Austri - 12.09.1985, Síða 5
Egilsstöðum, 12. september 1985.
AUSTRI
5
og skugginn minn
starfaði af miklum krafti um árabil undir stjórn Magnúsar Magnússonar,
'yrir miðju í fremstu röð. Björn er 4. frá hægri í miðröðinni.
•raðsmyndir.)
50-60%, en taxti hreinsunarinnar
er háður verðlagseftirliti.
■ Hvað kostar að láta hreinsa
föt?
□ Það kostar 385 krónur að
hreinsa jakka, buxur og vesti. Ef
þið hafið auk þess hellt niður í
bindið þá bætast 70 krónurviðfyrir
hreinsun á því. Annars lifi ég alls
ekki af þessu. Konan mín vinnur í
Dyngju auk þess sem ég er að
vinna fyrir Vörubílstjórafélagið og
er með umboð fyrir happdrætti.
Við höfum komist af með þetta en
það er ósköp lítið umfram það. Við
eigum tvær dætur sem eru í skóla
og það vita allir að þó þetta skóla-
fólk vinni eins og það getur í þessa
3 mánuði á sumrin, þá hrekkur
það hvergi nærri til. Við reynum að
koma þarna eitthvað til hjálpar.
■ Þú starfar enn fyrir Vöru-
bílstjórafélagið?
□ Ég var formaður þess um
skeið og hef verið flæktur við það
síðan þó ég sé nú hættur for-
mennsku þar. Ég vinn dálítið fyrir
félagið eins og ég sagði áðan og
ég á sæti í stjórn Landsambands
vörubifreiðarstjóra.
■ Söngur hefur alitaf verið
þér mikið áhugamál. Hvert er
fyrsta lagið, sem þú söngst?
□ Fyrsta lagið og vísan, sem
mér er sagt að ég hafi heyrst
syngja, er “Nú er hlátur nývakinn".
Þannig var að frændi minn,
Björn Björnsson á Stóra-Steins-
vaði, kom oft í Tjarnarland. Hann
tók mig þá stundum á hné sér og
söng þessa vísu við mig en hann
var mikill og góður söngmaður.
Mér hefur sennilega fallið þetta
heldur vel því að móðir mín sagði
mér að þetta hefði verið fyrsta
vísan, sem ég hefði sungið. En
það fyrsta, sem ég man eftir söng,
var sú árátta á mér að fara alltaf
að syngja þegar ég átti að fara að
sofa á kvöldin. Mamma var alltaf
að biðja mig að hætta þessu og ég
lofaði öllu fögru en var svo byrj-
aður aftur eftir stutta stund. Ég
heyrði mömmu líka einhvern tím-
ann segja að þeir, sem syngju í
rúminu, myndu halda fram hjá
konunni sinni svo það er víst best
að Petra heyri þetta ekki. En ég
var sí og æ sönglandi.
Fljótlega eftir fermingu byrjaði
ég að syngja í Hjaltastaðarkirkju
en þá voru engir skipulegir kirkju-
kórar heldur var hnippt í þá sem
höfðu lag og þeir beðnir að syngja.
Þá var sungið einraddað. Ein-
hverjir hinna eldri kunnu kannski
eitthvert hrafl í bassa og sungu
það en ég söng alltaf lagið með
kvenfólkinu.
Óskar heitinn Halldórsson frá
Kóreksstaðagerði spilaði eftir nót-
um og hann var fenginn til að spila
á orgelið í kirkjunni á Hjaltastað
þegar organistinn þar flutti burtu.
Við Óskar og bræður hans tveir,
Einar og Þór, mynduðum kvartett
og sungum raddað við ferming-
armessu þarna. Slíkt hafði aldrei
heyrst þar í kirkjunni og fólkið var
bara ánægt með þetta.
Síðan hefur söngurinn fylgt mér
eins og skugginn minn. í Hlíðinni
var ég í kvartett og svo í tvöföldum
kvartettog ég söng í kirkjunni þar.
Eftir að ég kom í Egilsstaði var
ég einn af stofnendum kirkjukórs-
ins þegar hann var stofnaður og
söng í honum í 23 ár. Svo var
stofnaður karlakór - sá eldri - og ég
söng alltaf með honum. Ég var
líka í stjórn tónlistarfélagsins,
sem hér var stofnað, og átti þátt í
því að ráða hingað tónlistar-
kennara og koma á fót tónlistar-
skóla en það lögðu margir hönd á
þann plóg, Magnús Einarsson og
fleiri. Karlakórsmenn skömmuðu
mig í fyrstu fyrir að hafa ráðið
Magnús Magnússon í starfið því
hann vildi ekki stjórna karlakórn-
um. Ég taldi hins vegar að byggð-
arlagið mætti ekki líða fyrir það
því skólinn væri aðalmarkmiðið
þótt auðvitað væri brýnt að fá ein-
hvern til að stjórna kórnum.
Karlakórinn lognaðist svo út af
en var endurreistur fyrir tveimur
árum og auðvitað þurfti ég að taka
þátt í því og er reyndar formaður
hans sem stendur. Hann hefur
starfað ágætlega yfir vetrartím-
ann. Við höfum líka sungið í ná-
grannasveitarfélögunum með
misjöfnum árangri. Aðsóknin þar
fer mikið eftir því hvernig maður
hittir á, hvort mikið er að gera í fiski
eða ekki.
Einu sinni var Jón Þórarinsson,
tónskáld, hjá okkur í mánaðartíma
og æfði okkur, eldri kórinn. Þá
fórum við til Reyðarfjarðar og að-
sóknin var dræm og við vorum allt-
af að gægjast fram fyrir tjöldin og
vorum orðnir ansi áhyggjufullir og
urðum fyrir vonbrigðum því við
höfðum auglýst að Jón væri söng-
stjóri. Hann sagði okkur að vera
rólegum því að á meðan áheyr-
endur væru ekki mikið færri en
söngmennirnir væri ekki ástæða
til að kvarta. Hann sagðist hafa
verið þarna með symfóníuhljóm-
sveitinni fyrir nokkrum árum og
þeir hefðu fengið 6 áheyrendur.
Við fengum svo 27 í þetta skiptið
en sumir þeirra voru raunar ofan af
Héraði.
Mig langar að segja ykkur frá
því að fyrir nokkrum árum var ég
á íþróttamóti á Eiðum. Þá var m.a.
kallaður upp Björn Pálsson til að
veita viðtöku verðlaunum í kúlu-
varpi. Þá heyrði ég að einhver
segir fyrir aftan mig: “Björn
Pálsson? Ætli það sé Björn
söngur?" En þá gekk fram vörpu-
legur maður, Björn Pálsson frá
Stöðvarfirði, og tók á móti verð-
laununum. En það var áreiðan-
lega ekki hann sem hafði viður-
nefnið söngur.
■ Datt þér aldrei í hug að fara
út í söngnám?
□ Ég held ég hafi aldrei leitt hug-
ann að því. Mig langaði til að læra
eitthvað meira um það hvernig ég
ætti að fara með röddina en ég
leiddi aldrei hugann að löngu
söngnámi fyrr en menn fóru að
spyrja mig að því þegar ég var
orðinn fullorðinn af hverju ég hefði
ekki tekið mérslíktfyrirhendur. En
ætli mér hefði liðið betur að ráði
þótt ég hefði farið út í langt
söngnám. Er ekki fullt á þeim
markaði líka?
Þegar ég var á Laugarvatni þá
tók Þórður Kristleifsson mig dálítið
að sér og kenndi mér talsvert um
það hvernig ég ætti að beita rödd-
inni og ég hafði gott af þessu.
Þórður var bæði með karlakór og
blandaðan kór og ég var auðvitað
í báðum. Mér er minnisstætt að
eitt sinn á æfingu stökk Þórður upp
á stól, lamdi saman hnefunum og
hrópaði: “Ég bað um söng, ekki
öskur.“ Ég er ekki viss um nema
farið hafi um suma þegar karlinn
var í þessum ham.
Þórarinn Þórarinsson á Eiðum
leiðbeindi mér líka mikið í þessum
efnum. Hann var mikill söngmaður
og stjórnandi.
■ Þú tefldir talsvert?
□ Ég hef alveg óskaplega
gaman af að hæla mér af því að
hafa teflt þrjár kappskákir fyrir Eg-
ilsstaði, tvisvar við Fáskrúðsfirð-
inga og einu sinni við Eiðaskóla og
Eiðamenn. Ég vann allar þessar
skákir. Þetta er ekkert grobb því
þetta er alveg satt.
■ Hefur þér gengið eins vel í
Bridgeinu?
□ Þar hefur nú gengið á ýmsu
en ég er ekkert óánægður. Sveit,
sem ég var í, varð eitt sinn Austur-
landsmeistari í sveitakeppni og
eitt sinn varð hún í öðru sæti.
■ Þú hefur tekið mikinn þátt í
félagsstarfi bridgemanna og ert
forseti Bribgesambands Aust-
urlands. Fer áhugi á spilinu vax-
andi?
□ Áhuginn virðist vera mikill en
ég hefði þó viljað sjá fleiri nýliða
einkum úr hópi hinna yngri. Kjör-
tímabil forseta Bridgesambands
Austurlands er 3 ár og mitt rennur
út í vor. Ég held ég megi segja að
starfssemin hafi frekar aukist
heldur en hitt. Aðalþættirnir hafa
verið Austurlandsmót í tvímenn-
ingi á haustin og sveitakeppni á
vorin. Nú hefur sambandinu verið
valin ný stjórn, sem mér var falið
að mynda á síðasta aðalfundi í
samráði við bridgefélögin í ná-
grenninu. Ég hygg að þar hafi vel
til tekist, hún fór vel af stað og
gerði góðan hlut þegar hún stóð
fyrir opna mótinu á Hallormsstað
á dögunum. Þátttakendur Voru
ánægðir og mér er sagt að sumir
þeirra hafi viljað skrá sig í mótið
næsta ár þarna á staðnum, Mér
segir svo hugur um að Hallorms-
staðarmót verði árlegur viðburður
í starfi Bridgesambands Austur-
lands.
ME/SH
Legsteinar
granít — marmari
Opið alla daga,
einnig kvöld
og helgar.
Hringið og biðjið
um bækling.
íumii > l
Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi
Sími620809
Innilegar þakkir til allra sem sendu mér
kveðjur og gjafir á sjötugs afmœli mínu.
Lifið heil.
Haraldur Magnússon.
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
bróður okkar Inga S. Sigmundssonar Matariðj-
unni Egilsstöðum.
Guðrún Sigmundsdóttir
Guðríður Sigmundsdóttir
Stefán Sigmundsson
Jóhann Sigmundsson
Sigrún Sigmundsdóttir
Sveinlaug Sigmundsdóttir
Árnína H. Sigmundsdóttir
Norðfirðingar - Nágrannar
Athugið breyttan opnunartíma.
Opið alla laugardaga 10 - 12.
-i-
NESllf APÓTEK
©7118 Neskaupstað,
EimSalt Ífc
Hvaleyrarbraut • Hafnarfirði • Sími 52166
Lausar stöður
við sjúkrahúsiðá Egilsstöðum.
Leiðbeinandi við föndur/handavinnu, 1/2 staða
frá 15. okt. nk. Upplýsingar gefur hjúkrunarfor-
stjóri í síma 97-1631/1400.
Sjúkraþjálfari, 1/i staða. Mótandi starf, ný að-
staða tekin í notkun bráðlega. Upplýsingar
gefur Gunnsteinn Stefánsson, yfirlæknir, í síma
97-1400.
Skrifstofumaður/launafulltrúi 1/i staða. Bók-
haldsþekking nauðsynleg. Upplýsingar gefnar
í síma 97-1386.