. Becromal er dœmi um beina erlenda fjárfestingu hér á landi. Mynd höfundar (2013). Tengsl þess hvernig kenningar fræðimanna á tíma- bilinu 2001 til 2008 skýra beina erlenda fjárfestingu. Foreign Direct Investment FDI Bein erlend fjárfesting BEF Carr. Markusen, Maskus (2001) ✓ / Davies (2010) Skilli-Skíllj mannauður í upprunalandi - Við afnám þeirra hafta sem verið hafa frá hruni er mikilvægt að draga úr leitni fjármagns úr landi til að stuðla að því að langtímajafnvægi náist, þannig að útflæði fjármagns verði ekki meira en inn- flæði til langs tíma. Þar getur innflæði beinn- ar erlendrar fjárfestingar spilað mikilvægt hlutverk, því í henni felst langtíma skuld- binding erlendra fjárfesta hér á landi. Annað hvort gemr verið um að ræða nýja, beina er- lenda fjárfestingu eða kvika fjárfestingu yfir í langtímaeign sem stuðlar að langtímajafn- vægi, sem þörf er á til að aflétta höftum. Al- mennt er talað um að bein erlend fjárfesting í álverum sé a.m.k. til 40 ára, svo eitthvað sé nefnt. Vegna þess að bein erlend fjárfesting (e. foreign direct investment) sem felur í sér 10% eða meiri eignaraðild í rekstri kallast hún kjölfestufjárfesting og felur hún því í sér meiri bindingu og er almennt til lengri tíma en hefðbundin fjárfesting í hlutabréf- um (e. portfolio investment) sem er undir 10% eignaraðild. Bein erlend fjárfesting er því ekki eins kvik og hefðbundin hlutabréfa- eign því í henni felst meiri binding. Auk þess sem almennt þarf ekki að greiða vexti út úr landinu af beinni erlendri fjárfestingu, líkt og greiða þarf af erlendu lánsfé. Þá er ótalin sú þekkingaryfirfærsla sem talið er að fáist með erlendri fjárfestingu inn í ýmsar grein- ar, þar sem sérhæft starfsfólk erlendis frá ber með sér þekkingu (e. skills) og mannauð. Bein erlend fjárfesting og mannauður í hagfræði er oft rætt um mikilvægi þess að þjóðir ráði yfir auðlindum (e. resources). Olía og málmar eru hefðbundar auðlindir, en mannauður er einnig auðlind. Vegna þess að mannauður er sú auðlind sem allar þjóðir búa yfir í einhverjum mæli og alþjóðamæl- ingar ná yfir, þá er hægt að bera þjóðir saman á grundvelli mannauðs (e. skilled labor). Mælingar mannauðs þjóða ná t.d. yfir hlut- fall stjórnenda sem og menntunarstig. Þegar verið er að mæla áhrif auðlinda á beina er- lenda fjárfestingu heftír mannauður gjarna verið notaður. Innan alþjóðahagfræði hefur mannauður verið tengdur þeim fjárfestingar- kostnaði og viðskiptakostnaði, sem fjárfestar standa frammi fyrir við að fara úr einu landi í Horizontal Mix of FDI Horizontal and vertical FDI annað. Þekkingarlíkan (e. Knowledge-Capi- tal Model) þar sem mannauður leikur aðal- hlutverk gefur vísbendingu um hvenær skipt er yfir í láréttra (e. horizontal) fjárfestingu, frekar en lóðréttra (e. vertical) fjárfestingu. Líkanið gefur þar með vísbendingu um, hvort um fjárfestingu innan iðngreina (e. intra industry) er að ræða, frekar en fjár- festingu milli iðngreina (e. inter industry). Lárétt fjárfesting heftír mælst mest þegar upprunaland og móttökuland eru áþekk þegar kemur að mannauði. Ymis fallform hafa verið þróuð og reynd í þessu sambandi, til þess að ná að skýta tilhneingu til fjár- festinga við mismunandi rekstrarskilyrði. Aukiö framboð mannauðs Ahrif aukins framboðs mannauðs á beina erlenda fjárfestingu hafa verið mæld hér á landi, þar sem athuganir hafa verið settar í samhengi við rannsóknir sem leitast við að mannauður f móttökulandi ........•v................ Vertical FDI greina þátt vinnuafls í hagkvæmni af stað- setningu starfsstöðva fjölþjóðafýrirtækja. Jafnframt hefur þáttur menningar verið greindur í þessu samhengi. Lagt heftír verið mat á áhrif auðlinda, í formi mannauðs, á umfang beinnar erlendr- ar fjárfestingar hér á landi. Rannsóknir hafa leitast við að skýra að hvaða marki bein er- lend fjárfesting eykst, miðað við þann mun sem er á þekkingarstigi í upprunalandi og viðtökulandi fjárfestingar, sem og áhrif af markaðsstærð þeirra og hve auðug löndin eru. Rannsóknir sem stuðst hafa við þekk- ingarlíkanið hafa bent til þess, að tengsl mannauðs og beinnar erlendrar fjárfestingar hér á landi séu ekki endilega með sama móti og erlendis. Eins hafa rannsóknir gefið vís- bendingu um að ólíkir þættir hafi áhrif á fjárfestingu í einstökum atvinnugreinum hér landi. Ö VÍSBENDING 33.TBL. 2016 3

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.