Austri - 15.04.1993, Page 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum, 15. apríl 1993.
Guttormur V. Þormar:
Frá Búnaðarþingi
niðurlag
Umsjón :
Amdís Þorvaldsdóttir
Ég skal kveða
við þig vel
Einar Beinteinsson fæddist í
Grafardal í Borgarfirði-syðra 5.
febrúar 1910. Hann mun þegar á
unga aldri hafa farið að setja
saman vísur og kvæði, enda alinn
upp í stórum systkinahópi, þar
sem skáldskapur var í heiðri
hafður. Systkinin í Grafardal
voru 8 og fengust þau öll við
skáldskap, þegar þau eltust nema
ein systir. En sagt var að undir-
meðvitundin hafi ekki getað sætt
sig við þá vanrækslu hennar, því
fyrir kom að hún orti vísur í
svefni. Einar missti heilsuna hálf
þrítugur, en þá fór hann að kenna
sjúkleika af völdum heilaæxlis
sem ekki tókst að komast fyrir,
þrátt fyrir skurðaðgerð í Dan-
mörku og bjó hann því við
heilsuleysi til æviloka. Árið 1954
kom út eftir hann ljóðabókin
“Um dægur löng.” Rúmlega ald-
arfjórðungi síðar stóðu ættingjar
hans að útgáfu annarar bókar
“Stuðlamál” og hefur hún að
geyma úrval ljóða hans og áður
óbirtan kveðskap frá seinni hluta
ævinnar, en hann lést í júlí 1978
þá 68 ára að aldri. Einar var
rímnaskáld og orti m.a. Far-
mannsrímur byggðar á Hrafnkels
sögu Freysgoða. Hann var fljúg-
andi hagmæltur og fljótur að
kasta fram vísu og oft glettinn.
Eitt sinn þegar honum þótti fé-
laga sínum mælast vel, varð til
eftirfarandi vísa:
Sigurður á þarflegt þing
sem þegnar eftir taka
hefur hann kjaftinn hring í hring
og hálfa leið til baka.
Um sumarkomuna segir Einar:
Þegar vorið gyllir grund
gróa blóm á vengi.
Þú átt sólrík sumarstund,
silfurtæra strengi.
Kveðja til stúlku:
Gæfist næði, væna víf,
væri æði gaman
að við bæði lítið líf
létum fæðast saman.
Haust:
Bylgjur rísa vítt um ver,
vindar blása svalir.
í haustsins litum hrósa sér
hrjúfir Islandsdalir.
Á góðri stund:
Vín á könnu kvæðablað
kæti vekur geði,
ungum mönnum þykir það
þarfleg stundargleði.
Vor.
Fuglar láta léttum róm
lifna máta gaman,
lindin kát og bakkablóm
brosa og gráta saman.
Sléttubönd:
Hrönnin bláa svelgir sól,
sveipar hauður skugginn.
Hvönnin smáa klakakjól
klæðist nauða guggin.
Dagur líður fróni frá,
fennir hríðarsvæði.
Hagur blíður þykir þá
þegar hlýðum kvæði.
Hamar tíðin, gneipur gín
gulur hlíðarslakki.
Varnar lýðum sólarsýn
svartur hríðarbakki.
Með kveðju AÞ
7^1
Tilkynning frá
félagsmálaráðuneytinu
varðandi sumardvalarheimililsumarbúðir bama
Athygli er vakin á pví að sækja parf um leyfi til
félagsmálaráðuneytisins til að mega stofna og reka
sumardvalarheimili/sumarbúðir fyrir börn, sbr. 52. gr.
laga um vernd barna og ungmenna nr. 58/1992 og
reglur um sumardvalarheimili barna og sumarbúðir
nr. 160/1993.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu
félagsmálaráðuneytisins, Hafnarhúsinu
við Tryggvagötu, 4. hæð.
Umsóknir purfa að hafa borist félagsmálaráðuneytinu
fyrir 1. maí 1993.
Félagsmálaráðuneytið, í apríl 1993.
A
Húsfreyjan
komin út
Austraspurning
Hvað finnst þér skemmtilegast
að gera þegar fer að vora?
Davíð Sindri Sigurðsson, Egils-
stöðum Hjóla og hamast í hundin-
um.
Gauti Hjálmþórsson, Egilsstöðum
Það er nú ýmislegt, hjóla fara út að
ganga og vera bara úti.
Svanbjört Guðnýjardóttir, Egils-
stöðum Vera úti á kvöldin.
Dagný ísleifsdóttir, Egilsstöðum
Hjóla og vera úti í leikjum.
Steinunn Magnúsdóttir, Neskaup-
stað Það er svo margt. Það er t.d.
mjög gaman að vera úti á kvöldin
þegar það er orðið bjart.
Stella Steinþórsdóttir, Neskaup-
stað. Mér finnst ofsalega gaman að
vera úti, þegar næturnar eru orðnar
bjartar.
Á nýlega afstöðnu Búnaðarþingi
var stjórn Búnaðarfélags Islands
falið að gera athugun á því, hvernig
réttarstöðu bænda er háttað gagn-
vart þeim stofnunum, sem annast
framkvæmdir, er hafa í för með sér
jarðrask og umferð um lönd þeirra.
Athugun þessi taki til eftirfarandi:
1. Samskipta við stofnanir, svo
sem Vegagerð ríkisins, Orkustofn-
un, Landsvirkjun, Rafmagnsveitur
ríkisins, Póst og síma, Vita- og
hafnarmálastofnun. Einnig við verk-
taka, er annast framkvæmdir á veg-
um þessara aðila.
2. Hvaða bótaskylda hvílir á bænd-
um, ef tjón verður á ljósleiðurum,
rafmagnsköplum o.fl. lögnum í
jörðu vegna framkvæmda á bújörð-
um, sem hafa í för með sér jarð-
rask.
3. Hvort ekki beri nauðsyn til þess,
að Búnaðarfélag íslands gerist sam-
ræmingaraðili eða bakhjarl land-
eigenda í þessum samskiptum, eða
ráði til þess annan aðila.
Tillaga um breytingu á lögum
Búnaðarfélags Islands var lögð fyr-
ir af stjóminni, sem þingið af-
greiddi þannig:
Búnaðarþing hefur jafnframt lýst
þeim vilja sínum að sem nánust
samvinna og upplýsingatengsl séu
á milli hinna tveggja höfuðstofnana
landbúnaðarins, Búnaðarfélags Is-
lands og Stéttarsambands bænda.
Nú um sinn hefur félagskerfi land-
búnaðarins í heild legið undir all-
harðri gagnrýni. Bent hefur verið á
þörf þess að gera það einfaldara og
skilvirkara. Með hliðsjón af þess-
ari félagsmálaumræðu felur þingið
stjóm Búnaðarfélags Islands að
endurskoða starfshætti Búnaðar-
þings og þá sérstaklega framkomn-
ar hugmyndir um seturétt fulltrúa
Stéttarsambands bænda á Búnaðar-
þingi og kynna þær stjóm Stéttar-
sambandsins. Stjórnin leggi síðan
fullmótaðar tillögur í þessum efn-
um fyrir næsta reglulegt Búnaðar-
þing.
Búnaðarþing fékk til umsagnar til-
lögu til þingsályktunar um rann-
sóknir og þróun fiskeldis á Islandi
fram til aldamóta, sem lögð var fyr-
ir 116. löggjafarþing af tíu alþing-
ismönnum úr öllum stjórnmála-
flokkum. Erhúnþannig:
Alþingi ályktar að fela ríkisstjóm-
inni að gera áætlun um rannsóknir
og þróun fiskeldis á Islandi fram til
aldamóta. Áætlunin skal taka til
bæði eldis ferskvatnsfiska og sjáv-
arfangs. Markmið áætlunarinnar
skal vera að móta stefnu þannig að
fyrir aldamót verði íslendingar í
fremstu röð þjóða hvað varðar
þekkingu á eldi fiska og annars
sjávarfangs.
Búnaðarþing lagði til að þingsá-
lyktunartillagan yrði samþykkt ó-
breytt en vildi jafnframt taka fram,
að á samráðsfundum framleiðenda,
kennara, leiðbeinanda og rannsókn-
araðila í bleikjueldi var samin
skýrsla árið 1992, sem heitir “Á-
ætlun um bleikjurannsóknir.” Rétt
þykir að benda á, að hún verði höfð
til hliðsjónar við áætlun um þróun
fiskeldis til aldamóta. Vill Búnað-
arþing þar með minna á, að vonir
em bundnar við að bleikjueldi geti
orðið atvinnuskapandi í sveitum
landsins til framtíðar.
Að síðustu skal getið nokkurra
mála, sem Alþingi lagði fyrir þing-
ið:
Frumvarp til laga um breytingu á
jarðalögum.
Frumvarp til laga um breytingu á
lögum um fuglaveiðar og fuglafrið-
un, vegna samnings um Evrópska
efnahagssvæðið.
Tillaga til þingsályktunar um frið-
un landnáms Ingólfs fyrir lausa-
göngu búfjár.
Frumvarp til laga um breytingu á
landgræðslulögum.
Frumvarp til laga um dýrasjúk-
dóma og varnir gegn þeim.
Húsfreyjan, 1. tbl. 1993 er komin
út. Meðal efnis eru viðtöl við
fermingarbörn og umfjöllun um
ferminguna, urn aðstæður unglinga
og um konur í stjómkerfi EB svo
nokkuð sé nefnt. Þá eru tvær sér-
hannaðar uppskriftir að bamapeys-
um með og án húfu og hugmyndir
og uppskriftir að veislumat og kök-
um. Húsfreyjan er málgagn Kven-
félagasambands Islands.
Fréttatilkynning
C
o
a
o
33
m-
o
c
SKRIFS TOFUHUSNÆÐI
VIÐ HAFNARGÖTU 28 SEYÐISFIRÐI
Húsnæðið sem er ca. 140 m2 er ekki að futiu innréttað, gæti
hentað, fyrir einn eða fleiri aðila, sem gætu nýtt sér
sameiginlega t..d. kaffistofu, hreinlætisaðstöðu og
fundarherbergi og e.t.v. sameiginlega afgreiðslu. Innrétting
húsnæðisins gæti verið gerð í samráði við væntanlega
leigutaka. Hentart.d. fyrir verkfræðinga, félagaskrifstofur
og stofnanir eða annað þ.h.
Annarskonar leiga kemur vel til greina.
Upplýsingar gefur Leifur í síma (97) - 21312.
Hafnargötu 28 Seyðisfirði
AUGLÝSING HJA AUSTRA BORGAR SIG