Austri - 22.03.1990, Blaðsíða 3
Egilsstöðum, 22. mars 1990.
AUSTRI
3
Egilsstaðir:
Frönsk myndasýning
Síðastliðinn föstudag var
menningarfulltrúi við franska
sendiráðið í Reykjavík, Philip
Gererd, í heimsókn í Mennta-
skólanum á Egilsstöðum. Sýndi
hann þar skuggamyndir af
nokkrum helstu mannvirkjum,
sem Frakkar hafa reist og tekin
hafa verið í notkun í París eftir
1980. Hann sýndi fyrst kort af
París er sýndi staðsetningu þess-
ara bygginga, og gat um þær
helstu, en sagði síðan nánar frá
fjórum byggingum og sýndi
myndir af þeim. Par má fyrst
nefna stækkun Louvre-safnsins,
en byggð var við það píramída-
laga bygging, sem er mjög til-
komumikil. Aðeins er þó 1/3 hluti
byggingarinnar ofanjarðar, en 2/3
hlutar eru neðanjarðar og er þar
safn.
Pá voru sýndar myndir frá
mikilli menningarmiðstöð araba-
ríkja, sem Frakkar hafa reist, en
20 arabaríki standa að þeirri
stofnun. Starfsemi hennar er bæði
menningar- og tæknilegs eðlis.
Hafa tengsl Frakka við mörg
arabaríki verið mikil á liðnum
öldum, bæði pólitískt og menn-
ingarlega, enda voru mörg þeirra
áður annað hvort verndarríki
Frakka eða nýlendur. Einnig voru
sýndar myndir af nýju óperuhúsi,
sem verið er að taka í notkun í
Paris um þessar mundir og nýjum
sigurboga svo það helsta sé nefnt.
Frönskukennari skólans,
Petrína Rós Karlsdóttir, hafði
frumkvæði að þessari sýningu, en
hún kom heim frá námi í Frakk-
landi á síðasta ári eftir 13 ára dvöl
þar. Hún kvaðst vilja reyna að
stuðla að meiri kynnum Frakka
og íslendinga og kynna franska
menningu hér. Kvaðst hún eiga
von á nokkrum 16 mm frönskum
myndum á næstunni, sem mein-
ingin er að sýna hér, en franski
menningarfulltrúinn var einnig
hér á frönsku menningarkvöldi í
Menntaskólanum í október síð-
astliðnum.
G.I.
Skýring við frétt af fundi um
sveitarstjórnarmál á Héraði
í frétt af fundi um sveitarstjórn-
armál á Héraði í Austra þann
4.03. sl. er m.a. eftir mér haft að
“engin rök væru fyrir því að fækka
sveitarfélögum og væri það bein-
línis háskalegt."
Petta finnst mér gefa villandi
mynd af málflutningi mínum. í
framsöguræðu minni taldi ég fram
kosti og galla sameiningar, en
niðurstaða mín var sú að gallarnir
væru þyngri á metunum og kost-
unum mætti ná fram með endur-
bótum á samstarfi.
Hins vegar deildi ég hart á
stjórnvöld fyrir þann langvinna
þrýsting sem haldið er uppi á sveit-
arhreppa um að þeir eigi að sam-
einast. Ég vil að þetta sé mál
þeirra sem í strjálbýlinu búa og
sagðist ekki sjá á hvern hátt við
stæðum í vegi fyrir velfarnaði þétt-
býlisbúa.
Um leið og ég bið Austra fyrir
þessa skýringu vil ég þakka stjórn
Framfarafélagsins fyrir að gangast
fyrir umræddum fundi. Ég tel að
þar hafi farið fram mjög gagnleg
skoðanaskipti. En því miður var
aðsókn af einhverjum ástæðum í
lágmarki.
Með þökk fyrir birtinguna.
Sævar Sigbjarnarson.
Húsgagnabólstrun
Klæðningar
og viðgerðir
á húsgögnum
og bílstólum.
Roccoco stólar á lager.
Bólstrun
Ásgríms Þ. Ásgrímssonar
Laugavöllum 13,
700 Egilsstöðum S11476
Framtalsaðstoð - Bókhaldsþjónusta
fyrir einstaklinga, einstaklinga með rekstur, bændur, útgerðarmenn og
fyrirtæki.
Seljum: Stólpa viðskiptahugbúnað
Victor tölvur
tölvuprentara og rekstrarvörur fyrir tölvur.
Ritvinnslu-, gagnagrunns-, töflureiknis-
og teikniforrit.
VIÐSKIPTAÞJÓNUSTA
Miðási 11, 700 Egiisstaðir, Sími 97-11095
1660.
littr
ALNING
INNI- og ÚTIMÁLNING - LÖKK
Litablöndunarvél á staðnum
- Þú færð réttan lit í Sadolin
Munið Sadolin
málningarþjónustuna.
lúðin
F E L L A B Æ
© 97-11700 & 11329
Ath:
breytt símanúmer.
Heimasími Jóns
Kristjánssonar í
Reykjavík er 91-29797.
orgarVérk
Leggjum klæðningar og slitlag á götur og plön um land allt.
Alhliða verktaka- og vinnuvélaleiga. Sprengingar, gröftur,
malarflutningur, gatnagerð, jarðvegsskipti fyrir húsgrunna.
Beltagröfur, traktorsgröfur, borvagnar, hjólaskóflur, veghefill,
vörubílar, dráttarbílar ásamt mörgum stærðum af vögnum.
Loftpressur, traktorar, vatnstankar fyrir vegvökvun.
Leitið upplýsinga, vanir menn, vönduð vinna.
* | _ ___|_ ■ Símar 93-71134, 93-71144 og 91 -621119
verKtaKafyrirtæKi Bnasími 985-21525
VERSLIÐ í HEIMABYGGÐ
Skór fyrir alla fjölskylduna
Nýjar sendingar væntanlegar.
Fyrir ferminguna:
Hanskar, slæður, klútar og hárskraut.
Til gjafa:
Töskur, buddur og seðlaveski
með og án tölvu.
Atvinnurekendur athugið:
Við höfum vinnuskóna
með stáltanni.
Opið mánud. - föstud.
kl. 10 - 12 og 13 - 18.
Laugardaga kl. 11 - 13.
Verslunin
KRUHHAFóTUk.
Lyngási 1,700 Egilsstaðir
Sími 97-11155
Herrapeysur, háskólabolir
og jogginggallar.
Döm ubóm ullarpeysur, jerseybolir,
blússur og sjöl.
Barnagallabuxur, rúllukragabolir
og jogginggallar.
Ungbarn afa tnaður.
Hvítar slæður, hanskar, klútar og
blóm fyrir ferminguna.
Nýkomið mikið úrval af efnum
t.d. hjólabuxnaefni, spegilflauel, munstrað denim,
jogging, jersey og bómullarefni.
Allt á einum stað.
Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 9 - 18.
Föstudaga kl. 9 - 19 og laugardaga kl. 10 - 14.
Kaupfélag Héraðsbúa
vefnaðarvörudeild - Egilsstöðum.