Framblaðið - 01.05.1932, Blaðsíða 3
FRAM —
3
Knattspyrnuráð Reykjavíkur. s&ssn*
1. marz p. á. skipaði í. S. í. pessa menn í Knattspyrnuráð Reykjavíkur til 1. jan. 1935:
Frá í. S. í. Guðmund Halldórsson, formann ráðsins.
- Fram Kjartan Ðorvarðsson og varam. Ólaf K. porvarðs., Sig. Halldórsson.
- K. R. Sigurjón Pétursson - - Sig. Halldórsson, Hans Kragh.
Val Jón Sigurðsson - - Axel Gunnars., Pétur Kristinns.
- Víking Axel Andrésson - - Pórir Kjartans., Tómas Pétursson.
Pórir Kjartansson og Erlendur Pétursson báðust undan pví að verða áfram aðalfulltrúar
félaga sinna í ráðinu sökum anna.
Hið nýja ráð er pegar tekið til starfa og liggur mikið og vandasamt verkefni fyrir pví,
er vér vonum að pví takist að ljúka á sem beztan og hagkvæmastan máta til heilla fyrir alla
aðila. Starf pess er oft erfitt og vandasamt og pvi miður lítt metið og oft vanpakkað, en vér
treystum pvi að Reykvískir knattspyrnumenn efli og treysti K. R. R., á sem beztan og drengi-
legastan hátt og pá mun knattspyrnumálunum vel farnast.
Öllum félagsmönnum
mun kunnugt að „Fram“ er ekki ríkt félag.
Meiri hluti meðlimanna er undir 18 ára aldri
og greiðir pví engin tillög til félagsins. Pess-
vegna er sjóður „Fram“ venjulega umfangs
lítill, og pó ýms önnur félög taki gjöld af
yngri deildum slnum hefur stjórn ,,Fram“
hingað til tekist að komast hjá pví að skatt-
leggja pær. Mun hún halda peirri stefnu sinni
áfram í framtíðinni, pó vitanlegt sé að pað
verður erfitt.
Aðsókn að knattspyrnukappleikum er nú
svo léleg að tekjur af mótum ná varla 100 kr.
á félag hvert, yfir árið. Hlutaveltur, sem áður
voru stærsti tekjuliður félagsins, er nú ekki
hægt að halda lengur. Stjórnin verður pví að
skora alvarlega á alla gjaldskilda meðlimi
að greiöa fljótt og skilvislega árstillög sin,
pví verið er að hrynda í framkvæmd ýmsum
merkum og nauðsynlegum málum, er verða
munu félaginu, og pá um leið öllum meðlim-
úm pess, til gagns og blessunar. Pví fé er
líka vel varið, sem veitt er til stuðnings ung-
um efnilegum æskumönnum pessa bæjar. —
„Fram“ parf ekki að benda meðlimum sínum
á skildur peirra gagnvart félagi sínu. Hverj-
um Framara er ljúft að leggja fram sinn skerf.
ípróttasamtök
FYRIR 20 árum síðan, 28. jan. 1912
var f. S. í. stofnað. Stofnendur voru nokkur
félög hér í Reykjavík, par á meðal félag vort
„Fram“. Með stofnun í. S. í. hafa íslenzkir
ípróttamenn stígið stærsta sporið til heilla lík-
amsmenningar pjóðar vorrar. Hér er ekki rúm
til að rekja allt pað er pessi samtök íprótta-
manna hafa unnið að og komið í framkvæmd,
sjálfum oss og landi voru til gagns og bless-
unar. Félagatala í. S. í. mun nú vera 120,
og meðlimatala peirra skiftir púsundum. En
Alpjóðasamband ípróttamanna, sem í. S. í.
tilheyrir, telur innan vébanda sinna um 60
miljónir karla og kvenna, sem vinna að hinu
mikla sameiginlega takmarki ípróttahreyfing-
arinnar, aukinni líkamsmenningu pjóðanna.
Markmið pessara voldugu samtaka og hvers
einstaklings innan peirra er:
Heilbrygð sál f heilbrygðum líkama.
Mætið vel á æfingum!
Æfingatafla ásamt skrá yfir öll mótin í
sumar, sækist til félagsstjórnarinnar eða
æfingastjóra á æfingum.