Austri - 14.01.1993, Qupperneq 7
Egilsstöðum, 14. janúar 1993.
AUSTRI
7
Frá fundi
Framkvæmdaráðs SSA
Samþykkt framkvæmdaráðs Sam-
bands sveitarfélaga í Austurlands-
kjördæmi varðandi fyrirhugaðar
ráðstafanir ríkisstjómarinnar í efna-
hagsmálum.
Á fundi framkvæmdaráðs SSA
miðvikudaginn 16. des. 1992 var
m.a. fjallað um fyrirhugaðar ráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar í efna-
hagsmálum er varða sveitarfélögin.
Fyrir fundinum lágu samþykktir
nokkurra sveitarstjóma á sam-
bandssvæðinu vegna málsins.
Meðfylgjandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða:
“Svo ber við urn þessar mundir að
boð hafa komið frá rrkisstjórninni,
sem túlka verður á þann veg að ó-
þarfi sé að skrásetja alla lands-
byggðina.
Af fyrirhuguðum ráðstöfunum rík-
isstjómarinnar í efnahagsmálum, er
snerta tekjur sveitarfélaganna virð-
ist mega ráða að hún hafi tilhneig-
ingu til að höggva sérstaklega í
þann knérunn að skerðingu valdi á
tekjustofnum flestra sveitarfélaga á
landsbyggðinni umfram önnur, sem
betur gætu þolað hana.
Framkvæmdaráðið vill í þessu
sambandi nefna eftirtalin atriði:
1. Við niðurfellingu aðstöðugjalds-
ins á næsta ári er reiknað með að
bæta sveitarfélögum einungis sam-
bærilega hlutfallstölu og innheimt
hefur verið til Reykjavíkur. Flest
sveitarfélög, sem byggja á sjávarút-
vegi, hafa búið við mun betri inn-
heimtu, enda ekki vanþörf á með
tilliti til þess að þau hafa mörg hver
að undanförnu þurft að leggja fram
ómældar upphæðir til að treysta
rekstur undirstöðufyrirtækja at-
vinnulífs vítt og breitt um landið.
2. Augljóst er að hækkun á með-
lagsgreiðslum, sem nú hefur verið
kynnt, mun hafa það í för með sér
að aukin vanskil verði að óbreyttu
sótt af innheimtustofnun sveitarfé-
laga í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga,
en það mun líklega þýða lækkun á
jöfnunarframlögum til tekjulægri
sveitarfélaga sem nemur 300 - 350
millj., verði ekki gerðar sértækar
ráðstafanir til að hindra það.
3. Sama er uppi á teningnum, þeg-
ar skoðaðar eru afleiðingar þess ef
ríkisstjóminni tekst að koma fram
ætlunarverki sínu að leggja 14%
VSK á húsahitun, skólaakstur o.fl.,
en það mun sérstaklega koma til
með að hafa áhrif á mörg sveitarfé-
lög á landsbyggðinni og íbúa
þeirra.
Samkomulag stjórnar Sambands
íslenzkra sveitarfélaga og ríkis-
stjómarinnar um 500 millj. króna
framlag sveitarfélaganna í Atvinnu-
leysistryggingasjóð á næsta ári
bendir til þess að þau ætli sér ekki
að vera “stikkrí” fremur en
endranær að axla þær byrðar, sem
samdráttur í þjóðfélaginu hefur í
för með sér. Skipting framlaga í
sjóðinn kemur eflaust eitthvað mis-
jafnt niður á sveitarfélögum, en
hún byggir ekki á þeim sjónarmið-
um, sem virðist vera meginregla
núverandi stjórnvalda að ráðast
beint eða óbeint á Jöfnunarsjóð
sveitarféaga og þar með sérstaklega
á sveitarfélögin víða á landsbyggð-
inni”.
Fréttatilkynning
Smábátafélagið
Nökkvi á Norðfirði
Aðalfundur smábátafélagsins
Nökkva á Norðfirði, sem haldinn
var 2. janúar s.l. tekur undir erindi
frá 8. aðalfundi landssambands
smábátaeigenda um dragnótaveið-
ar, en þar segir meðal annars:
“Mikil og almenn óánægja hefur
lengi verið með ofnotkun dragnótar
á gmnnslóð og þó sérstaklega inni
á fjörðum. Nær sú óánægja langt
út fyrir raðir smábátaeigenda.
Meðal annars er talið að dragnót
hafi skaðvænleg áhrif á hrygningu
staðbundinna fiskistofna sbr. merk-
ingar á hrygningarstofni í Stöðvar-
firði og Bakkafirði.”
Þá finnst fundarmönnum óskiljan-
legt að engin viðbrögð hafi borist
við bréfi félagsins varðandi drag-
nótaveiðar í Norðfirði, Hellisfirði,
Viðfirði og Mjóafirði, sem sent var
til nefndar um bætta umgengni um
auðlindir sjávar þann 11. maí s.l.
Vilja fundarmenn benda á að víða
eru í gildi bönn við þorskveiðum í
dragnót, þó leyfð sé þar skarkola-
veiði í þar til gerða nót, en þess
konar fyrirkomulag gæti átt við um
fyrrgreinda firði.
Einnig ályktaði fundurinn um tírna-
setningu möskvastærða þorskaneta
og leggur til eftirfarandi:
1. 6 tommu möskvar verði leyfðir
allt árið.
2. Netaveiðibannið frá 1. júlí til 15.
ágúst verði afnumið vegna ýsu-
gengdar á grunnslóð á þessu tíma-
bili. Fréttatilkynning
Norræn
hljómsveit
Næsta sumar verður hleypt af
stokkunum norrænu verkefni á sviði
æskulýðsmála undir heitinu “
Orkester Norden”. Um er að ræða
samstarfsverkefni milli Sambands
Norrænu félaganna á Norðurlönd-
um. Norðurlandaumdæmi Lions-
hreyfingarinnar og Jeunesses Musi-
cales auk þess sem ýmsir aðrir veita
því stuðning sinn. Fjárhagslegur
bakhjarl verkefnisins er Norræni
Menningarmálasjóðurinn, auk þess
sem Lionshreyfingin veitir öllum
þátttakendum styrki til þess að
standa undir hluta útgjalda þeirra
vegna þátttökunnar.
Markmiðið með “Norrænu hljóm-
sveitinni” er að treysta samheldni
norræns æskufólks og miðla þeim
og öðrum þekkingu um norræna tón-
list. Duglegu ungu tónlistarfólki á
aldrinum 15-25 ára verður boðið að
taka þátt í móti, sem hefst á 10 daga
námskeiði í Ingesunds tónlistarhá-
skólanum í Arvika í Svíþjóð o g lýk-
ur með 4 daga tónleikaferð um val-
inn hluta Norðurlandanna. Á næsta
ári er gert ráð fyrir að stofnuð verði
um 50 manna kammersveit, sem
verði síðan stækkuð í um 100 manna
sinfóníuhljómsveit sumarið 1994.
Fagleg ábyrgð á efnisvali og tón-
listarflutningi er í höndum Finnans
Esa Pekka Salonen, sem er einn af
fremstu hljómsveitarstjórum af yngri
kynslóðinni í dag. Hann mun jafn-
framt stjóma sinfóníuhljómsveitinni
sumarið 1994.
Það tónlistarfólk á aldrinum 15-25
ára, sem hefur áhuga á að taka þátt í
“Norrænu hljómsveitinni” getur
pantað nótur og umsóknareyðublöð
fyrir 31. janúar 1993 hjá Orkester
Norden, c/o Svenska Rikskonserter,
Boks 1225,S 111 82 Stockholm.
Eyðublaðinu ásamt snældu með
SNJÓMOKSTUR
Tökurri að okkur
snjómokstur fyrir
fyrirtœki og
einstaklinga.
/ATHUGIÐX
Látið gera upp
*
BOLHOLT HF
©97-11609 985-23783 & 28507
hljóðfæraleik viðkomandi þarf síðan
að skila fyrir 15. febrúar 1993. “
Orkesten Norden” verður síðan
mynduð á grundvelli niðurstöðu
dómnefndar.
Bæklingi, sem inniheldur upplýs-
ingar um verkefnið og Boð til ungs
norræns tónlistarfólks, hefur verið
dreift til all flestra Lionsklúbba á ís-
landi, en auk þess er hægt að nálgast
þá hjá félagsdeildum Norræna fé-
lagsins. Fréttatilkynning
^ U P o L. F L o o r :
P A R K i- LLl
|Eik, ASKUR, B E Y K 1 O G HLYNURI
Parketþjónusta Gegnheilt parket
Leggjum, slípum og lökkum Margar viðartegundir, límt á stein
parket og gólfborð. eða neglt á grind.
Trésmíðaverkstæði
Smíðum útihurðir, glugga, sólstofurog
sumarhús. Einnig öll almenn bygg-
ingarstarfsemi, nýsmíði og viðhald.
EYÞOR OLAFSSON
Tjarnarási 8 - Egilsstöðum
VS. 97-11290 HS. 97-11116
FUNDARBOÐ
Aðalfundur Tollvörugeymslu Austurlands hf. verð-
ur haldinn í Verkalýðshúsinu á Reyðarfirði, mið-
vikudaginn 20. janúar 1993 og hefst kl. 14:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Umræður um framtíð félagsins.
Stjórnin
ALLAR ALMENNAR BILAVIÐGERÐIR
Þjónustuumboð:
Hekla,
Brimborg,
Toyota,
Glóbus,
Bifreiðar og
Landbúnaðar-
vélar
❖ Smurþjónusta
❖ Mótorstillíng
❖ Hjólastilling
Söluumboð: Búvélar frá Glóbus.
Önnumst allar
jeppabreytingar
Setjum túrbínur í Toyota Hilux
með ábyrgð frá umboðinu.
Bifreiðaverkstœði
Borgþórs
Gunnarssonar
Miðási 2
Egilsstöðum
Sími 97-11436
EGILSSTAÐABÆR
ALMENN KAUPLEIGUÍBÚÐ
Til úthlutunar er þriggja herbergja
almenn kaupleiguíbúð í fjölbýlishúsi
á Egilsstöðum.
íbúðin er laus nú þegar. Nánari
upplýsingar veittar á bæjarskrifstofunni.
Bæjarstjóri.
Medic Alert Egilsstaðakirkja
17. janúar
Ccw Fj ölskylduguðsþ j ónusta
GEFÐU LÍFINU GILDI kl. 11:00
Lionsklúbburinn Múli Sóknarprestur
reiðhjólin
fyrir vorið.
Reiðhjólaviðgerðir
Hjólmar
\ © 11288 /
Ókeypis
smáauglýsingar
Vantar þig Bragga? Tilboð óskast í
gaman Bragga við Sláturhúsið á
Egilsstöðum. Uppl. í síma 11200.
Til sölu NINTENDO leikir á
tilboðsverði. Einnig til söiu NINTENDO
tölva. Nánari uppl. í síma 11050.
Til sölu góðar lopapeysur. Uppl. í
síma 11570.
Til sölu Toyota Corolla. Uppl. í síma
11349.
Þorrablót
árshátíðir
Bjóðum uppá tónlist
fyrir alla aldurshópa.
Sköpum réttu
stemmninguna.
Hljómsveitin
FIMMAN
Uppl. í símum
82055 / 81581
Tvær ferðir íviku!
Brottför úr Reykjavík:
þriðjudaga og föstudaga.
Afgreiðsla á Landflutningum.
Sími 91-685400.
Bílasímar:
KT-232 sími 985-27231
U-236 sími 985-27236
U-2236 sími 985-21193
SVAVAR & K0LBRÚN
sími 97-11953/sími 97-11193
700 Egilsstöðum
" N
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði skorar hér með á gjaldendur
eftirtalinna vangoldinna opinberra gjalda álögum 1991 og 1992 á
einstaklinga og lögaðila í umdæmi sýslumannsins á Seyðisfirði,
að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá
dagsetningu áskorunnar þessarar.
Gjöldin eru þessi: Vanskilafé staðgreiðslu og tryggingargjalda
eindagað fram til 15. desember 1992, ógreiddur virðisaukaskattur
eindagaður til 4. desember 1992 og þungaskattur vegna ökumæla
fyrir 3. álestrartímabil 1992. Þá nær úrskurðinn til viðbótar- og
aukaálagningar framangreindra opinberra gjalda vegna fyrri
tímabils. Svo og vegna áfallinna viðurlaga, vaxta og verðbóta á
ofangreind gjöld.
Fjárndms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna auk vaxta og viðurlaga, að liðnum 15
dögum frá birtingu áskorunar þessarar.
Seyðisfirði 6. janúar 1993.
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði.