Austri - 19.12.1991, Side 16
16
AUSTRI
Egilsstöðum, jólin 1991.
arnagaman
Kafli úr bókinni
„Raggi litli í sveitinni“
eftir Harald S. Magnusson
Strákarnir voru komnir
næstum alveg upp á Ásinn og
voru þar í hvarfi milli hóla. Raggi
litli leit stundum um öxl til aö vita
hvort hann sæi ekki mömmu
sína, því að hann mundi hvaö
hún haföi sagt, en Bjössi vildi
halda áfram og fara alveg upp á
hæsta hólinn.
Þá heyrðu þeir kallað:
„Raggi, Bjössi, Bjössi,
Raggil"
og að lokum dóu þau út. Þeir
risu á fætur og ætluðu að fara í
sömu átt og hún.
En nú fór illa. Þegar þeir komu
á bak við hólinn þar sem
mamma Ragga hafði horfið
beygðu þeir ekki í sömu átt og
hún, heldur tóku þveröfuga
stefnu og fjarlægðust Stóra-Bæ
jafnt og þétt. En það vissu þeir
ekki.
Þeir litu við og sáu mömmu
Ragga koma hlaupandi á þúfna-
kollunum. Hún hafði enn ekki
séð þá.
Allt í einu kippti Bjössi í
Ragga þannig að hann datt
næstum því. Hann dró Ragga
áfram milli stórra steina og bað
hann að leggjast niður og þegja
og láta sem minnst á sér bera.
Þeir lágu þarna í hvarfi á
meðan mamma Ragga hljóp
fram hjá þeim og kallaði í þá til
skiptis. Ragga langaði til að rísa
upp og kalla í hana á móti, en
Bjössi hélt í hann, því að hann
vildi ekki fara heim strax.
Mamma hljóp áfram eftir
Ásnum og hvarf á bak við hól.
Smám saman fjarlægðust köllin
Raggi litli var alltaf að skima í
kringum sig eftir mömmu sinni.
Hann var orðinn smeykur og
spurði Bjössa:
„Ratarðu til baka?“
„Nei, nei, við erum orðnir
rammvilltir,“ svaraði Bjössi
borginmannlegur. Hann ætlaði
að stríða Ragga og benti í allar
áttir. „Stóri-Bær gæti verið á
öllum þessum stöðum."
Ragga varð ekki um sel. Þeir
héldu áfram, en eftir dálitla
stund gerði Bjössi sér grein fyrir
því að hann var raunverulega
orðinn villtur. Hann lét á engu
bera, en tók aðeins fastar um
hönd Ragga eins og hann vildi
vernda hann.
Hann hélt ótrauður áfram.
Mamma Ragga litla hlaut að
fara að koma og bjarga þeim úr
þessari klípu.
Þegar mammma Ragga hafði
hlaupið fram og aftur um Ásinn
án þess að finna strákana ákvað
hún að hlaupa til baka, hringja til
næstu bæja og biðja um hjálp.
Brátt barst sú frétt um alla
sveitina að tveir strákar frá
Stóra-Bæ væru týndir. Síminn
hringdi stanslaust, því að allir
vildu hjálpa. Brátt kom fólk að
Stóra-Bæ og fór að leita uppi á
Ásnum.
Bjössi og Raggi voru orðnir
mjög þreyttir, en héldu ferðinni
samt áfram. Þeir gengu upp á
hól og hlupu niður af honum og
upp þann næsta. Svona gekk
þetta nokkurn tíma. Allt í einu
voru þeir komnir upp á Ásinn þar
sem hann var hæstur.
Þeir litu niður í dalinn. En
Stóri-Bær var hvergi sjáanlegur
og þeir könnuðust ekkert við
þennan dal. Eftir honum rann á,
og beint fyrir neðan þá var brú
yfir hana. Handan árinnar var
bóndabær sem þeir þekktu ekki.
Þeir ákváðu að fara þangað og
fá að hringja heim og láta vita
hvar þeir væru.
Strákarnir hlupu síðasta spöl-
inn heim að bænum og börðu að
dyrum. Maðurinn sem kom til
dyra var ekkert hissa að sjá
gestina. Hann spurði:
„Er annar ykkar kallaður
Raggi og hinn Bjössi? Það var
hringt í mig frá Stóra-Bæ og
sagt að þið væruð týndir."
Maðurinn sagði þeim að bær-
inn héti Lækjarbakki og væri
hinum megin við Ásinn. Hann
bauð þeim inn og spurði hvor
þeir væru ekki svangir eftir allt
labbið. Þeir sögðu já við því, og
á meðan þeir fengu sér brauð
og mjólk hringdi maðurinn að
Stóra-Bæ og lét vita að þeir
væru komnir fram.
Þegar þessi tíðindi bárust
þangað var farið með lak upp á
þakið á húsinu og breitt úr því
þar. Fólkið sem var að leita uppi
á Ásnum sá lakið og vissi að
þetta merkti að strákarnir væru
fundnir. Boðin voru fljót að ber-
ast milli manna og ekki leið á
löngu þar til leitinni var hætt. Allir
voru glaðir og fegnir því að
strákarnir voru heilir á húfi.
Orðaleit
Nú eigið þið að finna nokkur mannanöfn í stafasúpunni. Nöfnin
geta verið lárétt, lóðrétt eða skáhöll, bæði afturábak og áfram.
Sami bókstafur getur verið í fleiri en einu nafni. Nöfnin sem þið
eigið að finna eru:
Alfreð, Ásgeir, Bjarni, Davíð, Eggert, Guðmundur, Helgi, Jóhann,
Karl, Magnús, Reynir, Sigfús, Torfi, Þorvaldur, Örn.
A
P
Ö
S
G
V
N K
J
Ð
E
S
K
T
D
O
E
A
R
I
E
G
S
Á
U
Ú
Ð
R
N
Y
N
H
U
B
A
T
N N
T L
A
K
Ó
R
F
Á
Þ
R
T
Ð
E
S
R
O
I
G
A
F
M
R
Ú
L
I
R
H
Æ
M B U
J H D
N
S
G
T
B
G
D
J
Ö
B
R
U M
A V
I
U
H
N
E
K
G
F
I
L
A
V
R
O
Þ
G
S
M
R
U
M
S
Ú
Ö
E
A
P
A
J
Y
R
E
L
A
Ó
Á
í
N
L
Ð
K
J
S
K
Ð
G
R
E
Y
N N
F
P
I
R
Æ R
Geturðu komið knettinum í netið?
Lausnir á bls. 34.
Hundar og
kanínur
Þessi þraut er í því fólgin að láta
hundana og kanínurnar skipta
um staði. Aðeins má færa dýrin
eftir beinum línum á auða hringi
og best er að nota keilum í
ólíkum litum fyrir hvert dýr. Þið
ráðið alveg í hvaða röð þið
færið dýrin t.d. má færa sama
hundinn þrisvar í röð ef þið
viljið. En athugið! Aðeins má
færa dýrin 16 sinnum alls.
Lausnir á bls. 34.
Heilabrot
I234
Raðið þessum 5 tölum þannig að þegar 2 fyrstu eru margfald-
aðar með tölunni í miðjunni þá myndi 2 síðustu tölurnar
útkomuna.