Austri - 29.03.1990, Síða 7
Egilsstöðum, 29. mars 1990.
AUSTRI
7
Sjónvarp helgarinnar
FIMMTUDAGUR
29.mars
17:50 Stundin okkar. Endurrsýnd.
18:20 Sögur uxans.
— Hollenskur teiknimyndaflokkur.
18:50 Táknmálsfréttir.
18:55 Yngismær.
— Brasilískur framhaldsmyndaflokkur.
19:20 Heim í hreiðrið.
— Enskur gamanmyndaflokkur.
19:50 Bleiki pardusinn.
20:00 Fréttir og veður.
20:35 Fuglar landsins.
— 22. þáttur - Krían.
20:45 Matlock.
— Bandarískur framhaldsmyndaflokkur.
21:35 íþróttasyrpa.
— Fjallað um helstu íþróttaviðburði
víðs vegar í heiminum.
22:05 Samfélag utangarðsfólks.
— Sænsk heimildamynd um utan-
garðsfólk í Gautaborg sem reynir að
byrja nýtt líf upp á eigin spýtur.
23:00Ellefufréttir.
23:10 Krabbameinsrannsóknir.
— Síðastliðið haust þróuðu þrír vís-
indamenn í New York lyf sem talið er að
vinni á frumum sýktum krabbameini.
23:50 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
30.mars
17:50 Tumi.
— Belgískur teiknimyndaflokkur.
18:20 Hvutti. Sjötti þáttur.
18:50 i Táknmálsfréttir.
18:55 Kvikmyndagerð George Harrisons.
— Fylgst er með gerð kvikmynda á
vegum bítilsins George Harrisons.
19:50 Bleiki pardusinn.
20:00 Fréttir og veður.
20:35 Spurningakeppni framhaldsskólanna.
— Úrslit - Bein útsending.
21:15 Átak til sigurs.
— Þáttur tileinkaður þjóðarátaki
Krabbameinsfélagi íslands. Brýnd
verða fyrir landsmönnum 10 boðorð
heilbrigðra lífshátta.
22:15 Úlfurinn.
— Bandarískir sakamálaþættir.
23:05 Skógarlíf.
— Myndin gerist í heimi ríkra og
fátækra við skógarspildu eina á Spáni
en mannlífið þar er ákaflega fjölskrúð-
ugt.
00:50 Útvarpsfréttir í dagskráriok.
LAUGARDAGUR
31. mars
14.00 íþróttaþátturinn.
14:00 Enska knattspyrnan: Liver-
pool-Southampton. Bein útsending.
16:00 Meistaragolf.
17:00 íslenski handboltinn. Bein
útsending.
18:00 Endurminningar asnans. Lokaþáttur.
— Teiknimyndaflokkur í tíu þáttum eftir
samnefndri sögu Sophie Rostopchine de Ségur.
18:25 Fiskimaðurinn og kona hans.
— Bresk bamamynd.
18:50 T áknmálsf réttir.
18:55 Fólkið mitt og fleiri dýr. — 4 þáttur.
— Breskur myndaflokkur.
19:30 Hringsjá.
20:30 Lottó.
20:35 “90 á stöðinni.
20:55 Allt í hers höndum.
— Breskur gamanmyndaflokkur.
21:20 Fólkið í landinu.
— Frá Saigon í Kringluna. Sigmar B. Hauksson
ræðir við Ara Huynh. Ari er víetnamskur flóttamaður
sem kom hingað til lands með tvær hendur tómar en
á nú, ásamt fjölskyldu sinni, veitingastað í borginni.
21:45 Einkamáladálkurinn.
— Bandarísk bíómynd frá 1986. Þrír framagosar í
New York treysta á einkamáladálka dagblaðanna til
þess að komast í kynni við hitt kynið.
23:15 í sjálfheldu.
— Bandarísk bíómynd frá árinu 1972. Ung hjón taka
á leigu hús fjarri mannabyggðum. Leigusalinn, sem
er fyrrverandi hermaður, reynist vera þeirra eini ná-
granni. Hann virðist við fyrstu kynni indælismaður en
ekki er allt sem sýnist.
00:35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
1. apríl
14:20 Heimsins besti hundur.
— Heimildamynd um alþjóðlega hunda-
sýningu í Kaupmannahöfn.
15:10 Veðurnornin.
— Nýleg ævintýramynd byggð á sögu
úr Grimms ævintýrum.
16:40 Kontrapunktur. — Áttundi þáttur.
— Lið Svía og Norðmanna keppa.
17:40 Sunnudagshugvekja.
— Flytjandi er Rósa Jóhannesdóttir.
17:50 Stundin okkar.
18:20 Litlu Prúðuleikararnir.
18:50 Táknmálsfréttir.
18:55 Fagri-Blakkur.
19:30 Kastljós á sunnudegi.
20:35 íslandsmyndir.
— í tilefni 60 ára afmælis Ríkisútvarps-
ins mun Sjónvarpið sýna á sunnudags-
kvöldum næstu mánuði stuttar yfirlits-
myndir af stórbrotinni náttúru íslands.
20:40 Frumbýlingar. 3. þáttur.
— Ástralskur myndaflokkur í sex þáttum.
21:30 Umhverfis Vikivaka.
— Fylgst er með upptöku óperunnar Vikivaki
haustið 1989 og rætt við Atla Heimi Sveinsson,
Thor Vilhjálmsson o.fl.
22:10 Índíáninn.
— Nýleg þýsk sjónvarpsmynd byggð á sjálfsævisögu
Leonhards Lentz.
23:45 Listaalmanakið - Apríl.
— Svipmyndir úr listasögunni.
23:50 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
Sjónvarp helgarinnar
FIMMTUDAGUR
29. mars
15:35 Með Afa. — Endurtekið.
17:05 Santa Barbara. — Framhaldsþ.
17:50 í Skeljavík. — Leikbrúðumynd.
18:00 Kátur og hjólakrílin.— Teiknimynd.
18:15 Fríða og dýrið. — Spennumyndafl.
19:19 19:19.
20:30 Sport. — íþróttaþáttur.
21:20 Það kemur í Ijós.
— Líflegur skemmtiþáttur.
21:35 Samskonar ást.
— Framhaldsmynd í tveimur hlutum
sem greinir frá aðferðum aðalhetjunnar,
Franks, við að elta uppi morðingja
ungrar vændiskonu.
23:40 Á tvennum tímum.
— Myndin fjallar um H.G. Well sem er
kunnur uppfinningamaður. Hann er
fenginn til þess að finna upp tímavél í
þeim tilgangi að hafa upp á marg-
slungna morðingjanum Jack the
Ripper. Hann er síðan neyddur til þess
að fara í vélinni aftur í tímann.
01:30 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
30. mars
15:35 Þarfasti þjónninn.
— Ein gömul og góð um ríkan mann
sem gerist þjónn. Meinfyndin mynd.
17:05 Santa Barbara. — Framhaldsþáttur.
17:50 Dvergurinn Davíð. —Teiknimynd.
18:15 Eðaltónar.
18:40 Lassý.
19:19 19:19.
20:30 Popp og kók.
21:05 Óskarsverðlaunin 1990.
— Fyrstu Óskarsverðlaunin voru veitt
árið 1927. Beinar sjónvarpsútsendingar
frá athöfninni hófust 1953. Stöð 2 mun
í kvöld fleyta rjómann af þessari sex
klukkustunda útsendingu.
00:05 Nánar auglýst síðar.
00:30 Best af öllu.
— I þessari mynd er greint frá fjórum
framagjörnum konum sem voru upp á
sitt besta í kringum sjötta áratuginn.
02:00 í Ijósaskiptunum.
02:30 Dagskrárlok.
LAUGARDAGUR
31. mars
09:00 Með Afa. — Teiknimynd.
10:30 Jakari. — Teiknimynd.
10:35 Glóálfarnir. — Teiknimynd.
10:45 Júlli og töfraljósið. — Teiknimynd.
10:55 Denni dæmalausi. —Teiknimynd.
11:20 Perla. — Teiknimynd.
11:45 Klemens og Klementína.
12:00 Popp og kók. — Endurtekið.
12:35 Á ferð og flugi.
— Þrælgóð gamanmynd með Steve
Martin í aðalhlutverki.
14:05 Frakkland nútímans.
14:35 Hvarfið við Gálgaklett.
— Saga þessi gerist um aldamótin síð-
ustu og segir frá þremur skólastúlkum
sem fara í skógarferð ásamt kennara
sínum.
16:25 Kettir og húsbændur. — Endurt.
17:00 Handbolti.
17:45 Falcon Crest.
18:35 Bílaþáttur Stöðvar 2. — Endurtekið.
19:00 19:19.
20:00 Sérsveitin.
20:50 Ljósvakalíf.
21:20 llla farið með góðan dreng.
— Ungur Brooklynbúi grípur til sinna
ráða er slökkvilið New York borgar
neitar að styðja við særðan bróður
hans.
23:00 Hver er næstur.
— Roy Scheider, sem hér leikur
starfsmann bandarísku leyniþjónust-
unnar, verður, ásamt konu sinni, fyrir
óvæntri skotárás sem grandar eigin-
konunni.
00:40 Á elleftu stundu.
— Ritstjóri dagblaðs og starfsfólk hans
óttast að missa vinnuna með tilkomu
nýrra eigenda þar sem núverandi eig-
endur blaðaútgáfunnar sjá sér ekki fært
að halda útgáfustarfseminni áfram.
02:05 Hausaveiðarar.
— Þetta er alvöru vestri með fullt af
hörkuáflogum, gríni og indíánum.
03:45 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR
1. apríl
09:00 í Skeljavík. — Brúðumynd.
09:10 Paw, Paws. — Teiknimynd.
09:30 Litll Folinn og félagar. — Teiknimynd.
09:55 Selurinn Snorri. — Teiknimynd.
10:10 Þrumukettir. — Teiknimynd.
10:30 Mímisbrunnur. — Teiknimynd.
11:00 Skipbrotsbörn.
11:30 Sparta sport.
12:00 Nánar auglýst síðar.
12:35 Heimur Peter Ustinovs.
— Peter Ustinov sækir að þessu sinni
heim hans hátign Hussein konung af
Jórdaníu.
13:30 íþróttir.
16:55 Fréttaágrip vikunnar.
17:15 Umhverfis jörðina á 80 dögum.
18:45 Viðskipti í Evrópu.
19:19 19:19.
20:00 Landsleikur. — Bæirnir bítast.
21:00 Lögmál Murphys.
21:55 Fjötrar.
22:45 Listamannaskálinn.
— William Golding var, árið 1983, fyrsti
breski rithöfundurinn í fimmtíu ár sem
hlaut bókmenntaverðlaun Nóbels.
00:05 Þrír vinir.
— Sannkallaður vestri í léttari kantinum.
01:45 Dagskrárlok.
Guttormur V. Þormar:
Frá Búnaðarþingi 1990
Búnaðarþing, hið 73. í röðinni,
var sett og haldið í Bændahöllinni
dagana 5. til 15. þ.m. og var hið
stysta reglulega Búnaðarþing, sem
haldið hefur verið frá upphafi.
Lagðar voru fram 30 ályktanir
og alls var fjallað um 40 mál á
þessu þingi og voru þau öll
afgreidd nema eitt. Er þetta með
færri málum, sem Búnaðarþing
fær yfirleitt til meðferðar. Hins
vegar má segja, að mörg þeirra
hafi verið yfirgripsmikil og snúin.
Ætlunin er að gera grein fyrir
nokkrum þeirra hér í Austra.
Svo byrjað sé á þeim málum,
sem varða okkur hér fyrir austan
fyrst og fremst, má nefna málefni
Skriðuklausturs. Lagt var fyrir
þingið erindi um áframhaldandi
rekstur tilraunastöðvar á Skriðu-
klaustur.
í ályktun segir:
“Það er og hefur alltaf verið
skýr og ófrávíkjanleg stefna Bún-
aðarþings, að öflug tilraunastarf-
semi sé algjör forsenda fyrir fram-
förum í landbúnaði. Það hefur
einnig lagt áherslu á að starfsemin
væri í nálægð við bændur og styddi
þannig þau verkefni, sem brýnust
eru í hverju héraði.
Því skorar Búnaðarþing á stjórn
Rannsóknastofnunar landbúnað-
arins að falla frá ákvörðun sinni
um að leggja tilraunastöðina á
Skriðuklaustri niður. Jafnframt
skorar Búnaðarþing á fjárveitinga-
nefnd Alþingis og alþingismenn
Austurlandskjördæmis að beita
sér fyrir að bein fjárveiting til Til-
raunastöðvar á Skriðuklaustri sé
ekki minni en að þar geti starfað
að minnsta kosti tveir landbúnað-
arháskólamenntaðir rannsóknar-
menn og hafi viðunandi aðstöðu til
starfsins."
Þá lagði B.S.A. fyrir þingið
erindi um heftingu landbrots og
varnir gegn ágangi straumvatna.
Var málið afgreitt með eftirfar-
andi ályktun: “Búnaðarþing 1990
leggur mikla áherslu á, að hraðað
verði byggingu varnargarða, þar
sem straumvötn brjóta land og
eyða gróðurlendi. Því skorar Bún-
aðarþing á landbúnaðarráðherra
og fjárveitinganefnd Alþingis að
hlutast til um að veitt sé aukið fjár-
magn til þessa brýna verkefnis.“
Tillögur um breytingar á félags-
kerfi landbúnaðarins, svo sem að
breyta aldargömlu fyrirkomulagi
varðandi stjórn Búnaðarfélagsins
íslands með því að fjölga stjórn-
armönnum úr þremur í fimm og
kjósa þá eftir landshlutum, náðu
ekki fram að ganga.
Þá óskaði Búnaðarþing eftir því
að nefnd sú, sem unnið hefur að
endurskoðun á félagskerfinu á
vegum Búnaðarfélags íslands,
Stéttarsambands bænda og búnað-
Þessa dagana er verið að taka
ákvarðanir um fiskveiðistjórnun
sem varða afkomu allrar þjóðar-
innar. Miðlun hf. hefur tekið
saman úrklippubók um þetta
málefni árið 1989.
Bókin er ítarleg og traust heim-
ild um ólík sjónarmið, því í henni
eru birtar allar greinar, ritstjórnar-
greinar, viðtöl og fréttir úr fjöl-
mörgum blöðum, sem þykja varða
þetta mikilvæga málefni árið 1989.
Guttormur V. Pormar.
arsambandanna starfi áfram og
mælist til þess að nefndin ljúki
störfum á þessu ári og skili áliti til
næsta Búnaðarþings.
Fyrir þinginu lá nefndarálit
nefndar er landbúnaðarráðherra
skipaði í janúar á fyrra ári og hefði
það hlutverk “að kanna til hvaða
ráðstafana unnt sé að grípa í því
skyni að minnka umferð vörslu-
lauss búfjár á þjóðvegum og í
nánd við þá, einkum út frá þéttbýl-
issvæðum og gera tillögur til
úrbóta.“ Er hér um allítarlegt
nefndarálit að ræða, sem er 16 vél-
ritaðar síður. Búfjárræktarnefnd
Búnaðarþings fjallaði mikið um
nefndarálitið og fékk marga aðila
við viðræðna, svo sem fulltrúa og
lögfræðing vegagerðarinnar, land-
búnaðarráðuneytisins, land
græðslustjóra og landnýtingar-
ráðunaut Búnaðarfélags íslands,
sem starfaði jafnframt með nefnd-
inni.
í ályktun segir m.a.: “Búnað-
arþing fagnar þeirri úttekt, sem
landbúnaðarráðherra hefur látið
gera um búfé á vegsvæðum, en
leggst gegn tillögu meirihluta
nefndar þess efnis að lögfesta, að
eigendur nautgripa og hrossa um
land allt sé skylt að hafa þá gripi
sína í vörslu allt árið. Þingið telur,
að nú þegar hafi sveitarfélögin víð-
tækar lagaheimildir til að tak-
marka lausagöngu búfjár.“
Þá var lögð áhersla á að vega-
gerðin sjái um viðhald þeirra girð-
inga, er hún setur upp.
Varðandi umhverfismál ítrekaði
Búnaðarþing fyrra álit, þ.e. frá
1989 um mat á beitarþoli lands og
beinir þingið því til stjórnenda og
sérfræðinga B.í. og Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins og
Landgræðslu ríkisins að taka
höndum saman um að endurmeta
aðferðir við mat á raunverulegu
beitarþoli landsins. Má segja, að
umhverfismál hafi fengið mikla
umfjöllun á þessu Búnaðarþingi
og þá fyrst og fremst sá þáttur
þeirra er að bændum snýr.
Varðandi greiðslu framlaga
samkvæmt jarðræktar- og búfjár-
Ennfremur fyrirliggjandi frumvarp
og gildandi lög. Handhægt og
þægilegt er að fletta upp í bókinni,
því aðgengilegt efnisyfirlit yfir
allar greinar og höfunda tryggir að
jafnan er auðvelt að hafa upp á
þeim ummælum eða greinum sem
óskað er.
Úrklippubókin kostar 3.450,-
kr. og fæst aðeins hjá Miðlun,
Ægisgötu 7.
(Fréttatilkynning).
ræktarlögum, segir m.a. í ályktun:
“Búnaðarþing harmar dæmalausa
meðferð á greiðslu framlaga bú-
fjárræktar- og jarðræktarlögum og
gerir þá eindregnu kröfu, að
tafarlaust verði fylgt fram því sam-
komulagi, sem gert var við setn-
ingu þeirra um uppgjör skulda og
fjárveitinga á fjárlögum skv.
heimildum laganna. Þingið skorar
á landbúnaðarráðherra og fjár-
málaráðherra að færa þessi mál í
rétt horf nú þegar.“
Búnaðarþing fékk til umsagnar
drög að frumvarpi til laga um
flokkun og mat á gærum og ull (frá
landbúnaðarráðuneytinu), jafn-
framt erindi búnaðarþingsfulltrúa
af Suðurlandi vegna ullarmats og
ullarmóttöku. Búnaðarþing telur,
að við setningu nýrra laga og
reglugerða um ullarmat beri að
leggja þunga áherslu á:
1. Að ullin sé metin sem allra fyrst
eftir afhendingu.
2. Að tryggja sem best samræmi í
ullarmati, hvar og hvenær
sem það fer fram.
3. Að ullarmat fari fram heima í
héraði og innleggjendum
gefist kostur að fylgjast
með því.
Fyrirliggjandi drög að lögum um
gæru- og ullarmat eru ekki full-
unnin og um sumt of óljóst orðuð.
Víst er, að mikil óánægja og tor-
tryggni ríkir víða meðal bænda
varðandi framkvæmd ullarmats-
ins.
Um skattamál búnaðarsam-
bandanna:
“Búnaðarþing beinir þeirri
áskorun til landbúnaðarráðherra
að hlutast til um þá breytingu á 6.
grein reglugerðar nr. 245 31. des.
1963, að búnaðarsamböndin komi
í tölu þeirra, sem þar eru talin upp
og almennt eru undanþegin tekju-
og eignarskatti. Itarleg greinar-
gerð fylgdi þessari áskorun.
Konur í landbúnaði. Nefndar-
álit frá landbúnaðarráðuneytinu.
Landbúnaðarráðuneytið skipaði
á sl. ári nefnd til þess að kanna
stöðu kvenna í landbúnaði. Eins
var nefndinni ætlað að móta til-
lögur um, hvernig efla megi þátt
kvenna í landbúnaði og öðrum
atvinnugreinum í dreifbýli. í
ályktun félagsmálanefndar kemur
m.a. fram að Búnaðarþing beinir
því til stjórnar B.í. að hún beiti sér
fyrir, að komið verði á fót starfs-
hópum við búnaðarsamböndin,
sem vinni að atvinnuuppbyggingu
fyrir konur í dreifbýli á þeim
sviðum, sem áhugi er fyrir hendi.
Haft verði samband við atvinnu-
og iðnþróunarnefndir, þar sem
þær eru fyrir hendi. Þá felur þingið
stjórninni að hlutast til um, að ráð-
inn verði hæfur maður til að
leiðbeina konum, sem stofna vilja
til atvinnurekstrar í dreifbýli.
Loðnuvertíðinni..
Framhald af forsíðu.
Hjá Fiskimjölsverksmiðju
Hornafjarðar á Höfn fengust þær
upplýsingar, að þar væri búið að
vinna rúm 14.200 tonn af loðnu
frá áramótum, en bræðslu á loðnu
lauk þar fyrir nokkru. Áttu þeir
síður von á meiri loðnu þangað á
þessari vertíð. Heldur meira var
unnið þar af loðnu á vertíðinni
eftir áramót í fyrra eða rúm
17.000 tonn.
Verð á loðnumjöli er nú um
20% lægra en á vertíðinni í fyrra
en verð á lýsi er svipað og við lok
vertíðar í fyrra en þá hafði það
lækkað á þeirri vertíð um nærri
því helming.
G.I.
Urklippubók um
fiskveiðistjórnun 1989