Austri


Austri - 19.12.1991, Side 8

Austri - 19.12.1991, Side 8
8 AUSTRI Egilsstöðum, jólin 1991. Tónskóli Flj ótsdalshéraðs 20 ára sf' fggwjö g' • jr ■( $0 : k M&f ' - ■ - VWM j/ Sameiginlegir kabarettar Tónlistarfélags og Leikfélags urðu nokkrir og nutu vin- sœlda. Hér gefur að líta nýstofnaða Dixilandhljómsveit Árna tsleifssonar í léttri sveiflu. Tónkór Fljótsdalshéraðs byrjaði að œfafyrir jólin 1971. Myndin hér að ofan er tekin áfyrsta starfsári kórsins. Á henni eru talið Hér bregða þeir Sigurður Magnússon og Magnús Magnússon sér í hlutverk hesta- frá vinstri efsta röð: Hrafnhildur Gísladóttir, Anna Birna Snœþórsdóttir, Erla Jónasdóttir, Þorbjörg Bergsteinsdóttir, Dagný manna á kabarettsýningu 1977. Pálsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Helga Þórhallsaóttir, Magnús Einarsson, Víðir Stefánsson, Einar Halldórsson, Eyþór Ólafsson, Þórólfur Stefánsson, Björn Hólm Björnsson. Miðröð: Helga Jóhannsdóttir, Arndís Þorvalds- dóttir, Anna Káradóttir, Ljósbrá Björnsdóttir, Sigurborg Sigurbjörnsdóttir, Guðfinna Sigurbjörnsdóttir, Margrét Gísladóttir, Sigurður Pálsson, Björn Pálsson, Ófeigur Pálsson, Sæbjörn Eggertsson, Haraldur Gunnlaugsson. Fremsta röð: Erla Vil- hjálmsdóttir, Gunnþórunn Hvönn Einarsdóttir, Helga Alfreðsdóttir, Anna Þórhallsdóttir, Helga Aðalsteinsdóttir, Magnús Magnússon, Þórunn Brynjólfsdóttir, Kristmann Jónsson, Ásmundur Þórhallsson, Einar Sigurbjörnsson. Á síðastliðnu hausti voru 20 ár liðin frá stofnun Tónskóla Fljóts- dalshéraðs, en að stofnun hans stóð Tónlistarfélag Fljótsdalshér- aðs, sem stofnað var á Eiðum 29. desember 1969. Markmið félagsins var að efla tónlistarlíf á Héraði m.a. með stofnun tónlistarskóla og haustið 1971 tók Tónskóli Fljóts- dalshéraðs til starfa undir stjórn Magnúsar Magnússonar tónhstar- kennara sem flutti hingað frá Ólafsfirði og veitir hann skólanum forstöðu enn í dag. Skólinn var fyrst til húsa í einu herbergi í kjall- aranum hjá Guðmundi Magnús- syni og píanó var fengið að láni hjá Valaskjálf. Fyrsta veturinn voru nemendur 25 og sá fyrsti sem inn- ritaðist í skólann var Magnús Ein- arsson formaður Tónlistarfélagsins en hann hefur alla tíð verið mjög áhugasamur um starfsemi skólans og m.a. setið í skólanefnd frá upp- hafi. Tónlistarfélagið hefur alla tíð verið áberandi í menningarlífi hér á Héraði. Strax á fyrsta vetri tón- skólans var stofnuð lúðrasveit og blandaður kór sem starfaði um árabil og félagið fór fljótlega að beita sér fyrir því að hingað kæmu atvinnulistamenn bæði söngvarar og hljóðfæraleikarar, einu sinni til tvisvar á ári. Óskabarni félagsins Tónskólanum óx fljótt fiskur um hrygg. Pegar á fyrsta. ári keypti Tónlistarfélagið blásturshljóðfæri frá Bretlandi, einnig var keyptur flygill í samvinnu við Grunnskól- ann á Egilsstöðum. Minni blást- urshljóðfærin keyptu nemendur, en stærri hljóðfærin voru í eigu Tónskólans. Strax eftir þennan fyrsta vetur fékk skólinn inni í nýbyggingu Grunnskólans, en þar fékk hann afnot af kennslustofu og hefur skólinn verið þar til húsa allar götur síðan, það húsnæði er þó fyrir löngu sprungið utan af starfsseminni og er nú einnig kennt í einbýlishúsi sem Egils- staðabær á að Tjarnarlöndum 13 og í Grunnskólanum í Fellabæ. Nú á ofanverðum vetri var hafin bygg- I! Lúðrasveitin spilar framan við Egilsstaðaskóla, myndin er frá 1973. ing Félagsmiðstöðvar sem tengd verður Grunnskólanum með tengibyggingu og þar er fyrirhugað að skólinn fái framtíðarhúsnæði. Árið 1975 var lögum um stofnun tónlistarskóla breytt. Gefin voru út lög sem báru nafnið „Fjárhags- legur stuðningur við tónlistar- Magnús Einarsson var fyrsti formaður Tónlistarfélagsins og hefur setið I skóla- nefnd frá upphafi. Hér ávarpar hann nemendur skólans á degi Tónlistarskól- anna. skóla“. Þessi lög voru sett, þegar Vilhjálmur Hjálmarsson var menntamálaráðherra og undir- rituð af honum. Við setningu þess- ara laga varð sú breyting á að nú tók ríki og sveitarfélög sameigin- lega við rekstri tónlistarskólana, en áður háfði Tónlistarfélagið greitt einn þriðja af kostnaði á móti þessum aðilum. Við þetta gjörbreyttust allar aðstæður skól- ans og skólagjöld lækkuðu. Nemendum Tónskólans fjölgaði jafnt og þétt og árið 1976 var Árni ísleifsson ráðinn kennari að skólanum. Við ráðningu Árna jókst fjölbreytni í námsframboði, því þá hófst kennsla á gítar, sem varð strax mjög vinsæl. Árni er sem kunnugt er einnig liðtækur í tónlist af léttara taginu og stofnaði fljótlega Dixielandhljómsveit sína, sem hleypti nýju fjöri í tónlistar- lífið og var m.a. efnt til kabarett- sýninga í samstarfi við Leikfélag Fljótsdalshéraðs. Áfram fjölgaði nemendum og árið 1982 var ráðinn til skólans Breti að nafni David Knowles og var þá farið að kenna á strokhljóðfæri, fiðlu og selló. David starfaði hér í 3 ár en þegar hann hætti var ráðinn annar breskur kennari Róbert Birchall, sem starfar hér enn. Starfssvið skólans var í upphafi miðað við allt Fljótsdalshérað og fyrsta vet- urinn fór Magnús tvisvar í Hall- ormsstað og kenndi þar um tveggja vikna skeið í hvort skipti, en skólanum á Egilsstöðum var lokað á meðan. Það kom fljótt í ljós að þetta form gafst ekki vel og var í framhaldi af því stofnað útibú á Hallormsstað, en nemendur frá Eiðum sóttu skólann á Egils- stöðum um tíma. Á þessum stöðum báðum hefur nú verið stofnaður tónlistarskóli. Auk Lúðrasveit Tónskólans hefur oft sett skemmtilegan svip á bæjarlífið. Pessi mynd er tekin 1987, skömmu fyrir Fœreyjaför sveit- arinnar.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.