Austri - 19.12.1991, Page 17
Egilsstöðurrij jólin 1991.
AUSTRI
17
Ráðgáta
„Segðu mér þetta allt saman
aftur, Ómar“, sagði löggan,
„það er eitthvað í frásögninni
sem ég skil ekki“.
Ómar endurtók frásögnina:
„Ég hafði farið upp á hótelher-
bergið mitt til að hafa fataskipti.
Þegar ég var í miðjum klíðum að
skipta um föt kom þjófurinn
aftan að mér. Hann hlýtur að
hafa verið í herberginu þegar ég
kom inn og hefur áreiðanlega
falið sig bak við gluggatjöldin.
Ég hafði teygt báða handleggina
upp í loftið og hann skipaði mér
að snúa mér við. Ég gerði það
og þá skipaði hann mér að fara
inn í fataskápinn, sem ég gerði,
og þar var ég innilokaður meðan
hann komst undan“.
„Já, já, þetta liggur Ijóst fyrir“,
sagði löggan, „en ég skil bara
ekki af hverju þú getur ekki gefið
lýsingu á þjófnum. Þú hefur
ágæta sjón, Ijósin voru kveikt og
þú stóðst rétt hjá honum. Þú
hlýtur að geta lýst honum eitt-
hvað.“
„Ég sagði þér að ég hefði ekki
séð hann. Þú veist hvað ég var
að gera þegar ég varð var við
þjófinn", sagði Ómar.
Hvers vegna sá Ómar ekki
þjófinn?
Lausnir á bls. 34.
Eru þær eins?
Finndu 7 atriði sem hefur verið breytt á neðri
myndinni. Lausnir á bls. 34.
Óli: Af hverju ertu að skæla?
Siggi: Hundurinn minn er
dáinn.
Óli: Láttu það ekki á þig fá. Ekki
skældi ég þegar afi dó.
Siggi: Þú hafðir heldur ekki átt
hann síðan hann var hvolpur.
★
Stína: Ósköp ertu gráhærð,
mamma mín.
Mamma: Já, mömmurnar
verða gráhærðar þegar litlu
stúlkurnar eru ekki góðar.
Stína: Amma er miklu grá-
hærðari.
★
Fimm ára strákur lék sér í stof-
unni og faðir hans sem var bíl-
stjóri lá í sófa og hraut ógur-
lega. Þar kom að bílstjórinn
velti sér á hliðina og hætti að
hrjóta. Drengurinn hljóp með
miklu írafári til móður sinnar og
sagði: Mamma, mamma,
komdu fljótt til hans pabba.
Hann hefur drepið á sér.
REIKNIÐ NÚ ÚT
Eins og sést á myndinni fer strikið yfir 6 reiti og
samtals er upphæðin í þeim 50, þegar saman er
lagt. — Nú er það vandinn að draga beint strik yfir
6 reiti og fá út úr þeim samtals 75.
2 5 9 6
15 7 16
12 14 10 'n
Z' 'C 1 13
Reyndu nú að draga samfellda línu frá kettinum til rottunnar með því að draga línu gegnum
hvern bókstaf og hvert hlið. Þú mátt bara fara einu sinni í gegnum hvern bókstaf og hvert
hlið og þú mátt aldrei fara yfir línuna.
Lausnir á bls. 34.
Loftbelgjakeppni.
Þátttakendur nota keilur (eða tölur, eða annað sem hentar) af mismunandi lit og skiptast á um að kasta peningi. Ef talan
kemur upp á að færa keiluna um 2 reiti en ef skjaldarmerkið kemur upp á að færa keiluna um 1 reit. Ef þatttakandi lendir
á stjörnu má hann gera aftur.