Austri - 02.09.1993, Qupperneq 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 2. september 1993.
Útgefandi: Kjördæmissamband framsóknarmanna á Austurlandi.
Skrifstofa Austra Lyngási 12, 700 Egilsstaðir,
pósthólf 173, sími 97-11984, fax 97-12284.
Rítstjóri og ábyrgðarmaður: Jón Kristjánsson.
Útgáfustjóri: Sólveig Dagmar Bergsteinsdóttir.
Blaðamenn: Arndís Þorvaldsdóttir og Marinó Marinósson.
Auglýsingar: Sími 97-11984, Sigrún Lárusdóttir.
Áskrift: Sími 97-11984, Svanfríður Kristjánsdóttir.
Áskrift kr. 95 pr. blað. Lausasöluverð kr. 120,-
Prentun: Héraðsprent sf. Egilsstöðum.
Austri kemur út á fimmtudögum.
Aðsent efni þarf að hafa borist fyrir kl. 10:00 föstudaga.
Austri er aðili að samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða.
Stofnanaflutningur
-áform stjórnvalda eða
Skýrsla stjómskipaðrar nefndar um flutning ríkisstofn-
ana kom fyrir sjónir almennings fyrir nokkru síðan og
var kynnt af formanni nefndarinnar og forsætisráðherra,
en nefndin starfaði í umboði forsætisráðuneytisins. í
nefndarálitinu er greint svo frá að það hafi verið haft að
leiðarljósi í tillögugerðinni að í öll kjördæmi lands-
byggðarinnar yrðu fluttar ríkisstofnanir frá Reykjavík.
Gert er ráð fyrir því að Rafmagnsveitur ríkisins séu flutt-
ar til Egilsstaða. Astæðan fyrir því er sú að á Austurlandi
er stærsta veitusvæði RARIK, og stofnunin er þegar með
mikla starfsemi í landshlutanum sem hefur miðstöð á Eg-
ilsstöðum.
Eins og fram kom starfaði nefndin á ábyrgð forsætisráð-
herra og nefndarmenn voru skipaðir af honum, án til-
nefninga. Hann ber því fulla ábyrgð á þessu starfi og
undirstrikaði það með því að vera sjálfur viðstaddur þeg-
ar skýrslan var kynnt.
Það kom reyndar í ljós, áður en nefndin hafði lokið stöf-
um að ekki var allt sem sýndist um flutning RARIK til
Egilsstaða.
Iðnaðaráðherra þáverandi setti þá þegar í gang vinnu
sem miðar að því að flytja þessa starfsemi til Akureyrar
og stofna hlutafélag um starfsemina sem Akureyrarbær
leggði inn í verulegar eignir gegn því að aðalstöðvar þess
nýja fyrirtækis yrðu í bænum. Fjármálaráðherra undir-
strikar svo í viðræðum við bæjarstjórn Akureyrar, að til-
lögur nefndarinnar hafi verið skilyrtar hvað varðaði
Rarik, á þann veg að þær ættu aðeins við ef óbreytt form
væri á rekstri fyrirtækisins.
Allt er þetta hið furðulegasta mál, og það hlýtur að vera
krafa að forsætisráðherra geri hreint fyrir sínum dyrum.
Hann hefur sagt að málið komi til kasta Alþingis þegar
það kemur saman. Því er eðlilegt að Austfirðingar krefj-
ist svara við þeirri spumingu hvort stjórnarfrumvarp sé
væntanlegt þegar Alþingi kemur saman um flutning
Rarik til Egilsstaða. Ef skilningur fjármálaráðherra á
málinu, að tillagan sé skilyrt, er rétt, eru hér í frammi
hafðar alvarlegar blekkingar, og það er auðvitað afar á-
mælisvert að nefndin skuli vera látin vinna í góðri trú, og
einstakir ráðherrar séu svo að vinna í allt aðrar áttir. Það
eru einkennileg vinnubrögð að bíða ekki niðurstöðu
nefndarinnar.
Ekki síður hljóta menn að spyrja hver sé afstaða núver-
andi iðnaðarráðherra til þessa máls, lítur hann svo á að
þetta mál sé skilyrt og tillögurnar séu aðeins pappírs-
gagn.
Þessi vinnubrögð eru afar einkennileg svo ekki sé meira
sagt og Austfirðingar hljóta að krefjast þess að fá botn í
það, og fá undanbragðalaust svör um það hvort það er
ætlun stjórnvalda að fylgja eftir þessum tillögum, eða
hvort nefndarmenn hafi verið látnir sitja í góðri trú við
þess tillögugerð, og tilgangurinn hafi verið sá einn að slá
ryki í augun á því fólki sem býr út á landsbyggðinni.
J.K.
BRIDDS
Fréttirfrá BSA
Opið kvennamót
Opið kvennamót verður haldið í Valhöll, Eskifirði laugardaginn 11. september
nk. Spilaður verður barometer. Þetta er fyrsta opna kvennamótið á Austurlandi og
m.a. haldið til þess að briddskonumar drífi sig á mót en fáar konur sækja mótin
svona almennt. Stjóm BSA vonast eftir almennri þátttöku á sambandssvæðinu og
að konur utan þess láti líka sjá sig.
Bikarkeppni BSA
Þátttakendum í bikamum fer fjölgandi ár frá ári og nú keppa 19 sveitir á sam-
bandssvæðinu. Dregið var í fyrstu umferð í sumarbriddsinum á Reyðarfirði 17. á-
gúst. Þessar sveitir voru dregnar saman.
1. aukaleikur. Vélaleiga Sigga Þórs á Egilsstöðum og Gunnarstindur á Suður-
fjörðum.
2. aukaleikur. Skipaklettur Reyðarfirði og Malarvinnslan á Egilsstöðum.
3. aukaleikur. Slökkvitækjaþjónustan Eskifirði og Sverrir Guðmundsson á Höfn.
1. leikur. Brattahlíð Seyðisfirði á móti Þórami Sigurðssyni Egilsstöðum.
2. leikur. Hótel Höfn á móti Aðalsteini Jónssyni Eskifirði.
3. leikur. Homabær Höfn á móti Sólningu Egilsstöðum.
4. leikur. Álfasteinn Borgarfirði ámóti Vinningssveit úr 1. aukaleik.
5. leikur. Hótel Bláfell Breiðdalsvík á móti Jóni B. Stefánssyni Egilsstöðum.
6. leikur. BB sveitin Höfn á móti Lífeyrissjóði Austurlands Neskaupstað.
7. leikur. Gunnar Páll Halldórsson Höfn á móti Vinningsveit úr 3 aukaleik.
8. leikur. Vélsmiðjan Stál Seyðisfirði á móti vinningsveit úr 2 aukaleik.
Fyrstu umferð á að vera lokið 10. september.
Sumarbridds
Verður áfram fram í september í Félagsheimilinu Reyðarfirði á þriðjudags-
kvöldum og er upplagt fyrir ferðamenn að taka spilaslag á leið sinni um hringveg-
inn.
Fyrsta mót haustannar var haldið á sambandssvæðinu á Eiðum 21. ágúst. Auk
kvennamótsins verður í september þann 24. og 25. opið stórmót Homfirðinga,
Jöklamótið. Hraðsveitakeppni BSA verður þann 16. október. Aðaltvímenningur
BSA 12. og 13. nóvember og Parakeppni BSA 27. nóv. Önnin endar svo 2. janúar
með opnu móti Suðurfjarðamanna í Hótel Bláfelli.
ína D. Gísladóttir
Knattspyrna
Riðlakeppni í 4. deild í knatt-
spymu karla lauk nýlega og hófst
úrslitakeppnin í síðustu viku.
í fjórðu deild voru 4 riðlar og
komust 2 lið úr hverjum riðli í úr-
slit en leikið verður heima og að
heiman. I D-riðli komust Höttur
Egilsstöðum og KBS af Suður-
fjörðum áfram.
KBS liðið fór norður á Blöndós
sl. fimmtudag og lék við Hvöt. Um
var að ræða jafnan leik þar sem á-
þekk lið léku á vellinum. KBS
komst í 2-0 í fyrri hálfleik með
mörkum Vilbergs Jónassonar og
Helga Ingasonar en heimaliðið
minnkaði þá muninn fyrir leikhlé
með marki Sigurðar Agustssonar.
Hermann Arason skoraði svo jöfn-
unarmark Hvatar um miðjan seinni
hálfleik. Leikurinn einkenndist af
mikilli baráttu það sem eftir var.
Þjálfara Hvatar var vísað af velli í
síðari hálfleik en dómari lét leik-
menn beggja liða komast upp með
óþarfa hörku í leiknum. Lokatölur
urðu 2-2.
Liðin spila svo aftur í dag
(fimmtudag). Verður eflaust um
mikinn baráttuleik að ræða og erfitt
að segja til um hvort liðið fer með
sigur af hólmi en þjálfari Hvatar
verður í leikbanni.
Leikur Hattar og Aftureldingar,
Mosfellsbæ sem fram fór sl. laug-
ardag á Egilsstaðavelli var mjög
opinn og skemmtilegur. Framan
af einkenndist leikurinn mjög af
^á,etðarmenn' Un“^W Fiskin lína á lægra *** verði lofar góðu. Höfum fyrirliggjandi norska fiskilínu í öllum sverleikum frá 4 til 8 mm og sterka ábót á góðu verði. Okkar verð er ennþá betra. Netanaust sími 91-689030
■JL* " ‘ í; : ■ - |“ •Mri>|i*Hji;h.*„l: ■
Starfskraftur óskast Laust er til umsóknar starf prófarkalesara við blaðið. Engrar sérstakrar menntunar er krafist en viðkomandi þarf að hafa gott vald á íslenskri tungu. Starfstími er eftir þörfum á mánudögum og þriðju- dögum frá kl. 13. Starfið gæti hentað t.d. heimavinnandi húsmóður, nemanda í Menntaskólanum eða eldri borgara. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Áhugasamir hafi samband við framkvæmdastjóra Austra, Sólveigu Dagmar að Lyngási 12 eða í síma 11984. ___ n ___ m
Frá aðalfundi
Félags smá-
bátaeigenda á
Austurlandi
Aðalfundur Félags smábátaeig-
enda á Austurlandi mótmælir harð-
lega framkomnum hugmyndum
sjávarútvegsráðherra frá í vor að
skipta fiskveiðiári krókabáta í þrjú
tímabil þar sem barist verði um
sameiginlega veiðiheimild hvert
tímabil fyrir sig.
Slíkt fyrirkomulag mun valda
miklu kapphlaupi um úthlutaðan
afla með tilheyrandi slysahættu.
Ennfremur telur fundurinn mjög
brýnt að komið verði til móts við
eigendur aflamarksbáta með þeim
hætti að veita þeim heimild til að
veiða á öngla síðustu tvo mánuði
hvers fiskveiðiárs, ef þeir hafa veitt
allan sinn afla á kvótatímabilinu.
Greinargerð:
Þar sem þorskur er uppistaða
aflaheimilda smábáta koma þeir
verst út úr samdrætti í þorskkvóta
og hafa takmarkaða möguleika á
veiðum annarra tegunda.
Einnig mótmælir fundurinn
harðlega öllum þeim gjaldskrár-
hækkunum sem yfir smábátaeig-
endur hafa dunið að undanfömu,
jafnt frá ríki og einkaaðilum sem
ríkisvaldið hefur opnað leið ofan í
budduna með reglugerðum og laga-
setningum. Þrátt fyrir að afkoma
útgerðaraðila sé skert um jafnvel
tugi prósenta á ári af stjómvöldum.
Að síðustu krefst fundurinn þess
að frjálst val verði um tryggingafé-
lög vegna húftrygginga þilfarsbáta.
miðju baráttu. í hálfleik var staðan
0-0. Haraldur Klausen skoraði
fyrsta markið og kom Hetti yfir en
Kristján Jóhannesson jafnaði. Er
um 7 mín. vom eftir af leiknum
virtust leikmenn Aftureldingar ekki
hafa þol til að klára leikinn og
gengu Hattarmenn á lagið og skor-
uðu þeir Jón Fjölnir Albertsson og
Grétar Eggertsson og tryggðu Hetti
sigur. Lokatölur urðu 3-1.
Eftir þessa 2 leiki detta út 4 lið.
Ef KBS kemst áfram, spila þeir á
móti Njarðvík eða Fjölni. Ef Hött-
ur kemst áfram munu þeir spila á
móti Ægi eða KS. Úrslitaleikurinn
verður svo leikinn 19. september.
Þess má geta að 2 lið komast uppí
3. deild.
Lokastaðan í 4. deild
D- riðill: Höttur 12 10 2 1 41-15 29
KBS 12 8 1 3 49-17 25
Einherji 12 7 2 3 39-16 23
Sindri 12 7 1 4 35-28 22
Valur Rf. 12 3 2 7 18-36 10
Austri 12 2 1 9 18-52 7
Huginn 12 1 1 10 16-52 4
PAPARNIR KOMA.
N.k. Laugardagskvöld 4. september
munu Papamir skemmta á Hótel Vala-
skjálf. Þessi eldhressa og skemmtilega
hljómsveit mun sjá til þess að gestir
skemmti sér. Þeir munu skemmta með
leik og söng, írsk kráarstemmning í al-
gleymingi og svo að sjálfsögðu mun
rokkið vera með. Hljómsveitina skipa
þeir, Ingvar Jónsson, gítar og söngur,
Georg Ólafsson, bassi og kontrabassi,
Páll Eyjólfsson, hljómborð og harm-
óníku, Vignir Ólafsson, gítar banjó
o.fL, Óskar Sigurðsson trommur og
slagverk, og Hermann Hermannsson,
söngur. SL.