Austri


Austri - 19.12.1991, Side 9

Austri - 19.12.1991, Side 9
Egilsstöðum, jólin 1991. AUSTRI 9 Pátttakendur á vortónleikum 1982. fastra kennara við skólann, sem hér hafa verið nefndir að framan, var Sigurbjörg Helgadóttir tónlist- arkennari um skeið. Stundakenn- arar hafa einnig verið nokkrir við skólann. Það er ekki að efa að stofnun Tónlistarfélagsins og síðar Tónskólans markaði tímamót í tónlistarlífi hér á Héraði. Þeir eru orðnir margir einstaklingarnir sem sótt hafa skólann, sumir aðeins stuttan tíma en aðrir hafa staldrað við lengur eins og gengur. Mark- miðið var í upphafi og er enn að gefa þeim sem áhuga hafa á hvaða aldri sem er tækifæri til að læra nótnalestur og hljóðfæraleik. Frá upphafi hefur skólinn verið fullset- inn og nú á 20 ára afmælinu eru nemendur að nálgast 100. Haustið 1982 réðist David Knowles til skólans og hófst þá kennsla á strokhljóðfœri, hér er hann ásamt nemanda sínum Védísi Ingólfsdóttur. Frá tónleikum Tónskólans í apríl 1989. Á tónfundum fá nemendur að spreyta sig. Myndin sýnir nokkra unga blokkflautu- leikara 1990. Áhrif af starfi Tónskólans gætir víða í menningarlífi okkar hér og ég er ekki viss um að allir geri sér í fljótu bragði grein fyrir þeim áhrifum, sem hann hefur haft á mannlíf hér á Héraði. í tengslum við skólann hefur oftast verið starfandi lúðrasveit, sem var á fyrstu árum skólans skipuð bæði börnum, unglingum og fullorðnu fólki. Lúðrasveitir skólans hafa oft sett svip á bæinn við hátíðleg tækifæri, auk þess hafa þær lagt land undir fót, heim- sótt nágrannabæi, sótt mót lúðra- sveita utan fjórðungs og heimsótt frændur Færeyinga. Einnig hefur hér verið mikið sönglíf, blandaður kór „Tónkórinn“ starfaði um 10 ára skeið með miklum blóma og gerði þá víðreist. Stjórnun lúðra- sveitanna og kórsins hefur frá fyrstu tíð verið í höndum Magn- úsar Magnússonar, sem nú æfir kór Egilsstaðakirkju og er organ- isti. Á þessum áratug var Karlakór Fljótsdalshéraðs endurvakinn og hefur hann starfað undir stjórn Árna ísleifssonar. Hér hefur að- eins verið stiklað á stóru í sögu Tónskólans, þeirri sögu verða ekki gerð tæmandi skil í stuttu máli. En á tímamótum sendir Austri Tón- skólanum afmæliskveðjur með ósk um gifturríkt starf á komandi árum sem hingað til. Lokaorðin hér eru tekin úr erindi sem Magnús Magnússon flutti á fundi Rotarymanna í haust. „Árangur af starfi tónlistarskólanna mælum við ekki á mælistiku þess, hve margir fara utan til framhaldsnáms, heldur nægir okkur að líta í Núverandi kennaralið skólans, Magnús Magnússon skólastjóri og tónlistarkenn- ararnir Róbert Birchall og Árni ísleifs- son. kringum okkur. Hvarvetna í þjóð- lífinu sér þessa starfs merki. Þús- undir íslendinga iðka tónlist sér til ánægju í kórum, hljómsveitum af öllum toga og þúsundir eru við nám í tónlistarskólum. Ég tel að þannig beri að meta starfið sem þar fer fram. Aþ Byggt að hluta á erindi Magnúsar Magnússonar sem flutt var á Rotary- fundi á s.l. hausti og spjalli við þá nafna Magnús Magnússon og Magnús Einars- son. Hinsta ferð Guðrúnar Magnúsdóttur Stuttu fyrir jólin 1886 varð Guðrún Magnúsdóttir, þá til heimilis í Fjallsseli í Fellum úti á Fellaheiði. Hún var þá á leið til Jökuldals, nánar tiltekið að finna unnusta sinn, sem var vinnumaður í Hnefilsdal. Þorleifur Stefánsson í Teigaseli fann jarðneskar leifar Guðrúnar árið 1916 en merkti ekki nógu vel við staðinn svo hann fannst ekki aftur. Um það bil 60 árum síðar gekk Eiríkur Sigfússon bóndi á Giljum fram á bein Fjallssels-Gunnu. Nokkru seinna voru beinin sótt og voru m.a. í þeirri för Jón Björnsson frá Hnefilsdal, Völundur Jóhannesson og Ei- ríkur Sigfússon. Beinin voru sett í kassa, sem sérstaklega var smíðaður til þessa og jarðsett í Áskirkjugarði. Hjá beinunum fannst kistulykill og leifar af brennivínskút, sem Guðrún mun hafa ætlað að færa unnustanum. (Um þessa atburði má lesa í Múlaþingi 5. og 7. hefti.) Hin hörmulegu ævilok Guðrúnar hafa komið nafni hennar á spjöld sögunnar og orðið skáldum yrkisefni og má í því sambandi nefna ljóð Benedikts frá Hofteigi „Svefnbrúður“. III örlög Guðrúnar urðu einnig ungum manni, Braga Björnssyni frá Surtsstöðum hugstæð og rúmlega tvítugur að aldri yrkir hann kvæðið sem hér fer á eftir. Örlagaför Fáum reynist Fellaheiði farartálmi í góðu leiði séu veðravöldin blíð. En skjótt er oft í skammdeginu að skella á með norðanhrynu. — Mörg hefur komið manndrápshríð — Lagði á fjallið Fjallssels-Gunna — ferðasöguna engir kunna —, til jólagleði á Jökuldal. Unnusta á æskuskeiði átti fyrir norðan heiði; Þráði yndi og ástahjal. Til að ylja og endurnæra ástvininn sinn hjartakæra var hún á ferð með vín á kút. Vissi hún að vara mundi varmi af þeirra ástarfundi næstum vetur allan út. Ferðin sækist furðanlega, á Fellaheiði miðja vega mætir Gunna mönnum tveim. Ber í loftið bliku svarta, bugast þó ei Gunnu hjarta; — vill ei snúa við með þeim. Brátt er komið versta veður, vasklega samt áfram treður til kærastans með kútinn sinn. Þótt ferðagaman fari að grána Fjallssels-Gunna hvessir brána, frostið herðir, kelur kinn. Þreytist Gunna og þyngist óðum þæfingsfœrð á hennar slóðum. Hríðin enga veitir vægð. Meðan njóta yls frá eldi aðrir menn á helgu kveldi uppgefin hún leggst í lægð. Breiðir hríðin blæju fanna bráðlega yfir kút og svanna, — unnustinn þau aldrei sá — En í fari Fjallssels-Gunnu fagurlega saman runnu áræði, tryggð og ástarþrá. Árin koma, kveðja, renna, kúturinn gisnar, beinin fenna, vínið jarðar vœtir brá. — Loksins fannst samt Fjallssels-Gunna, um forlög hennar vitna kunna bognir stafir beinum hjá.

x

Austri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.