Hvöt - 01.03.1954, Qupperneq 14

Hvöt - 01.03.1954, Qupperneq 14
12 H V O T Ávörp flutt í útvarpið 1. febrúar s.l. Reimar Charlesson, Sam- vinnuskólanum: A öllum öldum hefir áfengið verið eitt helzta vandamál þjóðanna, það mál, sem mest hefir verið rætt um, og ekki hvað sízt á hinum seinni árum, enda full ástæða til. Ef við lítum til baka og virð- um fyrir okkur ástandið, eins og það hefir verið á ýmsum tímum, hittum við allsstaðar fyrir lýsingar á hinum versta óvini mannkynsins, áfenginu, og þeim hörmungum er af því hefir leitt. I Sverris sögu er þess getið t. d., að Þjóð- verjar hafi flutt til 'Björgvina mikið og ódýrt vín, er leiddi til drykkjuskapar og ýmis konar ófriðar. Nokkru síðar er sagt, að Sverrir konungur hafi haft þing í bæn- um og sagði hann þá meðal annars þessi vísdómsorð: „Það er hið fyrsta, er minnst er að telja, að sá er ofdrykkjuna þýðist, þá fyrirlætur hann allan fjáraflann og tekur þar í móti ofdrykkjuna og hennar andvirði, týnir öllu fénu og glatar, því að sá maður, er áður var fullsæll af fénu, þá verður hann vesæll og válaður og fátækur, ef hann fyrirlætur hana eigi. Sá er annar löstur ofdrykkjunnar, að hún týnir öllu minninu, gleymir og því öllu, er honum væri skylt að muna. Það er hið þriðja, að þá girnist hann alla hina röngu hlutina, hræðist þá ekki að taka fé með röngu og svo konur. Sá er hinn fjórði hlutur of- drykkjunnar, að hún eggjar manninn að þola engan hlut, hvorki orð né verk, gjalda öllu í móti hálfu meira illt en til sé ógert, og þar umfram eggjar hún þess að leita lastmæla á þá, er óvaldir eru. Þessi hlutur fylgir og ofdrykkj unni, að maðurinn þreytir líkamann sinn, sem hann má, að þola vandræði, mæðast af vökunum, týna blóðinu í öllum liðum og spilla blóðinu til vanheilindis og þar með týna allri heilsunni. Og þá er svo þunglega komið að fyrirfarið er af of- drykkju allri eigunni og heilsunni. — Sömu sögu er að finna á spillingaröld Rómverja. ■— En hversu vandlega sem við leitum í sögu þjóðanna, fyrirfinnum við hvergi þvílíkar hörmungar sem nú eiga sér stað. Margir hinna hryllilegustu glæpa eru framdir í ölæði, og margur góður drengur hefir týnt æru sinni og jafnvel lífi, undir áhrifum áfengis. Þegar við nú hugleiðum ástandið, eins og það er í dag, komumst við að raun um, hversu hryggilegt það er. Ungir og efnilegir menn, er eiga sér góða og ástríka foreldra, fara að heiman með vikulaun sín í vasanum, er þeir á einu kvöldi fleygja í svall, og draga um leið sjálfa sig og félaga sína ofan í svaðið. Það er hörmulegt að vita efnilega ung- linga svo ofurselda víninu. Það er alltof algeng sjón að sjá unga pilta og stúlkur, er drekka frá sér ráð og rænu, fara með illum látum og óhljóðum, um götur höfuðstaðarins og með framferði sínu leggja framtíð sína og sálarlíf foreldra sinna, sem bíða þeirra fullir angistar og kvíða, í rústir. Frá mínum ágæta skóla, Samvinnu- skólanum, kemst ég ekki hjá því að sjá þá vorkunnarverðu sjúku menn og konur, sem dag eftir dag, hvernig sem viðrar, sitja á timburhlaða bak við áfengisverzl-

x

Hvöt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hvöt
https://timarit.is/publication/1472

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.