Austri - 19.12.1991, Blaðsíða 15
Egilsstöðum, jólin 1991.
AUSTRI
15
Breyttir tímar
Nýútkomin
bók
Löngum hafa samgönguleiðir á Austurlandi þótt torfærar á köflum. Á
síðari árum hafa þó orðið miklar breytingar til bóta í þessum efnum, þó
að enn bíði þar úrlausna stór verefni.
Öræfin, sveitin milli sanda, er næst vesturmörkum Austurlandskjör-
dæmis. Pessi sveit, sem liggur milli Breiðamerkursands og Skeiðarár-
sands, var löngum talin meðal afskekktustu byggða á landinu með
Öræfajökul að baki og hafnlausa brimsanda framundan. Þó hefur
sveitin verið í þjóðleið um allar aldir íslandsbyggðar, því að framhjá
henni varð ekki komist landleiðina sunnan jökla milli Austurlands og
Suðurlands. En vegna jökulvatnanna á söndunum beggja megin sveitar-
innar var þessi leið oft vandfarin og stundum torfær. Það varð því stór-
felld breyting og samgöngubót, þegar hringvegurinn svonefndi var opn-
aður með brúargerðum á Skeiðarársandi, en eigi löngu fyrr höfðu vatns-
föll sveitarinnar og Breiðamerkursands verið brúuð. Að sjálfsögðu unn-
ust þessar brúarframkvæmdir í áföngum, og fögnuðu menn sameigin-
lega hverjum áfanganum sem vannst. í einu slíku fagnaðarhófi var flutt
eftirfarandi kvæði:
Brúarljóð
í tilefni af brúarbyggingu í Öræfum:
Frá tíð þeirrar farar á feðranna hjarli,
sem fyrst er af sögunni ljós,
er þrælarnir víðförlu, Vífill og Karli,
hér völdu hinn skaftfellska ós,
hafa æðandi jökulvötn sorfið og sagað
og sandorpið blómlega grund,
og búendum amað , en byggðirnar jagað
og bjargræði lamað og samgöngum bagað
hér lengst fram að líðandi stund.
Oft þreytunni og vosinu þrekmennið varðist
með þrautseigju á auðnanna slóð.
Gegn kvíða og ótta þá kjarkurinn barðist,
og kláranna hnignaði móð
með feril að baki, sem fjörganginn lægir,
en framundan elfunnar nið.
Og jöfrarnir frægir, þeir „Jökull“ og „Ægir“,
að jafnaði ei vægir né viðskiptaþægir
þar surfu að sinn hvorri hlið.
Hve oft var á bakkanum starað og staðið
við strauminn með klifberalest,
uns lagt var svo tíðum á tæpasta vaðið
í trausti á Guð sinn og hest
með heimilisbjörgina bundn’ upp á klakkinn,
sem beðið var eftir með þrá.
Gegn flaumnum var barist, þótt freyddi um hnakkinn,
og föllunum varist, uns heimalands-bakkinn
við hófblökum hestanna lá.
En nú hafa vélar á láði og legi
og lofti hér högunum breytt
og rutt hinum þarfasta þjóni úr vegi,
en þægindi búendum veitt.
Par varninginn flytja nú vagnstjórar glaðir
á vegi um járnstælta spöng,
sem ætt fram af ætt gegnum aldanna raðir
um urðir og hættur og keldur og traðir
á reiðingnum reiddi sín föng.
En þess ber að minnast, er mannvirkin rísa,
þótt metist þau rammger og sterk,
að hamfarir skaftfellskra elda og ísa
oft óvirtu mannanna verk.
En á það skal vona og treysta og trúa,
að tíðin sé framundan blíð.
Og því skal hér rækta og byggja og brúa,
að búsældarnægtum og menningu hlúa
á frelsis og framfaratíð.
Sá eilífðarmáttur, sem feðranna förum
til farsældar stýrði yfir láð
um stórfljót og auðnir í stríðustu kjörum,
hann styðji vort framtak og ráð.
Hann láti ekki kraftinn frá ljósinu þverra,
sem lægt getur jökulsins ris.
Hann blessun æ gefi til hagsælda hverra,
en hefti og sefi öll áhrif hins verra,
svo hindrist hver hörmung og slys.
Hver dagleið æ markast af dögun og kvöldi,
hvort dæmist hún treg eða greið.
Að alheimsins lögum vor lífdagafjöldi
sig lestar um ævinnar skeið.
En hvernig sem kappið við hvetjum og brýnum,
þá hverjum er nóttin þó vís.
Þá gott er að finna í farangri sínum
þann farsældar-vinning, að áttum ei týnum,
uns morgunsól mót okkur rís.
Þorsteinn Jóhannsson
Svínafelli, Öræfum
ÞÉR VEITIST INNSÝN
Leiðsögn á lífsleiðinni
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
3. útgfu lífsspekibókarinnar „Þér
veitist innsýn“. Einn lesandi gaf
henni nafnið „Náttborðsbókin“ —
lykill að lausn vandamála minna.
í formála þýðanda segir m.a.:
„Trú mín er að þessi gagnmerka
bók eigi eftir að verða mörgum til
blessunar og leiðsagnar í andlegri
leit þeirra, og færa birtu inn í Iíf
margra, sem hugsanlega hafa ekki
getað fundið haldfestu á hálum
leiðum þessa heims. Hér er að
finna speki sem hver maður á að
geta fært sér í nyt í flestum vanda-
málum lífsins. Segja má að hagnýti
kenninganna sé slíkt að sérhver
geti fundið lykil að sínum vanda-
málum.“
ÞÉR VEITIST INNSÝN er 153
bls. Sveinn Ólafsson íslenskaði.
Hönnun og útlit: Hafsteinn Guð-
mundsson. Offsetprentun og
bókband: Oddi hf.
SHELL stöðvarnar
á Austurlandi
óska viðskiptavinum sínum og landsmönnum
öllum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári.
Um leið og við þökkum viðskiptavinum okkar
árið sem er að líða viljum við minna á að veturinn
er genginn í garð.
Höfum fyrirliggjandi allt til vetraraksturs:
— Vetrarmottur
— íseyði á rúðurnar
— ísvara í bensínið
— DEEZOL í dieselolíuna
— Rúðusköfur
— Fjölþykktarolíur
— Frostlög
— Sœtaáklœði
— BRITAX barnastóla
SHELL stöðvarnar
Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað
Eskifírði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfírði
Gott er heilum bíl heim að aka.
XMÆSiMiÆníXnXMXBiíBMMiiBiniÆÆMiMÍÆÆMÆÆÆMiMiÉM