Austri


Austri - 12.09.1985, Blaðsíða 7

Austri - 12.09.1985, Blaðsíða 7
Egilsstöðum, 12. september 1985. AUSTRI 7 Námskeið í verkstjórnun Námskeið í verkstjórnar- fræðum verður haldið í Nes- kaupstað dagana 1. -4. október 1985. Að sögn Guðjóns Marteins- sonar formanns Verkstjórnarfél- ags Austurlands er námskeiðið haldið á vegum „Verkstjórnar- fræðslunnar" en sá aðili býður um þessar mundir upp á fjölþætt námskeið í verkstjórnarfræðum. Um er að ræða fimm áfanga námskeið þar sem fyrir eru teknir þættir á borð við skipulagstækni og áætlanagerð, vinnuum- hverfismál, vinnurannsóknir og stjórnun. Fyrsti áfanginn, sem fjallar um undirstöðuatriði í stjórnun og mannlegum samskiptum er við- fangsefnið á fyrrgreindu nám- skeiði. Félagssvæði Verkstjórafélags Austurlands spannar yfir svæði og tilkynna sem fyrst til „Verk- stjórnarfræðslunnar", Iðntækni- stofnun íslands, Keldnaholti í Reykjavík en þar eru símar 687000 og 687009. Sams konar námskeið og hér hefur verið rætt um verður haldið á Höfn í Hornafirði vorið 1986. Verkstjórafélag Austurlands var stofnað árið 1959 og auk mennt- unarmála fer félagið með öll þau mál er snerta hagsmuni stéttar- innar svo sem kjaramál. Félagið er aðili að öflugum sjúkrasjóði og orlofsheimilasjóði og á nú þrjú orlofshús í Gilsár- stekkslandi í Breiðdal. Eins og fyrr segir eru félagar um 120 og er þess vænst, að verk- stjórar í fjórðungnum, sem enn standa utan félagsins gangi til liðs við það, en það er forsenda meiri- háttar átaka í þágu stéttarinnar. Stjórn Verkstjórafélags Austur- Myndin er tekin á verkstjómarnámskeiði, sem haldið var í Neskaupstað árið 1982. Lengst til hægri er Guðjón Marteinsson form. Verkstj.f. Austurlands. frá Raufarhöfn til Hafnar í Horna- firði og eru félagsmenn um 120. Aðspurður sagði Guðjón, að þátttaka í námskeiðinu væri ekki einvörðungu bundin við félags- menn. Það væri opið öllum sem áhuga hefðu á verkstjórnun. Vildi hann hvetja sem flesta til þátttöku lands skipa þeir Guðjón Marteins- son Neskaupstað formaður, Ás- geir Ámundason Seyðisfirði vara- formaður, Óskar Þórarinsson Seyðisfirði ritari, Steinar Guð- mundsson Stöðvarfirði gjaldkeri og Kristján Björgvinsson Reyðar- firði meðstjórnandi. q s. Egilsstaðakirkja Sunnudaginn 15. september. Messa kl. 11.00. Atvinna Starfsfólk vantar til afgreiðslustarfa á Pósthúsinu Egilsstöðum. Einnig vantar bréfbera í hálft starf. Upplýsingar í síma 97-1101 Stöðvarstjóri. Frá Eskifirði. Frá lesendum: Léleg útvarpsskilyrði Einar Kristjánsson á Eskifirði hafði samband við blaðið og vildi koma á framfæri óánægju sinni með útvarpsmál þeirra Eskfirðinga. Kvað Einar FM rás varla nást á öllum stöðum í bænum og einnig væri mjög erfitt að eiga við FM í bíltækj- um. Eins heyrðist rás 2 mjög illa þarna. Austri hafði samband við Harald Sigurðsson, yfirtækni- fræðing Pósts & síma, en sú stofnun hefur með dreifingu sjónvarps- og útvarpsefnis að gera. Haraldur kvað allveru- legar bætur í vændum á árinu 1986 og yrði unnið að endur- bótum um Austfirði á því og síðan áfram eins og fjármagn væri til. Annars yrði alltaf erfitt að þjóna fjörðunum svo mjög gott yrði vegna þess hve þröngir þeir væru og endur- varpsstöðvarnar þyrftu að vera svo margar og fullkomnar. Har- aldur kvað eldri FM búnað sem settur hefði verið upp fyrir nokkrum árum einnig vera í endurnýjun og miðaði þessum framkvæmdum því alltaf í rétta átt. Eskifjörður: Bónusverk- fall hafið Loðnuveiðar hófust 15. ágúst síðastliðinn og var loðnan þá við Jan Mayen. Um 14200 tonn hafa borist á land á Eskifirði og hefur aflinn verið bræddur jafnóðum. Guðrún Þorkelsdóttir, sem er eign hraðfrystihússins, hefur lagt hér upp allan sinn afla en 18 - 20 skip eru farin á loðnuveiðar af þeim 48 sem fá úthlutað loðnukvóta. Jón Kjartansson var á rækjuveiðum og á að breyta honum yfir á loðnu. Bónusverkfall hófst í dag (9. sept.) í frystihúsinu og nær það til um70manns. Ekki er fyllilega Ijóst svona á fyrsta degi hver áhrif þess verða að þó liggur í augum uppi að verulega mun draga úr afköstum. Auk þess mun kaupfélagið hætta að taka á móti afla vegna slátrun- ar. Ekki er vitað að svo stöddu hvort togararnir verða látnir sigla með aflann. ET Hornafjörður: Flugvéla- kaup Mikil gróska er í nýstofn- uðum flugklúbb á Hornafirði. í honum eru 17 einstaklingar og hafa 8 þeirra nú fest kaup áflugvélinniTF-KLG, sem er Cessna 152, tveggja sæta, árgerð 1978. [ sumar hefur Gísli Sigur- jónsson, flugkennari, verið á staðnum með þessa vél og kennt Hornfirðingum að fljúga og eru 6 klúbbfélagar nú komnir með sólópróf og nokkrir að auki eru rétt að ná því takmarki. MÞ Orðsending til bænda í Múlasýslum Frá og með 1. september 1985 verður viðtalstími við bændur vegna undirbún- ings bygginga í sveitum á mánudögum og þriðjudögum frá kl. 9.00 - 12.00 á skrifstofunni að Selási 15. Skipulagsstofa Austurlands Þórhallur Pálsson Veiðarfærí Verkfærí / Vinnufatnaður Hvers vegna að leita langt yfir skammt? VIÐ HÖFUM: Veiðarfæri fyrir togara jafnt sem trillur. Verkfæri og alls kyns útgerðarvörur. Vinnufatnað fyrir sjómenn og landverkafólk. Eflum austfirskt atvinnulíf. Verslun SÚN NESKAUPSTAÐ

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.