Austri - 22.03.1990, Síða 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum, 22. mars 1990.
Verðkönnun verkalýðs- og
neytendafélaga í samvinnu
við Verðlagsstofnun
Framkvæmd þann 15/3 1990
Umsjón: _
Sigurður Óskar Pálssoi l.
I hendingun 1
Austraspumiag
Hvar mundir þú vilja að álver
yrði reist, ef byggt verður nýtt
álver hér á landi?
Helga Þórhallsdóttir, Eiðaþinghá.
— Ég hef nú ekki spekúlerað mikið í því. Að
sumu leyti er það sennilega betur staðsett fyrir
sunnan. Það skapar meiri atvinnu hér, ef það
verður byggt hér fyrir austan, þó kannski sé dýr-
ara að reisa það hér.
Ásmundur Þórhallsson, Eiðaþinghá.
— Ég myndi velja Reyðarfjörð. Þetta er gífur-
lega mikið atvinnuspurspiál fyrir okkur Austfirð-
inga.
Þórunn Oddsteinsdóttir, Eiðaþinghá.
— Ég hef enga skoðun á því. Ég er frekar á móti
stóriðju.
Hallgrímur Bóasson, Reyðarfirði.
— Það er engin spurning. Á Reyðarfirði. Okkur
veitir ekki af að fá svona fyrirtæki.
Sæmundur Valtýsson, Reyðarfirði.
— Ég myndi kjósa að það yrði reist á Reyðar-
firði. Það myndi þjappa saman þessum byggða-
kjörnum, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði
og Egilsstöðum. Ég tel það góða staðsetningu.
Guðmundur Hjálmarsson, Egilsstöðum.
— Á Reyðarfirði. Það skapar atvinnu fyrir
svæðið.
Verkalýðs- og neytendafélög
framkvæma nú í samvinnu við
Verðlagsstofnun verðkannanir
um allt land. Ein slík var fram-
kvæmd hér á Fljótsdalshéraði
þann 15. mars, sem var alþjóð-
legur neytendadagur.
Farið var í fjórar verslanir,
Bónusverslun KHB, Kjörbúð
KHB á Egilsstöðum, Val í
Fellabæ og verslunina Ártún. í
Bónus er vöruverð yfirleitt
mjög hagstætt, en þar fást fáar
vörutegundir og reyndar ekki
nema þriðjungur af þeim vöru-
tegundum, sem taldar eru upp í
listanum sem fylgir þessari
Hveiti, komax venjulegt, 2 kg
Strásykur, í 2 kg pk.
Púðursykur, Dansukker brun, Vi kg
Hrísgrjón, River rice, 454 g
Rasp, paxo golden bread crumbs, 142 g
Ritz saltkex,rauður pk. 200 g
Frón kremkex (m. ljósu kremi), 250 g
Kelloggs corn flakes pakki, 500 g
Lambalærisneiðar úr miðlæri, 1. fl. 1 kg
Lambahryggir heilir 1. fl. 1 kg
Kjúklingur 1 kg
Ýsuflök með roði, án þunnilda, ný, 1 kg
Svali appelsínubragð, Va ltr.
Smjörvi, 300 g
Mayonais, Gunnars, 400 g
Gulrófur, nýjar, 1 kg
Fiskibollur, niðurs. Ora, 830 g
Grænar baunir Ora, 450 g
Egils appelsínusafi (djús), 0,98 ltr.
Kartöflur 1. fl. í 2 kg poka
Braga kaffi (gulur) 250 g
Kaaber kaffi Río, 250 g
Melroses te, 25 stk., 50 g
Maggi, blómkálssúpa, 1 pk.
Toro, Bernaissósa, 1 pk.
Royal karamellubúðingur, 90 g
Coca cola, 33 cl. dós
Egils appelsín, 1 Vi ltr.
Handsápa, Lux sápa, 75 g
Klósettpappír, Papco 2 rúllur í pk. 1 pk.
Dömubindi, Johnson Vespré, 10 slim towels
Ekki mun verða ofmetinn sá
léttir og þau þægindi sem öll raf-
knúnu heimilistækin veita fólki.
Svo langt gengur stundum að helst
er að sjá sem heimilishaldið fari úr
skorðum við smábilun, svo ómiss-
andi eru þessi tæki.
Orkan, sem þessir húsþrælar
okkar nota verður að komast til
þeirra án nokkurra hnökra eða
fyrirstöðu. Pví er mjög mikilvægt
að raftaugar og tengingar séu
jafnan traustar og heilar.
Allir vita hvernig fer ef vatns-
lögnin byrjar að leka. Raflagnir
geta líka lekið á sinn hátt og gæti
stafað af því bruna- eða slysa-
hætta. Ein besta vörnin gegn því
er lekastraumsrofinn, sem komið
er fyrir í <töflunni>. Fólk getúr
sjálft fullvissað sig um að rofi þessi
sé í lagi með því að styðja á þar til
gerðan próf- hnapp og fellur rof-
grein. Af þessum sökum er
verðið í Bónus ekki saman-
burðarhæft þegar „innkaupa-
karfa“ er skoðuð. Hins vegar
kemur í ljós að þótt munur sé á
verði einstakra vörutegunda í
hinum verslununum, þá er
samanlagt verð „innkaupakörf-
unnar“ nokkuð svipað.
í seinasta dálki töflunnar er
gefið dæmi um verð á höfuð-
borgarsvæðinu. Verð hér fyrir
austan er oftast í hærri kant-
inum á verði höfuðborgar-
svæðisins og í mörgum tilfellum
enn hærra.
107 96 138 85- 109
199 156 187 162- 200
82 92 89 69- 89
87 88 82 65- 84
71 71 70 61- 71
108 108 105 85- 101
134 125 128 93- 128
264 252 239 208- 249
1083 916 1139 875-1139
700 710 746 595- 746
710 704 672 578- 802
362 402 369 395- 478
30 33 31 26- 33
182 181 186 170- 186
130 128 128 135- 158
136 139 134 98- 154
268 268 274 221- 267
84 81 83 58- 80
231 223 207 192- 269
237 244 250 208- 270
112 110 111 101- 119
121 118 119 111- 123
121 120 122 99- 115
70 69 69 50- 65
43 42 49 42- 47
85 80 82 67- 82
65 68 68 61- 70
179 183 187 165- 180
40 40 39 28- 35
75 73 74 59- 72
127 138 138 112- 135
inn þá út og er það vísbending um
að honum megi treysta. Þetta skal
gera reglulega t.d. um leið og fólk
prófar reykskynjarann, jafnvel
nokkrum sinnum á ári. Með þessu
er líka verið að liðka lekastraums-
rofann og koma í veg fyrir að hann
stirðni. Ótraustar tengingar,
rúmar klær í tenglum og annað
þess háttar, mun vera ein algeng-
asta rafmagnsbilun á heimilum.
Straumurinn brýtur sér leið
þangað sem honum er ætlað að
fara, missterkur, allt eftir stærð
tækisins. Ef klóin er t.d. orðin rúm
í tenglinum, hitar eða brennir
þessi straumur tengslin og getur
slíkt reynst brunagildra. Með því
að sýna fyllstu aðgæslu drögum við
stórlega úr eldhættu á heimilum.
Fulltrúi Rafmagnseftirlits ríkisins
á Austurlandi
Sveinbjörn Guðmundsson
Egilsstöðum.
Svava Jónsdóttir frá Geitavík
í Borgarfirði skrifaði mér gott
bréf hér á dögunum og lét
fylgja því nokkrar gamlar vísur.
Kann ég henni bestu þakkir
fyrir. Svava hefur átt heima
fyrir sunnan, eins og við
segjum, nær sextíu ár og lengst
af búið, og býr enn, á Snælandi
við Nýbýlaveg í Kópavogi. Pað
hús telst nú standa við Greni-
grund samkvæmt nútíma nafna-
og númerakerfi suður þar. Eig-
inmaður Svövu, Halldór Pjet-
ursson rithöfundur frá Geira-
stöðum í Hróarstungu, lést í
sumar er leið, kominn á tíræðis-
aldur.
Erindin, sem Svava sendi
mér, munu öll teljast til þjóð-
vísna, því örðugt mun að finna
rétta höfunda þeirra. Yrði ég
þó manna fegnastur ef þetta
reyndist vitleysa úr mér.
Dropinn holar bergið blátt,
ber svo til, það fellur þrátt.
Get ég lært þó gangi bágt,
guð minn styrkir veikan mátt.
Þessa vísu nam Svava ung af
ömmu sinni, Ólínu Sigurgeirs-
dóttur á Snotrunesi, og segir
svo í bréfinu:
„Enginn hér sem ég lét heyra
„Dropinn holar“ hafði heyrt þá
vísu fyr, og hafði ég talað við þá
sem mér þóttu líklegir til að
kannast við, ...en Anna heitin
frænka mín Ármannsdóttir
kvaðst hafa lært hana sem
smákrakki. Anna var fædd
1892“.
Anna var lengi húsfreyja á
Borg í Njarðvík og hefur ugg-
laust lært vísuna af móður
sinni, Ólínu á Snotrunesi.
Fróðlegt þætti mér að frétta af
því, hvort einhverjir lesendur
þáttarins kunna þessa vísu og
hvar þeir hafa lært hana.
Tvö næstu erindi hefur Svava
einnig eftir Ólínu ömmu sinni:
Rýkur í koti, vindurinn voti
vill á dynja,
hundur í skoti fullur af floti
fór að stynja.
Vel hefur verið búið á bæ þar
sem hundurinn stundi af flot-
fylli. Ekki man ég nú í svipinn
eftir hvaða merkismanni var
haft, að það sem hann sæi ljót-
ast á bæjum væru horaðir
hundar og hreinir krakkar. Jó-
hann Sveinsson hefur þessa
stöku í Vísnasafni sínu og ber
ekkert á milli utan hvað hann
hefur fer í upphafi síðustu
ljóðlínunnar. Eins og menn vita
er iðulega orðalagsmunur á
gömlum vísum og ógerningur
að vita hvert er hið uppruna-
lega eða „rétta“.
Rýkur hér á Rauðalæk
rýkur hjá henni Steinku spík.
Reykjarsvælan römm og stæk
rýkur útá Sigluvík.
Ýmsir af eldri kynslóðinni
munu kannast við þessa vísu
með smávægilegum orðalags-
mun, svo sem: Rýkur enn ...
Rýkur nú ... út í Sigluvík. Að
mínum dómi eru öll tilbrigðin
friðhelg þangað til frumgerðin
finnst, en þess gæti orðið
nokkuð langt að bíða, ekki
síður en sönnunarinnar um,
hver sé hinn eini og rétti
höfundur Njálu.
Svava segir, að maður sinn
hafi stundum farið með eftirfar-
andi vísu:
Fjórir í barka, fimm í skut,
fallegt er á þeim roðið.
Pá eru komnir þrír í hlut,
og það er nóg í soðið.
Jóhann Sveinsson hefur þetta
erindi í safni sínu og stendur
þar fagurt fremst í annarri
ljóðlínu. Ég kannast betur við
fallegt, eins og Svava skrifar og
finnst ljóðlínan verða mýkri á
þann hátt.
Prír í hlut. Ekki reyni ég að
dæma um það, hvort megin-
hugsun þessa erindis er fegin-
leiki eða nægjusemi, ellegar þá
hvort tveggja. Á hinn bóginn
leitar hugurinn til frásagna af
aflaleysi, sem oft varð á liðnum
öldum, og hungrinu sem fylgdi í
kjölfarið.
Hér slæ ég í botn að sinni og
endurtek þakkir til Svövu á
Snælandi.
Með bestu kveðju.
S.Ó.P.
UTBOÐ
Seyöisfjarðarkaupstaður óskar eftir tilboðum
í byggingu 8 kaupleiguíbúða á Seyðisfirði.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstofunni
Hafnargötu 44, Seyðisfirði gegn 5.000.- kr.
skilatryggingu. Tilboðum skal skilað þangað
fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 11. apríl n.k.
merktum „Kaupleiguíbúðir tilboð“.
Bæjartæknifræðingur.
Stofumót í snooker
Stofumót í snooker fyrir 16
ára og eldri var haldið á Bill-
iardstofunni Egilsstöðum, 3.-4.
mars sl. Keppendur voru 12
talsins og var mótið æsispenn-
andi. Peir sem kepptu til úrslita
voru þessir: Um 3.-4. sætið,
Börkur Vígþórsson og Ingvar
Valsson og um 1.-2. sætið,
Eysteinn Hauksson og Viðar
Aðalsteinsson. En ekki geta
allir sigrað og fóru úrslit þannig
að 1. sætið hreppti Eysteinn
Hauksson, 2. sætið Viðar Aðal-
steinsson og 3. sætið Börkur
Vígþórsson. Hlutu vinnings-
hafar að launum glæsileg verð-
laun veitt af eiganda Billiard-
stofunnar. Að auki voru veitt
verðlaun fyrir hæsta “break“ en
það átti Eysteinn Hauksson.
o.s. og H.H.
KHB VAL Ártún Dæmi um verð á höfuð-
borgarsvæðinu í mars
6243 6052 6315
Sýnið aðgát í meðferð raftækja