Fréttablaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 13.10.2020, Blaðsíða 6
Ég hef sett senda á grágæsir og heiðar- gæsir í gegnum tíðina og það kemur fyrir að þær eru skotnar. Arnór Þórir Sigfússon, fuglafræðingur hjá Verkís SANDBLÁSTUR Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is Ráðgjöf Tilboð Hönnun Uppsetning ALLT fyrir listamanninn Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Verkfæralagerinn VÍSINDI Fimm merktir helsingjar lögðu af stað úr Skaftafellssýslum til vetrarstöðva á Skotlandi fyrir skemmstu. Fengu þeir nöfnin Eivör, Guðmundur, Guðrún, Stefanía og Sæmundur en hefð hefur skapast fyrir að sá sem styrkir senditæki fái að velja nafnið. Fuglafræðingurinn Arnór Þórir Sigfússon hjá Verkís hefur merkt helsingja frá árinu 2017 í samstarfi við Náttúrustofu Suðausturlands, og fræðimennina Halldór W. Stef­ ánsson og Carl Mitchell. „Helsingjar eru stofn sem er tiltölulega nýbyrj­ aður að verpa hér á landi, rétt fyrir 1990, og það var ekki mikið vitað um hann,“ segir Arnór. „Bróður­ parturinn verpir á Grænlandi og fuglarnir hafa alltaf komið hérna við.“ Helsingjum hefur fjölgað mikið hér á landi og er þá helst að finna í Skaftafellssýslum annars vegar þar sem þeir verpa og Húnavatnssýslum og Skagafirði hins vegar þar sem þeir fara um á vorin á leið til Græn­ lands. Flestir fara að vetri til eyjar undan vesturströnd Skotlands sem nefnist Islay en einhverjir til Írlands einnig og annarra staða í Skotlandi. Arnór segir marga íslenska farfugla fara til eða í gegnum Bretlandseyjar, það sé þeirra hlið til Evrópu. Með senditækjunum er hægt að sjá staðsetningu, hæð, hreyfingar, beit og f leira. Eitt af því sem verið er að kanna er ásókn helsingjanna í ræktarland miðað við villtan gróð­ ur. Landeigendur hafa sums staðar kvartað yfir helsingjanum hvað þetta varðar. Helsingjar eru friðaðir í Skotlandi en þó er nokkuð skotið vegna ágangs í ræktarland. Ísland er eini staðurinn þar sem helsingi er veiddur í sportveiði og fagnar Arnór því að hið áðurnefnda fimm­ eyki hafi lifað sumarið og haustið af til að fljúga suður. Það sé langt í frá sjálfgefið. Með senditækjunum er einnig hægt að sjá hvort fugl sé lifandi eða dauður. „Ég hef sett senda á grágæsir og heiðargæsir í gegnum tíðina og það kemur fyrir að þær eru skotnar. Þá get ég séð hvar þær hanga utan á húsi, hringi og fæ sendinn til baka,“ segir Arnór. „Í eitt skipti var send­ irinn skotinn í tætlur, annars hef ég fengið þá heila og getað notað aftur.“ Arnór segir að upphaf lega hafi verið lagt upp með að fylgjast með helsingjunum í fimm ár en þó hafa engin tímamörk verið ákveðin. Leitað hefur verið til fyrirtækja um stuðning en að hluta er verkefnið fjármagnað úr eigin vasa. Á hann von á að þeir snúi aftur til Íslands í byrjun apríl. Megnið af stofninum, sem telur um 80 þúsund fugla, heldur þá til Grænlands en á bilinu tvö til þrjú þúsund pör verpa hér sem þýðir milli 10 til 20 þúsund fugla að hausti. Arnór segir að allir merktu helsingjarnir séu varpfuglar nema Guðmundur. Hann hafi verið gripinn í vor í hópi geldfugla. „Það kemur væntanlega í ljós í vor hvort hann sé kominn með fjölskyldu.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Kemur þá í ljós hvort hann eigi fjölskyldu Fimm helsingjar með senditæki á hálsinum eru flognir til vetrarstöðvanna í Skotlandi. Arnór Þórir Sigfússon fuglafræðingur sem fylgist með er feginn því að þeir lifðu haustið af því að hann hefur áður misst gæsir til veiðimanna. Guðmundur fór fyrstur af stað til Skotlands. MYND/ARNÓR ÞÓRIR SIGFÚSSON COVID -19 Karlar eru í miklum meirihluta þeirra sem taka ákvarð­ anir um og stýra aðgerðum gegn COVID­19 faraldrinum. Samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í tímaritinu BMJ Global Health eru rúmlega 85 prósent aðgerðateyma um allan heim að langmestu leyti skipuð körlum. Aðeins í rúmlega 11 prósentum voru konur í meirihluta. Í aðeins 3,5 prósent tilfella var jafnræði meðal kynjanna, með 10 prósenta skekkju mörkum. „Við sáum það strax í upphafi faraldursins að mörg aðgerðateymi voru aðallega skipuð karlmönnum. Það er þau sem taka ákvarðanir, gefa stjórnvöldum ráð og koma fram í fjölmiðlum,“ segir Kim Van Daalen, doktorsnemi í lýðheilsu­ fræði við Cambridgeháskóla, við fréttasíðuna Medical News Today. Hún var meðal þeirra sem komu að rannsókninni. „Þetta grefur undan aðgerðunum gegn COVID­19 og trausti almennings til vísindanna.“ Alls voru 115 aðgerðateymi í 87 löndum skoðuð. Van Daalen og félagar ráku sig þó á að erfitt var að nálgast upplýsingar um teymi frá mörgum löndum. Í rannsókninni kom einnig fram að karlar voru mun meira áberandi í ákvarðanatöku en konur hvað varðar sérþekkingu og ráðgjöf. Sem dæmi eru aðeins rúmlega 9 prósent konur í COVID­19 aðgerðateymi Bandaríkjaforseta á meðan 82 prósent meðlima í COVID­19 hópi bandarísku Lýðheilsustofnunar­ innar eru konur. „Gögn okkar sýna það sem er orðið voveif lega samþykkt mynst­ ur í stjórnun heilbrigðismála á heimsvísu,“ segir í greininni. Sé kynjahallinn í núverandi heims­ faraldri alls ekki einsdæmi. – khg Ákvarðanir um COVID flestar í höndum karla 25 karlar og tvær konur eru í aðgerðateymi Bandaríkjaforseta. MYND/EPA BANDARÍKIN Dómsmálanefnd öld­ ungadeildar Bandaríkjaþings tekur nú fyrir tilnefningu Amy Coney Barrett í Hæstarétt Bandaríkjanna en umfjöllun nefndarinnar um skipan Barrett hófst í gær. Á fyrsta fundi nefndarinnar, sem fór fram í gær, fengu allir 22 þing­ menn nefndarinnar, tólf úr röðum Repúblikana og tíu Demókratar, tíu mínútur til að ræða tilnefninguna auk þess sem Barrett ávarpaði nefndina. Í dag og á morgun mun Barrett síðan sitja fyrir svörum á fundi nefndarinnar sem hefst klukkan 13 að íslenskum tíma. Dagskránni lýkur síðan á fimmtudaginn þegar aðrir en Barrett sjálf mæta fyrir nefndina og svara spurningum um dómaraefnið. Hin 48 ára Barrett var tilnefnd í hæstarétt af Bandaríkjaforseta þann 26. september til að fylla sæti Ruth Bader Ginsburg. Verði hún dómari við réttinn  munu aðeins þrír dómarar sitja þar sem tilheyra frjálslyndari armi réttarins á móti sex íhaldssamari dómurum. Tilnefning Barrett hefur verið harðlega gagnrýnd af Demókröt­ um, meðal annars vegna þess hve stuttur tími er í forsetakosningar en einnig vegna íhaldssamra gilda Barr ett. Búast má við að allir þing­ menn Demókrata leggist gegn til­ nefningunni. Engu að síður er fastlega reiknað með að tilnefningin verði stað­ fest þar sem Repúblikanar eru með meirihluta innan öldunga­ deildarinnar. Dómsmálanefnd þingsins mun líklega samþykkja tilnefninguna fyrir 22. október og mun öldungadeildin í heild sinni greiða atkvæði um skipunina í kjölfarið. – fbl Situr fyrir svörum næstu tvo daga Amy Coney Barrett situr nú fyrir svörum í öldungadeildinni. MYND/GETTY 1 3 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.