Austri - 29.03.1990, Blaðsíða 3
Egilsstöðum, 29. mars 1990.
AUSTRI
3
Hraðfrystihús
Breiðdælinga:
Fékk 50
milljónir
frá Hluta-
/ • / X •
fjarsjooi
Hraðfrystihús Breiðdælinga,
sem átt hefur í miklum rekstrar-
erfiðleikum og var með greiðslu-
stöðvun fram í miðjan febrúar,
hefur nú fengið fyrirgreiðslu hjá
Hlutafjársjóði.
Að sögn Svavars Þorsteins-
sonar framkvæmdastjóra hrað-
frystihússins tókst að uppfylla
skilyrði Hlutafjársjóðs fyrir
aðstoð við frystihúsið en þau voru
að auka hlutafé um 40 milljónir
króna og fá felldar niður skuldir
upp á 20 milljónir.
Á móti fékk fyrirtækið 50 millj-
óna króna lán frá Hlutafjársjóði.
Sagði Svavar að verið væri að
ganga frá þessum málum og þeir
væru nú að greiða lánardrottnum
sínum og yri því væntanlega lokið
á næstunni. Þeir væru því bjart-
sýnir á framtíðina, enda væri nú
búið að byggja fyrirtækið vel upp
fjárhagslega.
Búið er að auglýsa annan tog-
ara þeirra Breiðdælinga, And-
eyna, sem er frystitogari, til sölu,
en Svavar sagði að það hefði þó
ekki verið neitt skilyrði að hann
yrði seldur. Ekki hefði heldur
borist viðunandi tilboð í skipið,
svo óvíst er um sölu á því ennþá.
G.I.
Jötunn
- Nýtt fyrir-
tæki á
traustum
grunni
Fram kemur í kynningarriti frá
Sambandi íslenskra samvinnufél-
aga, að um síðustu áramót voru
Búvörudeild Sambandsins, Bíl-
vangur sf. og Jötunn hf. sameinuð
undir heitinu Jötunn, sem er deild
í Sambandinu. Hinn nýi Jötunn
rekur alla þá starfsemi, sem áður-
nefnd þrjú fyrirtæki höfðu með
höndum og gerir sameiningin
kleift að auka hagkvæmni í
rekstri, stórbæta alla þjónustu og
gera reksturinn mun virkari en
áður var. Jötunn skiptist í fimm
deildir, sem annast innflutning,
sölu, dreifingu og þjónustu.
Þessar deildir eru Bifreiðadeild,
Fóðurdeild, Raftæknideild, Véla-
deild og Þjónustu- og varahluta-
deild. Sameiginleg skrifstofa ann-
ast þjónustu við deildirnar, s.s.
fjármál, innheimtu, bókhald,
starfsmannamál og verðlagningu.
Það er
sterkur
leikur að
auglýsa í
AUSTRA
Egilsstaðir:
Bensíni stoliö
af bflum
Nokkuð hefur borið á bensín-
þjófnaði úr bílum á Egilsstöðum
að undanförnu. Fram að þessu
hafa eigendur bíla sem skildir
hafa verið eftir á flugvellinum,
einkum orðið fyrir þessum
ófögnuði, en nú er svo komið að
farið er að stela bensíni af bílum
heim við íbúðarhús. Meðan söku-
dólgar ekki finnast, er fátt til ráða
fyrir þá bílaeigendur sem ekki hafa
læst bensínlok á bílum sínum,
annað en að kaupa bara dag-
skammt af bensíni í einu á bíla
sína.
B.
Áfengissala frá Á.T.Y.R.
1988 og 1989
Áfengislítrar á mann:
Sterkir drykkir Létt vín Bjór Alls
1988 2,58 0,77 0 3,35
1989 2,19 0,57 1,37 4,13
Mismunur - 0,39 .-0,20 + 1,37 + 0,78
% - 15,12% - 25,97% + 23,28%
Áfengislítrar á mann, 15 ára og eldri:
Sterkir drykkir Létt vín Bjór Alls
1988 3,45 l,03v 0 4,48
1989 2,91 0,77 1,83 5,51
Mismunur - 0,54 - 0,26 + 1,83 + 1,03
O/ /o - 15,65% - 25,24% + 22,99%
(Frá Áfengisvarnarráði)
HAFP
DRÆTTI
SLYSAVARNAFÉLAGS
ISLANDS
HEILDARVERÐMÆTI VINNINGA KR.
DREGIÐ VERÐUR FÖSTUDAGINN 6. APRÍL 1990.