Austri - 22.03.1990, Blaðsíða 1
í helgarmatinn á tilboðsverði:
India panna (svínakjöt) ............. kr. 680.- kg
Kryddaðar hnakkasneiðar (svínakjöt) . kr. 680,- kg
Pepsi Cola 2 1...........kr. 146.-
Pepsi Cola 1.51..........kr. 135.-
Sanitas pilsner 0.51.....kr. 65.-
Opið laugardaga frá 10 til 14.
Kaupfélag Héraðsbúa
matvörudeild - Egilsstöðum
Seyðisfjörður:
Hlutafélag stofnað um
fiskvinnslu og útgerð
Egilsstaðir:
Prjónastofa
s
í
burðarliðnum?
Sunnudaginn 18. mars sl. var
haldinn stofnfundur nýs almenn-
ingshlutafélags á Seyðisfirði.
Hlutafélagið fékk nafnið Flanni
hf., en það dregur nafn sitt af
samnefndu fjalli við Seyðisfjörð.
Að sögn Magnúsar Guðmunds-
sonar, sem er varaformaður
félagsins, er markmið þess að
reka útgerð og fiskverkun og
skylda starfsemi á Seyðisfirði og
hefur mikil vinna verið lögð í
undirbúning að stofnun félagsins.
í stjórn félagsins voru kosin
Jónas Hallgrímsson formaður,
Magnús Guðmundsson varafor-
maður, Pórdís Bergsdóttir,
Bjarney Emilsdótir og Páll
Ágústsson.
Á stofnfundinum voru að sögn
Magnúsar staðfest hlutafjárfram-
lög að upphæð 37.160.000. Er
Bæjarsjóður Seyðisfjarðarkaup-
staðar þar með 15 milljóna króna
hlut og Hafnarsjóður með 5 millj-
ónir og einnig eru margir einstakl-
ingar með minni hluti. Er algengt
að einstaklingar hafi lagt fram
100.000 króna hlut.
Magnús Guðmundsson sagði,
að vonast væri eftir að álíka upp-
hæð til viðbótar bættist við þetta
hlutafé á næstunni, en stjórn
félagsins hefði heimildir til að
auka hlutaféð allt upp í 200 millj-
ónir króna. Sagði hann að t.d.
væri fastlega vonast til að fyrir-
tækið Otto Wathne hf. og Verka-
lýðsfélag Seyðisfjarðar og fleiri
ættu eftir að leggja fram hlutafé,
sem munaði um. Einnig væri
reiknað með að Kaupfélag Hér-
aðsbúa legði fram hlutafé.
Jörundur Ragnarsson kaupfélags-
stjóri staðfesti það í samtali við
Austra, að Kaupfélag Héraðsbúa
myndi verða með í þessu félagi og
leggja fram eitthvert hlutafé, en
óákveðið væri ennþá, hve mikið
það yrði.
Magnús Guðmundsson sagði,
að aðalverkefni stjórnar hins nýja
félags yrðu nú að finna skip, sem
félagið ætti, sem myndi leggja
grunn að hráefnisöflun fyrir fisk-
verkun hjá félaginu ásamt vilyrði
um afla frá öðrum útgerðar-
mönnum í bænum. Einnig þyrftu
þeir að komast yfir aðstöðu í
landi til fiskverkunar. Horfa
menn þá einkum til fiskverkunar-
húss þrotabús Fiskvinnslunnar
hf., sem nú er til meðferðar hjá
skiptastjóra þrotabúsins. Sagði
Magnús, að félagið ætti eins og
aðrir möguleika á að reyna með
einum eða öðrum hætti að eignast
eða leigja eignir þrotabúsins.
Einnig þyrfti félagið að ráð fram-
kvæmdastjóra og eru menn byrj-
aðir að huga að því máli. En aðal-
atriðið er að reyna að koma fisk-
vinnslunni aftur af stað sem fyrst.
Að sögn Magnúsar eru nú um
80 manns atvinnulausir á Seyðis-
firði. Báðir togarar Seyðfirðinga,
Otto Wathne og Gullver, hafa
siglt með allan afla sinn frá ára-
mótum og afli minni báta hefur
verið seldur óunninn í gámum til
útlanda þar sem engin fiskverkun
hefur verið á staðnum. Pví er
mikið í húfi að þessu nýja fyrir-
tæki takist að koma fiskverkun-
inni af stað aftur sem fyrst.
G.I.
Á vegum Bæjarstjórnar Egils-
staða standa nú yfir athuganir á
því hvort vænlegt þyki að endur-
reisa prjónaiðnaðinn í bænum. í
því sambandi er horft til tækja og
húsnæðis Prjónastofunnar
Dyngju sem starfrækt var á Egils-
stöðum um árabil.
Rekstur Prjónastofunnar
Dyngju h/f lognaðist útaf fyrir um
tveimur árum samfara verkefna-
skorti og lágu heimsmarkaðsverði
á prjónaflíkum. Skömmu áður en
prjónastofan hætti rekstri unnu 30
manns hjá fyrirtækinu og eignað-
ist Iðnlánasjóður tæki og húsnæði
Dyngju í kjölfar gjaldþrots fyrir-
tækisins. Nú eru uppi hugmyndir
um að leita samninga við sjóðinn
um kaup eða leigu þrotabúsins.
Fari svo að fýsilegt þyki að
setja á laggirnar prjónastofu á
Egilsstöðum að nýju mun að lík-
indum verða stofnað nýtt hluta-
félag um reksturinn og er hug-
myndin sú að byrja í mjög smáum
stíl. Gert er ráð fyrir að til að
byrja með muni fjöldi starfs-
manna aðeins verða þrír til fimm.
Þegar hafa verið gerðar lauslegar
rekstrar- og markaðsathuganir og
gefa niðurstöður þeirra nokkra
ástæðu til bjartsýni. Mál þetta
ætti að skýrast á næstu dögum og
vikum, en miðað við þær upplýs-
ingar sem fyrir liggja í dag gætir
bjartsýni á að prjónastofu verði
komið á laggirnar á ný á Egils-
stöðum.
B.
Fj árhagsáætlun Vopnafj arðarhrepps:
Heildartekjur
Egilsstaðir:
Aflamiðlun fyrir Austurland
Fyrirtækið Mark hf. á Egils-
stöðum tekið að sér að annast
aflamiðlun fyrir sjómenn, útgerðar-
menn og fiskverkendur á Austur-
landi og jafnvel víðar.
Að sögn Asmundar Richards-
sonar hjá Mark hf. felst þessi
aflamiðlun í því, að væntanlegir
kaupendur leggja fram banka-
tryggingu fyrir væntanlegum
kaupum fyrir ákveðið tímabil,
t.d. hálfan mánuð í senn. Mark
hf. mun síðan leita eftir fiski til
sölu, er þá einkum leitað eftir
afla, sem annars yrði væntanlega
seldur óunninn til útlanda. Mark
hf. miðlar svo upplýsingum um
þetta til þeirra, sem vilja kaupa
og hafa lagt fram bankatryggingu.
Er það aðallega gert með síma-
faxi.
Einnig geta sjómenn eða
útgerðarmenn haft samband við
Mark hf. og boðið afla til sölu og
miðlar fyrirtækið þá upplýsingum
um það til hugsanlegra kaupenda.
Kaupandi sækir síðan fiskinn, ef
af kaupum verður, þangað sem
honum er landað, eða á þann stað
sem kaupandi og seljandi koma
sér saman um.
Ásmundur sagði, að frum-
kvæðið að þessari aflamiðlun
hefði komið frá útgerðarmönnum
og framleiðendum fiskafurða.
Hann sagði, að með þesari afla-
miðlun væri einkum stefnt að því
að ná í þann fisk, sem selja ætti úr
landi óunninn, þannig að
mönnum gæfist kostur á að bjóða
í hann, án þess að á nokkurn hátt
væru skertir möguleikar útgerð-
armanna eða sjómanna til að selja
fisk erlendis. Hann kvaðst búast
við að aflamiðlunin færi hægt af
stað, enda hefði verð á fiski verið
nokkuð hátt erlendis að undan-
förnu. Menn ættu einnig eftir að
kynnast þeim nýju möguleikum
sem þessi aflamiðlun býður upp á.
Reiknað er með að byrjað
verði að selja fisk í gegnum afla-
miðlunina í þessari viku. Eins og
fyrr segir, er upplýsingum miðlað
með faxi og einnig i gegnum síma,
en seljendur aflans greiða
kostnað, sem af aflamiðluninni
hlýst. Ekki er þó um neinn sér-
stakan stofnkostnað að ræða í
þessu sambandi. g.i.
Á þessari mynd sést eldra hús Hjálparsveitar skáta á Fljótsdals-
héraði, sem Grétar Brynjólfsson og Þórunn Sigurðardóttir á
Skipalæk í Fellum keyptu af Hjálparsveitinni. Hyggjast þau nýta
húsið fyrir gistingu ferðamanna í tengslum við ferðaþjónustu
bænda, sem þau reka á Skipalæk. Trésmiðja Fljótsdalshéraðs mun
innrétta húsið en það verður staðsett við tjaldstæðið í Fellahreppi.
Átta til tíu manns munu geta gist í húsinu en þar verður setustofa
með sjónvarpi, baðaðstaða og eldhúsaðstaða, rafmagn og líklega
heitt vatn. Húsið er 64 m2 og með þessari viðbót geta þau Pórunn
og Grétar tekið á móti 40 til 50 manns í gistingu í sumarhúsum og/
eða svefnpokaplássum. Með breytingum og lagfæringum á húsinu
er hér um að ræða fjárfestingu upp á hátt í tvær milljónir króna.
83.2 milljónir
í síðustu viku var fjárhags-
áætlun Vopnafjarðarhrepps
afgreidd til síðari umræðu.
Að sögn Sveins Guðmundsson-
ar, sveitarstjóra á Vopnafirði, eru
heildartekjur sveitarfélagsins á
þessu ári áætlaðar samtals 83.2
milljónir króna.
Helstu tekjurliðir eru útsvör,
sem áætluð eru 44.5 milljónir
króna, aðstöðugjöld 9.7 milljónir,
fasteignaskattar 10.2 milljónir og
framlag úr jöfnunarsjóði sveitar-
félag er áætlað 14.8 milljónir
króna.
Helstu gjaldaliðir eru
fræðslumál (rekstur grunnskóla,
tónlistarskóla, íþróttahúss o.fl.)
15.5 milljónir, þar af er rekstur
grunnskóla áætlaður um 9.5 millj-
ónir króna. Til gatnagerðar og
vegamála eru áætlaðar 7.5 millj-
ónir, til yfirstjórnar sveitarfélags-
ins og reksturs hreppsskrifstofu
7.3 milljónir og til greiðslu vaxta
og afborgana af lánum er áætlað
að verja um 9.0 milljónum króna.
Til félags- og menningarmála á að
verja 3.5 milljónum.
Til eignabreytinga er síðan gert
ráð fyrir samtals 27.6 milljónum
króna. Má þar nefna, að gert er
ráð fyrir 7 milljón króna framlagi
til fyrirtækjanna Tanga hf. og
Kolbeinstanga hf. Pví til viðbótar
er svo gert ráð fyrir að taka lán til
aðstoðar þessum fyrirtækjum. Pá
er gert ráð fyrir að halda áfram
byggingu leikskóla. Er áætlað að
verja til þess 5 milljónum króna
og stefnt að því að gera hann fok-
heldan á þessu ári. Einnig verður
unnið við endurbætur á grunn-
skólanum fyrir 6 milljónir króna.
Til gangstéttagerðar og frá-
gangs fara 3 milljónir króna og til
að ljúka við gerð malarvallar fyrir
íþróttir verður varið 2.5 millj-
ónum króna. Sveitarfélagið
verður hins vegar ekki með
neinar íbúðir í byggingu á sínum
vegum á þessu ári. Að sögn
Sveins Guðmundssonar sveitar-
stjóra eru þeir með byggingar-
hæfar lóðir tilbúnar, en engin
eftirspurn er nú eftir lóðum á
Vopnafirði.
Sveinn Guðmundsson taldi, að
breytingar á verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga og breytingar á
tekjustofnum sveitarfélaga, sem
koma til framkvæmda á þessu ári,
væru til verulegra bóta frá því
sem áður var. Menn sæju nú fram
á betri tíð, enda væri þetta allt
önnur staða nú eftir þessar breyt-
ingar.
G.I.
Vj5I,
hjá brunaliðinu?