Loki - 15.12.1931, Síða 4

Loki - 15.12.1931, Síða 4
LAUFABRAUB . Jólin eru að nálgast. Þau koma með gleði og hátíðlegar ^ tilfinningar til allra. Hvort sem menn eru trúaðir eða ekki, ])á eiga þeir hugstæðar^og iilýjar bernsk-uminningar í sambandi við jolin. Þeir muna jólagjafir og jólatré, jólasögur og jólagleði, jolakerti og jólabrauð. Frá æsku minni er eg vanur þessu öllu. Það ^vekur hjá mér undursamlega ljúfar tilfinningar, ]oegar jólin nálgast, jafn- vel þótt eg sé f jarri bernskustöðvum mínunu ÞÓ skorti eitt á. Það var laufabrauðið. Eg sá .það aldrei í^átthögum mínum. En^eg 'neyrði' sagt frá því og las um það í fjölmörgum jólasögum. Mer fannst það eitthvað dásamlegt og heillandi. Það va,r líkt og álfagull eða suðrænar töfrajurtir. Við þær hugmyndir óx eg upp. ^Svo var það einu sinni, að eg var^í annari sveit rétt fyrir jólin. Þar var farið að baka til jólanna. Auðvitað,var kyrjað á laufabrauðinu, þvx að þar var laufabrauð., Allt fólkið vann að því af alúð og kappi. _Þar voru margir hnífar á lofti við að skera laufaskurðinn’ í kökurnar. Verkið var allmisjafnt. Sumir reyndu að ná sem mestri snilld^í handbragði og fögrum frágangi, en aðrir lögðu meira kapp á að sýna frumleik í nýjum hugmyndum og sérkennilegu útliti á skurðinum. Svona hefir verið unnið á íslandi á hverjum jólum í mörg hunaruð ár. Laufabrauðið hefir fremur öllu öðru orðið sérkenni jólamatarins íslenzka. En annaðhvort hefir það aldrei breiðzt um land allt, eða það hefir lagzt niður í sumum sveitum. En hvort sem er, þá fara þær sveitir nokkurs á mis. Þegar noklcuð af laufabrauðinu var orðið bakað, gengu allir í eldhúsið til þess að skoða, hvernig verk þeirra litu út, þegar þau komu úr^suðunni og til þess að bragðaýsrauðið. Fólkið var kátt^og hló allt í kringum mig. En eg hló ekki. Eg tók þögull og hátíðlegur við laufabrauðinu, Þsð var fyrsta lauf abrauðið, sem eg bragðaði á æfi minni. Eg neytti þess eins og trúaður maður altarissakramentis. Eg gleymdi^bæði stað og stund og fannst, að eg sæi jólagleði íslending'a öld af Öld, Eg sá inn í ^höfðingj asetur og hreysi fátæklinga. Alstaðar var laufabrauð á borðum á jólunum. Það hafði tvinnast svo jóla- helginni og ióladýrðinni, að það var orðið ríkur þáttur íótal jólasögum. I meðvitund íslenzkrar æsku hafði það orðið^eins- konar undrahlutur á vegum jólabarnsins, líkt og kertaljósin cg jólastjarnan. Eg fann naumast bragðið af brauðinu. En eg skildi sakramenti betur en nokkru sinni fyrr. Eg^varð fyrir sterkum áhrifum af lífi fólksins^í landinu míni, fólksins, sem er og var. - Eg nærðist af jólafögnuði heillar þjoðar. JÓLASVEIOT.

x

Loki

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Loki
https://timarit.is/publication/1466

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.