Austri - 25.03.1993, Síða 5
Egilsstöðum, 25. mars 1993.
AUSTRI
5
Guttormur V. Þormar:
Frá Búnaðarþingi
Á nýlega afstöðnu Búnaðarþingi
lágu m.a. fyrir erindi frá Barra hf. á
Fljótsdalshéraði um endurskoðun á
lögum um skógrækt og starfsemi
Skógræktar ríkisins. Vegna þeirrar
umræðu og rangtúlkana á erindinu,
sem valdið hafa nokkrum óróa, tel
ég rétt að birta ályktun Búnaðar-
þings í heild, ásamt greinargerð:
“Búnaðarþing fagnar þeirri hreyf-
ingu, sem orðið hefur í skógrækt á
Islandi síðustu ár. Markast hún af
auknum áhuga á skógræktarstarfi
meðal bænda, ýmissa félagasam-
taka og einstaklinga. Að sama
skapi hefur gróðursetning og fram-
leiðsla skógarplantna og garð-
plantna margfaldast.
I ljósi þessara aðstæðna telur Bún-
aðarþing nauðsynlegt, að lög um
skógrækt verði endurskoðuð, og
löguð að breyttum viðhorfum. Við
þá endurskoðun verði leitast við að
treysta skógrækt og vinnslu skógar-
afurða sem atvinnuveg í sveitum og
finna jafnræðisgrundvöll fyrir
gróðrarstöðvar í skógrækt.
Lögð verði áhersla á að Skógrækt
ríkisins sinni áætlunum og leið-
beiningum í skógrækt, sem og
skógarrannsóknum, og vinni mark-
visst að rannsóknum á vinnslu og
markaði skógarafurða og hvemig
skógrækt þjóni best þjóðarhags-
munum.
Stuðningur ríkisins við skógrækt
bænda miðist við að skógræktin
verði liður í búskap og efli búsetu í
sveitum landsins.”
Greinargerð:
Allt frá því að Skógrækt ríkisins
var stofnsett má segja að skógrækt-
arstarfið hafi verið borið uppi af
Skógrækt ríkisins. Með breyttum
áherslum í landbúnaði verður skóg-
ræktin drjúgur þáttur í því land-
bótastarfi, sem bændur landsins
vinna.
Gróðrarstöðvar Skógræktar ríkis-
ins hafa haft nokkra sérstöðu fram
að þessu með sínu brautryðjenda-
starfi og stór hluti af framleiðslu
skógarplantna hefur farið þar fram.
Aftur á móti hefur Skógrækt ríkis-
ins á seinni árum dregið úr fram-
leiðslu garðplantna og hefur sú
framleiðsla færst í auknum mæli til
garðyrkjubænda.
Nauðsynlegt er að rekstrargrund-
völlur einkafyrirtækja í plöntuupp-
eldi og þeirra stöðva Skógræktar
ríkisins, sem framleiða og selja
skógarplöntur, sé sambærilegur.
Þá var lagt fyrir þingið erindi Bún-
aðarsambands Austurlands um
námskeiðahald og búnaðarmenntun
á Skriðuklaustri, sem fékk eftirfar-
andi meðferð:
“Búnaðarþing vísar til fyrri sam-
þykkta sinna varðandi hugmyndir
um nýtingu Skriðuklausturs.
Þingið leggur ríka áherslu á að það
námskeiðahald sem hófst þar á síð-
astliðnu ári, falli ekki niður. Þá er
brýnt að samdar verði reglur um
starfsemi svonefndrar gestaíbúðar á
staðnum. Þingið beinir því til
stjómar Búnaðarfélags íslands að
hún leggi þessum málum liðsinni
eftir því sem unnt er.”
Greinargerð:
Búnaðarþing hefur ítrekað ályktað
um starfsemi á Skriðuklaustri og
lýst fullum stuðningi sínum við að
þau skilyrði, sem sett eru í gjafa-
bréfi skáldsins Gunnars Gunnars-
sonar verði virt. Á útmánuðum
síðastliðið ár hófst þar námskeiða-
hald í sama formi og haldin eru á
búnaðarskólunum og í samvinnu
við þá. Námskeið þessi voru ágæt-
lega sótt og með þeim var komið til
móts við þarfir fólks á Austurlandi
um fræðslu í heimahéraði í stað
þess að sækja hana um langan veg
með æmum kostnaði. Festa þarf
þetta námskeiðahald í sessi.
Þá em ekki neinar reglur um nýt-
ingu gestaíbúðarinnar á staðnum,
en hún heyrir undir Menntamála-
ráðuneytið. Þörf er á að úr því
verði bætt sem fyrst.
Fyrir þessu þingi lágu alls 45 mál,
sem væntanlega verða gerð einhver
skil síðar.
Aðlögunarnámskeið fyrir fatlaða
Dagana 16.-18. apríl n.k. gengst
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra,
fyrir námskeiði, sem ætlað er hreyfi-
hömluðu fólki. Þetta er í fjórða sinn
sem slíkt námskeið er haldið en þau
em sniðin eftir finnskri fyrirmynd og
hafa gefið mjög góða raun.
Á námskeiðinu verður fjallað um fé-
lagslegar afleiðingar fötlunar. Fluttir
verða stuttir fyrirlestrar um viðhorf
almennings til fötlunar, viðbrögð vina
og vandamanna og viðbrögð einstak-
lingsins við nýjum og breyttum að-
stæðum. Á námskeiðinu verður
einnig fyrirlestur um tryggingamál og
réttindi fatlaðra varðandi ýmsa þjón-
ustu og starfsemi Öryrkjabandalags
íslands, Sjálfsbjargar og íþróttasam-
Vegna fréttar sem birtist í ó.tbl.
sl. um fræðslustjóra Kirkjunnar á
Austurlandi var sagt að Þórhall-
ur Heimisson væri sóknarprestur
í Neskaupstað. Hið rétta er að
hann er fræðslustjóri Kirkjunar á
Austurlandi en er að leysa sókn-
arprestinn í Neskaupstað af í 6
mánuði. Edda Jónsdóttir er því
að leysa Þórhall af á þessu sama
tímabili. Beðist er velvirðingar
á þessum leiðu mistökum.
band fatlaðra. Á námskeiðinu verður
unnið í litlum hópum. Þar verða rædd
ýmis mál sem snerta daglegt líf fatl-
aðs fólks, bæði mál sem öllum eru
sameiginleg og svo sérstök vandamál
þátttakenda. Hópstjóri er í hverjum
hópi sem hefur menntun og reynslu af
vinnu með fötluðu fólki. Hins vegar
fer engin bein líkamleg þjálfun fram á
námskeiðinu.
Námskeiðið er einkum miðað við
fólk eldra en 16 ára, sem hefur fatlast
af einhverjum orsökum. Dæmi um
slíkt eru mænusköddun, vöðva- og
miðtaugakerfissjúkdómar, liðagigt,
klofinn hryggur, helftarlömun, út-
limamissir, fólk með MS-sjúkdóm-
inn, og fleira. Auk hreyfihamlaðra
eru aðrir ættingjar, makar og vinir
einnig boðnir velkomnir á námskeið-
ið.
Námskeiðið er haldið á vegum
Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra,
í húsi Styrktarfélags lamaðra og fatl-
aðra, í Reykjadal, Mosfellsbæ. Nám-
skeiðssgjald er kr. 5.200 og er fæði,
gisting og námskeiðsgögn innifalin.
Ferðakostnaður er greiddur fyrir þátt-
takendur af landsbyggðinni. Tilkynn-
ið þátttöku fyrir mánudaginn 5. apríl
til Lilju Þorgeirsdóttir á skrifstofu-
tíma í síma 91-29133. Fréttatilkynning
ixixixixixi:
rixixixi:
Eyjólfur Sverrisson, knattspymumaður
„STJ ÖRNUBOKIN
HITTIR BEINT í MARK!“
—o-------------
Með sþariáskrift a’Ó Stjörnubók er unnt a'ð losa alla innstœðuna á sama tíma.
Verðtrygging og háir raunvextir.
Vextir bókfærðir tvisvar á ári. Lausir til útborgunar eftir það.
Hver innborgun bundin í 30 mánuði.* Eftir það er hún alltaf laus til útborgunar.
Spariáskrift - allar innborganir lausar á sama tíma.
Lántökuréttur til húsnæðiskaupa. Lánsupphæð hámark 2,5 milljónir til allt að 10 ára.
Ef nauðsyn ber til getur reikningseigandi sótt um heimild til
úttektar á bundinni fjárhæð gegn innlausnargjaldi.
5TJÖRNUBÓH
BLINAÐARBANKINN
EGILSSTÖÐUM