Austri - 15.02.1996, Page 7
Egilsstöðum, 15. febrúar 1996.
AUSTRI
7
BÆTT HEILSA
og betra líf
Umsjón: Sigurborg Kr. Hannesdótlir, sími 471-2143
Vertu snjall og snýttu þér !
Kvef er einn þeirra kvilla sem
hvað oftast hrellir okkur íslend-
inga. Við tölum gjaman um kvef-
ið eins og að það sé svo sem ekk-
ert til að hafa áhyggjur af. Þegar
sá kvefaði er spurður hvort hann
sé lasinn svarar hann gjaman eitt-
hvað á þessa leið „ nei, nei, ég er
bara með smá kvef, það lagast".
Þetta kann í fljótu bragði að líta út
eins og að landinn hristi almennt
af sér kvefið án þess að nota til
þess nokkra utanaðkomandi hjálp.
En ekki er allt sem sýnist og það
sannast meðal annars á því hvern-
ig við tökum á nefsins forna
fjanda, kvefinu.
Hið dæmigerða kvef er veiru-
sýking og veiran tekur sér ból-
festu í slímhúð í efri hluta öndun-
arvega. Með efri hluta öndunar-
vega er hér átt við nef, kok og
háls. Veirurnar ráðast inn í slím-
húðarfrumurnar og halda þar til
og nota sér alla aðstöðu á þeim
bæ. Þetta veldur slíkum innvortis
usla í frumunum að þær bólgna
og blása út. Frumurnar þurfa að
losa sig við þennan umframvökva
og fara að gráta hver og ein.
Þeirra grátur er vatnskenndur eins
og augnanna og þegar saman
koma smá skvettur frá mörgum
frumum fer hreinlega að renna úr
nefinu. Þannig verða til aðalein-
kenni flestra kvefa en það eru
systumar homös og nefstífla. Lít-
um aðeins á raunvemleg viðbrögð
landans við kvefinu. Bregst hann
við í samræmi við orðin „ þetta er
nú bara smákvef sem lagast ,„ eða
eru þessi orð eins og kvefið bara í
nösunum á honum? Forvitnilegt
er að skoða lyfjakaup okkar Is-
lendinga vegna kvefsins. Kvef
eins og margar aðrar veimsýking-
ar gengur yfir af sjálfu sér og ekki
em til nein lyf sem lækna kvefið.
Það eru hins vegar til ýmis lyf
sem fólk getur keypt til að slá á
sum þeirra einkenna sem fylgja
kvefi. Þar ber hæst nefdropa og
nefúða og þessi lyf er hægt að
kaupa án lyfseðils. Mikilvægt er
að undirstrika að það gildir ekki
síður um slík lyf að fara þarf ná-
kvæmlega eftir leiðbeiningum um
skammta og meðferðarlengd.
Geri fólk það ekki er hætta á ferð-
um.
Ofnotkun á nefdropum
og nefúða.
Mjög mikil ofnotkun á sér stað á
nefdropum og nefúða. Oftast er
tilefni þeirrar notkunar kvef með
nefrennsli og eða nefstíflu, a. m.
k. í upphafi. Til ársins 1986 var
einungis hægt að fá þessi lyf gegn
lyfseðli og hafði notkun þeirra þá
verið óbreytt ár eftir ár. Síðan þá
er hægt að fá þessi lyf án lyfseðils
og hefur notkun þeirra meira en
þrefaldast á þessu tímabili og er
enn vaxandi. Nær öll salan er í
handkaupi, þ.e. einungis 5-6%
sölunnar eru samkvæmt lyfseðli.
Þessar tölur byggja á sölu þessara
lyfja í Apótekinu á Egilsstöðum,
en það er svipað og landsmeðal-
tal. Við læknar sjáum af þessu
vemlegar aukaverkanir, sumar al-
varlegar. Þessi lyf valda samdrætti
í æðum í slímhúð nefsins. Það
dregur úr bólgunni vegna kvefsins
og þá minnkar grátur fmmanna og
þar með einkennin, hor og stífla.
Þetta hljómar vel og verður sum-
um of mikil freisting. Einnig eru
trúlega margir sem nota þessi lyf
þar sem þau eiga ekki við eins og
í ofnæmi, þar sem nefrennsli og
stífla eru áberandi. Of margir
brjóta skammtaleiðbeiningar sem
fylgja þessum lyfjum, nota of
mikið og of lengi. Slíkri notkun
fylgir mikill og langvinnur sam-
dráttur í æðum nefsins. Með tím-
anum veldur það rýmun í slímhúð
nefsins. Einkenni slíkrar rýmunar
eru m.a. rennsli úr nefi og
nefstífla. Þetta kallar á meiri
notkun lyfjanna og þá er til orð-
inn vítahringur, þar sem fólk er
jafnvel að nota þessi lyf flesta
daga. Að lokum hætta þau að
gera nokkurt gagn og þá er farið
til læknisins. A ekki stærri stofn-
un en Heilsugæslustöðinni á Eg-
ilsstöðum höfum við oft séð þetta
ferli. Þegar hér er komið þarf oft
að nota dýr og kröftug lyf svo-
kallaða stera. Einnig höfum við
dæmi um að rýrnunin var orðin
slík að komið var gat á miðnesið,
þ. e. skilvegginn milli nasanna,
semsagt þar var nefið byrjað að
hverfa.
Sá sem notar þessi Iyf á að
nota rétta skammta og ekki
lengur en 1 viku í senn. Eftir
slíka notkun þarf að gefa nef-
inu góða hvfld frá lyfjunum, a.
m. k. 1 viku.
Auk þess ráðlegg ég þér, les-
andi góður, að taka ekki í
blindni mark á stórum auglýs-
ingum lyfjafyrirtækjanna, þar
sem haldið er fram ágæti nef-
dropa og úða og nauðsyn þess
að þú notir þá. Veltu því fyrir
þér hvort hornösin þín er ekki
bara kvef sem lagast og breyttu
í samræmi við það. Þá er ráðið
að snýta sínu nefi, sem er betra
en að missa það.
Pétur Heimisson læknir
Smáauglýsingar
Til sölu
Neskaupstaður
Til sölu tveggja hæða einbýlishús
ca. 170fm. Skipti á minni eign í
Neskaupstað, á Egilsstöðum eða í
Reykjavík koma til greina
Upplýsingar í síma 477-1541 og
477-1214
Til sölu
Brío barnavagn, vagnpoki og
magaburðarpoki fylgja.
Verð kr. 20.000,-
uppl. í síma 471-1187
Til sölu Bronco ‘66, nýlega
uppgerður, með 302 vél og
sjálfskiptingu, 33” dekk,
nýuppgerður millikassi ‘66, gormar
aftan, diskabremsur framan. Selst
undir kostnaðarverði. Uppl. í síma
471-1968.
Til sölu 220 v. vatnsdæla
(brunadæla). Með 20 lítra
jafnþrýstikút. Uppl. í síma 471-1968
Til sölu eða leigu 2ja herb. íbúð í
Fjóluhvammi 9, Fellabæ.
íbúð minnst 3ja eða einb. óskast til
leigu austan við fljót.
Uppl. í síma 853 2858 v. eða 471
2318 heima.
Brottför úr Reykjavík:
þriðjudaga,fimmtudaga
og föstudaga.
Afgreiðsla á
Landflutningum.
Sími 568-5400.
Bflasímar:
sími 85-21193
sími 85-27236
SVAVAR & KOLBRÚN
Sími 471-1953 /fax471-2564
Miðás 1-5
700 Egilsstöðum
Smáauglýsingar
X 1
Oskast
Kojur óskast
Oska eftir vel með förnum barna-
kojum. Uppl. í síma 471-1653
Oska eftir skrifstofuhúsgögnum.
Uppl. í síma 471-1984
Sólveig.
Staðgreiðsla
Fjögra dyra fjölskyldubíll óskast,
má vera station. Verðhugmynd 100-
300 þúsund. Uppl. í síma 471 1244
og 471 1898 eftir kl. 18:00.
Til leigu
Einstaklingsíbúð til leigu á Egils-
stöðum.
Laus 1. mars.
Uppl. í síma 471-2277.
Fimdarsalur
Til leigu fundarsalur að Tjarnarbraut
19 á Egilsstöðum.
Nánari uppl. í síma 471-1984.
Ertu að flytja suður.
Þarftu að flytja búslóð þfna til
Reykjavíkur eða nágrennis, þá er laus
sendiferðabíll suður 10-15 mars.
Uppl. í síma 471 1382
Dýravinir
Dýravinir athugið:
Litla og sæta holpa bráðvantar
framtíðarheimili.
Upplýsingar í síma 471-1917.
Félagsstörf
Spjall um bæjarmálin.
Mánudaginn 19. febrúar
kl. 20:30. í Austrahúsinu.
ALLIR VELKOMNIR!
Framsóknarfélag Egilsstaða
Komið og Dansið
Austurlandi.
Við minnum á sérstök námskeið
fyrir starfsmannahópa,
saumaklúbba, þorrablótsnefndir,
íþróttahópa og aðra sem vilja taka
sig saman um að gera eitthvað
skemmtilegt og nýtt.
Iðunn og Eymundur,
sími 471-2150.
Skák
Skáksamband Austurlands
stóð fyrir atskákmóti á Eski-
firði þann 11. febrúar sl. Þátt-
takendur voru ellefu talsins og
voru sjö umferðir tefldar eftir
Monrad-kerfi. Atskákmeistari
Austurlands varð Jóhann Þor-
steinsson, Reyðarfirði með 6
vinninga. í öðru sæti urðu
Sverrir Unnsteinsson, Breið-
dalsvík og Viðar Jónsson,
Stöðvarfirði báðir með 5 vinn-
inga hvor, en stigaútreikningur
færði Sverri 23,5 stig, en Við-
ari 21,5 og hlaut því Sverrir
annað sætið og Viðar það
þriðja. í fjórða og fimmta sæti
urðu þeir Rúnar Hilmarsson,
Reyðarfirði og Guðmundur
Ingvi Jóhannsson, Egilsstöðum
með 4 vinninga. G.IJ.
ttufjíýsirifjasími
Slustra
er
471-1984
ISLENSK
FYRIRTÆKI
199B
Klassískt rit í 26 ár
Upplýsingahandbókin ÍSLENSK FYRIRTÆKI er handbók sem
inniheldur grunnupplýsingar um flestöll starfandi lýrirtaeki,
félög og stofnanir landsins, t.a.m. nafn, heimilisfang, símanúmer
og kennitölu. Bókin er ómissandi fyrir stjórnendur og annað
starfsfólk íslenskra iyrirtækja
1. Kennitölur, fax- og símaúmerctskrá
2. Fyrirtækjaskrá
3. Vöru- og þjónustuskrá (gular síður)
4. Umboðaskrá (gular síður)
5. Útflytjendaskrá (gular síður)
VERÐ BÓKAR
1. eintak kr. 5990,- pr. bók
2. eintak kr. 5490,- pr. bók
3. eintak kr. 4990,- pr. bók
4. elntak kr. 4490,- pr. bók
5. eintak kr. 3990,- pr. bók
10. elntak kr. 3490,- pr. bók
UPPBYCGING BÓKARINNAR
„Bók sem ég þarf oft að grípa til í dagsins önn“.
Margrét Kristmannsdóttir, framkvæmdarstjóri Pfaff hf.
UppQsingar: Sími SIS SG30
Fax: SIS SS39