Vísbending


Vísbending - 05.12.2016, Page 2

Vísbending - 05.12.2016, Page 2
Er mikill tekjuójöfnuður á Islandi? ' Sverrir H. Geirmundsson * hagfrœðingur & Tekjur og tekjuskipting einstak- linga í samfélaginu er eilíft um- ræðuefni. Oft byggist umræðan á persónulegu mati fremur en staðreynd- um. Um árabil hefur Efnahags- og fram- farastofnunin, OECD tekið saman töl- ur um jöfnuð tekna í þeim 35 ríkjum sem eiga aðild að stofnuninni og borið saman. Islendingar hafa verið aðilar að OECD frá stofnun þess á árinu 1961. Tölur í þessari grein eru teknar upp úr nýlegri skýrslu frá 5. október 2016 sem ber heitið „Society at a Glance 2016 - OECD Social indicators". Tvær matsaðferðir Almennt eru tvær aðferðir viðhafðar við mat á tekjuójöfnuði. Fyrri aðferðafræðin byggir á því að reikna út svokallaðan Gini-stuðul. Stuðullinn tekur gildi á bil- inu 0-1. Núll táknar að enginn tekju- ójöfnuður sé í samfélaginu þ.e. allir séu með sömu tekjur. Gildið 1 táknar full- kominn tekjuójöfnuð þ.e. að einn þegn landsins fái allar tekjurnar í sinn hlut. Algengt er að gildið sé á bilinu 0,25 - 0,35 í þróuðum ríkjum þegar um er að ræða ráðstöfunartekjur, meira um það síðar. Síðari aðferðafræðin byggir á að reikna út mismun á meðaltekjum þeirra sem hafa 10% hæstu tekjurnar í samfélaginu og þeirra 10% tekjulægstu. Hlutfallið 10 táknar þannig sem dæmi að meðaltekjur 10% tekjuhæstu einstaklinganna séu tí- falt hærri en þeirra 10% einstaklinga sem hafa lægstu meðaltekjurnar. Hægt er að líta á tekjur einstaklinga með tvennum hætti þ.e. annars vegar brúttó tekjur (e. market income) sem eru launa- og fjármagnstekjur fyrir skatta og bótagreiðslur. Hins vegar má líta til ráðstöfunartekna þ.e. eftir að skattar hafa verið dregnir frá og greiðslum frá almannatryggingakerfinu bætt við (e. social transfers). Minnsti munur ráðstöfunartekna hér á landi Þegar litið er á tölur OECD fyrir árið 2014 (næsta ár sem tiltækt er) kemur í ljós að Island er með lægsta Gini-stuð- ulinn af aðildarríkjum OECD eða 0,244 á mælikvarða ráðstöfunartekna. Jafn- framt er minnstur munur á 10% tekju- hæstu og -lægstu tekjuhópunum hér á landi, en hann mældist fimmfaldur á árinu 2013. Gini-stuðullinn var að með- altali um 0,32 hjá aðildarríkjum OECD og munur milli tekjuhæstu og -lægstu hópanna ríflega nífaldur. í heildina er minnsti tekjuójöfn- uðurinn á Norðurlöndum og í ríkjum Mið- og Vestur-Evrópu. Þannig er Gini stuðullinn á bilinu 0,25 - 0,26 í Nor- egi, Danmörku, Finnlandi, Slóveníu og Tékklandi. Stuðullinn er á bilinu 0,27 - 0,29 í Belgíu, Slóvakíu, Austurríki, Sví- þjóð, Lúxemborg og Hollandi. I Þýska- landi, Frakklandi og Sviss er hlutfallið eilítið hærra eða ríflega 0,29. Gini-stuðullinn í Bandaríkjunum var liðlega 0,39 á árinu 2014 og var munur milli þeirra ríkustu og fátækustu m.t.t. ráðstöfunartekna hátt í nítjánfaldur. I þróunarríkjum á borð við Suður-Afríku og Kólombíu mælast gríðarháir Gini- stuðlar eða á bilinu 0,55 - 0,65 enda býr stór hluti íbúa við mikla fátækt í þessum ríkjum. Næst minnsti brúttó tekju- munurinn Ljóst er að skatta- og bótakerfi hafa mikil áhrif á tekjujöfnuð í samfélaginu. Fróðlegt er því að líta á tekjumun í sam- félaginu út frá brúttó tekjum þ.e. launa- og fjármagnstekjum fyrir skatta og bóta- greiðslur (e. market income). Ef þannig er litið á málin kemur í ljós að tekju- ójöfnuður á Islandi er sá næst minnsti meðal OECD ríkjanna. Gini-stuðullinn mældist tæplega 0,39 hér á landi og var einungis Suður-Kórea með lægri stuðul en Island. Sambærilegt hlutfall mældist 0,41 í Noregi, 0,42 í Danmörku, 0,44 í Svíþjóð og 0,50 í Finnlandi. f Bretlandi er enn meiri tekjuójöfnuður, en Gini stuðullinn var 0,53 á árinu 2014 og í Bandaríkjunum mældist stuðullinn 0,51 m.v. brúttó tekjur. Virkasta skatta- og bóta- kerfið á íslandi Ef horft er á þróunina á árabilinu 2007 - 2014 kemur í ljós að tekjuójöfnuður jókst í kjölfar alþjóðlegu fjármálakrepp- unnar á árunum 2007 - 2008 eða um 1,6 prósentustig að meðaltali hjá OECD „íslendingar virðast hafa gengið lengst í að nota skatta- og bóta- kerfi til að jafna tekjur í samfélaginu“ ríkjunum á mælikvarða brúttó tekna. Tekjuójöfnuðurinn jókst mjög mark- tækt hjá Irum og Eistum eða um liðlega 6 prósentusdg, hjá Grikkjum um tæp 7 prósentustig og hjá Spánverjum um 7,5 prósentustig. f Svíþjóð og Finnlandi jókst tekjuójöfnuður um 2 prósentustig á þessu árabili. Hér á landi jókst tekjumunur óverulega eða um 0,4 prósentustig. Ef hins vegar er horft til ráðstöf- unartekna kemur í ljós að á tímabilinu 2 VÍSBENDING • 39.TBL. 2016

x

Vísbending

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.