Hvöt - 01.03.1954, Page 16
asta háð hér í Reykjavík 30. nóvember og
1. desember í haust. A þeim fundi komu
fram raddir um, að Samband bindindis-
félaga í skólum þyrfti að hafa með hönd-
um tvíþætta baráttu gegn áfengisbölinu,
það er að segja, öfluga bindindisstarfsemi
í framhaldsskólum og hagnýta fram-
kvæmd áfengisvarna yfirleitt. Sambandið
hugðist með þessu móti geta fært út verk-
svið sitt og aðstoðað rikisvaldið í einhverju
mesta vandamáli okkar tíma, en það
er meðferð og lækning drykkjusjúkra
manna.
22. þing Sambands bindindisfélaga í
skólum samþykkti því ályktun þess efnis
að þar sem ríkisvaldið hefði ár eftir ár
brugðizt þeirri skyldu sinni að reisa hæl
fyrr ofdrykkjusjúklinga, þrátt fyrir brýna
og auðsæja nauðsyn, og þar sem bæði
einstaklingar og ýmis félagssamtök myndu
vera reiðubúin til þess að hefjast handa
í þessu nauðsynjamáli svo það eitt virtist
vanta, að einhver yrði til að hefja merkið
á loft, að taka að sér forustuna um sinn
um byggingu heilsuhælis fyrir áfengis-
sjúklinga, meðal annars með því að skipu-
leggja og sjá um almenna fjársöfnun í
landinu í því skyni.
Sambandsþingið samþykkti að kjósa
11 manna ráð til þess að hefja undirbún-
ing málsins og skipuleggja frekari fram-
kvæmdir.
Síðan leið nokkur stund. Alþingi var
að störfum og tók í þinglokin snöggt við-
bragð og samþykkti rétt fyrir jólin, að
ríkið skyldi reisa og reka gæzluvistar-
heimili fyrir drykkjusjúkt fólk.
Um líkt leyti var áður nefnt 11 manna
ráð að leggja síðustu hönd á bréf, sem
senda átti til allra skólastjóra á landinu,
þar sem þeir voru beðnir að gangast fyrir
fjársöfnun hver í sínum skóla og byggðar-
lagi. Var það ætlunin, þar eð skólaæskan
átti upptökin að máli þessu, að hefja söfn-
unina innan skólanna, en færa hana síðan
út til allra landsmanna.
Nú gæti mörgum virzt að þar sem
alþingi hefði samþykkt áðurnefnd lög,
sem heimiluðu ríkisstjórninni að reisa og
reka gæzluvistarhæli fyrir áfengissj úkl-
inga„ þá væri þess engin þörf, að Samband
bindindisfélaga í skólum starfaði meira
að málinu, það væri komið í hendur þess
aðila sem fjárhagslega séð gæti bezt
hrundið því í framkvæmd og stæði því
næst. Það er alveg rétt, enginn á betra
með að hrinda því í framkvæmd og eng-
inn stendur því nær heldur en ríkissjóður
sem hefur — eftir því sem ég kemst næst
— yfir 70 milljónir króna tekjur af
áfengissölu árlega.
Samband bindindisfélaga í skólum var
stofnað til að útbreiða bindindi, og bind-
indisboðun er og verður aðalverkefni
þess, en því raunhæfari sem starfsemi þess
er gegn áfengisbölinu, því betri hljóm-
grunn fær það fyrir starfsemi sína.
Eftir að alþingi hafði samþykkt þessi
lög, þóttist sambandið ekki geta haldið
málinu áfram á sama grundvelli, en vildi
þó sýna óbreyttan hug til þess með ein-
hverjum raunhæfum stuðningi.
Sambandið hyggst því ekki, þrátt fyrir
samþykkt Alþingis, hætta með öllu við
áðurnefnda fjársöfnun, heldur binda
hana eingöngu við framhaldsskólana.
Sambandið tekur það fram, að með þess-
ari fjársöfnun er það á engan hátt að lýsa
vantrausti á ríkisstjórnina né ásaka hana
um viljaleysi til framkvæmda í málinu.
Heldur vill það sýna ríkisstjórninni og
öllum landsmönnum einlægan vilja sinn
til alls, sem til góðs mætti verða í þessu
viðkvæma máli. Að vísu eru ekki allir