Framblaðið - 01.05.1932, Blaðsíða 7

Framblaðið - 01.05.1932, Blaðsíða 7
— FRAM 7 tA'naííspi/rnu-ÆvíÆmz/ncíín. Er stjórn „Fram“ réðist í pað að fá hingað knattspyrnu-kvikmynd, fyrir félegið, má segja að hafi verið stigið einna stærsta sporið í rétta átt til pess að koma knattspyrnu- æfingunum á réttan grundvöll í „Fram“. — Dað hefur verið núverandi stjórn ljóst síðan hún tók við störfum, að ekki hefur verið æft, svo sem vera skyldi. Varð hún fljótt vör við hversu erfitt pað var að koma mönnum í skylning um, hvernig réttast væri að iðka knattspytnuípróttina. — pað vildu flestir halda við hina gömlu venju hérna, að skifta liði eingöngu, og hamast svo, hver sem betur gat, svo að segja hugsunarlaust. — pað voru pví skjót ráð dýr, ef bjarga átti íramtíð félags- ins. „Og par sem sjón er sögu ríkari“, pá var álitið að kvikmynd myndi koma að beztu gagni; og var pví drifið í pví að leita að góðri kvikmynd, og gekk pað framar öllum vonum, par sem við fengum hina ágætu mynd frá Svípjóð. Hún var sýnd í fjögur skifti, bæði fyrir yngri og eldri meðlimi félagsins. Og pað hefur sýnt sig, að kvikmyndin varð okkur að ómetanlegu gagni, pví nú skilja menn fyrst verulega hvað knattspyrnan er; peir eru búnir að sjá með eigin augum, að pað er ekki nóg að vera duglegur og kappsamur, pað parf mikið meira, hugurinn verður að vera með óskiftur. Og fyrst og fremst parf hver maður að læra rétta meðferð knöttsins, hvaða aðferð á að nota, pegar spyrnt er á mark, „centrað“ skallað, knötturinn stoppaður o. sv. frv. — Og svo kemur samleikurinn og heildar leikur liðsins. Allt petta sýndi myndin ágætlega. Og nú parf ekki kennarinn lengur að vera að biðja menn um, að nota heldur pessar einu réttu aðferðir. Nú koma þeir hver af öörum og biðja hann endilega um að kenna sér hinar ýmsu œfingar, sem sýndar voru í kvikmynd- inni. Hvílík áhrif, hversu mikils má ekki vænta af pessum áhuga í framtíðinni. — Pið ungu Framarar, notið ykkur nú allir vel petta ágæta tækifæri, sem pið hafið fengið; æfið rétt, vel og dyggilega, svo pið getið orðið „Fram“ og íslandi til sóma, pegar kallið kemur til að mæta öðrum félögum eða erlendum sveitum á knattspyrnuvellinum. Setið ykkur markið hátt, og keppið að pví með heilum hug. Og pá er sigurinn vís. „Þyi enginn efast um það leng- ur, að félag framans það er „Fratn“. Einnig er vert að geta pess að „Fram“ er fyrsta félagið hér á landi, sem fengið hefur knattspyrnu-kvikmynd. Og við höfum líka látið hin knattspyrnufélögin hér njóta góðs af, og sýnt fyrir pau myndina. Má segja að „Fram“ hafi gert sitt til pess, að knattspyrnuípróttjn hér á landi geti náð sem mestum proska í framtíðinni. 0. 5E p. F7li/ív TFéla c/a r, PEIR sem ætla sér að ganga í félagið, ættu að gefa sig fram sem fyrst við einhvern úr stjórninni. í stjórn eru: Ólafur K■ Þorvarðsson, formaður Skothúsveg 7, — Sími 522. Guðmundur Halldórsson, gjaldkeri Laugaveg 130, — Símar 1813 og 1103. Kjartan Þorvarðsson, ritari Skothúsveg 7, — Sími 522. Lúðvík Þorgeirsson, varaformaður Njálsgötn 50, — Simi 2064. Harry Frederiksen, bréfritari Öldugötu 55 Aðalfundur Knattspyrnufélagsins „Fram“ verður haldinn priðjudaginn 3. maí kl. 81/2 e. h. í varð- arhúsinu. Dagskrá samkvæmt félagslögunum. Áriðandi að allir félagsmenn mœti á fundin- um. STJÓRNIN.

x

Framblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framblaðið
https://timarit.is/publication/1467

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.