Austri - 05.06.1997, Qupperneq 8
tsia
' 'an'""1' ..^0
ISLRNDSFLUG
f\U9
- f\Jf |r
Sími 471-2333
Jafnþrýstibúnaður - 46 sæta - 3 í áhöfn
Skriðdælingar
slást í hópinn
Skriðdalshreppur hefur nú bæst í
hóp þeirra er verða með í kosningu
um sameiningu Vallahrepps, Hjalta-
staða - og Eiðaþingháa og Egils-
staðabæjar. Jón Júlíusson oddviti
segir að haldinn hafi verið sveita-
fundur þar sem gerð var skoðana-
könnun um hvort menn fýsti að fara
í þessa sameiningu og mikill meiri-
hluti var hlynntur því.
Skriðdælingar ganga að þeim
drögum er búið var að gera milli
hinna hreppanna, en ekki verða
gerðar aðrar breytingar á þeim en
nauðsynlegt er, t.d. varðandi orða-
lag og fjölgun í nefndum. „Það er
ekkert sérstakt sem kemur inn
vegna okkar,“ sagði Jón.
Steinway og synir í Egilsstaðakirkju
Blossandi menn-
ingarauki
Það eru ekki margar kirkjur á
landinu sem geta státað af Steinway
flygli, en 23. maí kom einn slíkur í
Egilsstaðakirkju. Flygillinn er 30
ára gamall, var upphaflega í eigu
Abjörns Olafssonar, heildsala, og
hefur alla tíð verið í einkaeign og
mjög vel með farinn. Julian Hewlet,
organisti í kirkjunni, segir þetta vera
besta flygil á Austurlandi og mikinn
feng í þessu hljóðfæri.
Astráður Magnússon, formaður
sóknamefndar, segir að Jónas Ingi-
mundarson, píanóleikari hafi bent
sér á flygilinn, og sagt hann „betri
en nýjan.“ Þess má geta að
Steinwayverksmiðjan var seld fyrir
nokkxum ámm og þá hrakaði gæð-
um nokkuð, enda samkeppni orðin
mjög hörð við japanska hljóðfæra-
framleiðendur og verð lækkað.
Þessi flygill er á hinn bóginn alfarið
handunninn.
Jónas benti Astráði á að þetta
væri hljóðfæri sem listamenn vildu
spila á og því gæti reynst mun auð-
veldara að fá menn hingað til tón-
leikahalds. „Ég var að spyrja hann
um allt annað hljóðfæri sem mér
hafði verið bent á og hann hafði lát-
ið kaupa í Hjallakirkju í Kópavogi,
en hann vissi þá um Steinwayinn og
sagði að ef þessir flyglar væru sinn í
hvoru húsinu þá myndi enginn líta
við hinum.“
Flygillinn kostaði 2,4 milljónir og
segir Astráður sóknina greiða það til
að byrja með, en vonast sé til að
hægt verði að halda fjáröflunartón-
leika, jafnvel tónleikaröð, bæði með
heimamönnum og aðkomnum.
Julian Hewelet við Steinway flygilinn, sem hann segir vera hinn besta á Austurlandi
og þó víðar vœri leitað.
Jón Kristjánsson alþingismaður tók þessa mynd af gistiheimilinu á Smyrlabjörgum
23. maí eða viku jyrir opnun. Að góðum og gildum íslenskum sið lögðu menit nótt við
dag síðustu vikuna og var nánast allt tilbúið þegar fyrsti gesturinn var skráður inn
2.júní.
Nýtt gistiheimili
opnar á
Smyrlabjörgum
Sigbjörn Karlsson og Laufey
Helgadóttir ferðaþjónustubændur á
bænum Smyrlabjörgum í Austur-
Skaftafellssýslu opnuðu nýlega
gistiheimili í nýju húsi sem þau
byggðu sérstaklega fyrir þessa starf-
semi. I nýja gistiheimilinu eru 20
tveggja manna herbergi með baði
og setustofa. Fyrir eru þau hjón með
gistiherbergi fyrir 17 manns í gömlu
húsi. Þar er einnig eldhús og matsal-
ur sem byggður var við húsið fyrir
nokkrum árum og geta þau hjón nú
tekið á móti um 60 manns. Laufey
og Sigbjöm hafa rekið ferðaþjónustu
á 8 ár. Þau segja nýtinguna nokkuð
góða yfir sumartímann en lítið er að
gera yfir veturinn.
Nýtt hótel
-nýir aðilar
Nýr aðili hefur tekið
við hótelrekstri í
grunnskólanum á Hall-
ormsstað, Fosshótel, og
ásamt heimamönnum
byggt þar nýja gisti-
álmu, sem verður vígð
í dag (fimmtudag) kl.
5.Bókanir eru miklar í
sumar, hótelið er full-
bókað fyrstu dagana og
að stórum hluta það
sem eftir er sumars.
Nú er unnið myrkr-
anna á milli við að
leggja lokahönd á frá-
gang gistiálmunnar, en
hún hefur verið reist á
mettíma. Framkvæmd-
ir hófust í nóvember.
Hótelstjóri er Sigríður
Sigmundsdóttir.
Iðnaðarmenn hafa unnið hörðum höndum að frágangi
hótelsins. Svo virðist sem þeir muni ekki verða jafn tœp-
ir og þeir er unnu að opnun veitingastaðarins í mynd
Jacues Tati, Playtime.
til kl.
23:30
alla
daga
V
Fellabæ
Sími 471-1623
Fax 471-1693
KURL
Víða Ieynast á heimilum út-
varpstæki með svokölluðum
„skanner,“ en í þeim er hægt að
hlusta ýmsar lokaðar rásir, m.a
samtöl sem fara fram milli flug-
umferðarstjóra og flugmanna.
Fyrir ekki löngu síðan var Bene-
dikt Vilhjálmsson sem vinnur við
flugumferðarstjórn á Egilsstaða-
flugvelli að taka niður eina af
áætlunarvélum íslandsflugs.
Hafði þá fyrir stuttu síðan verið
kunngjört að félagið mundi
hætta flugi til Norðfjarðar.
Þennan dag hafði millilent á Eg-
ilsstaðaflugvelli rússnesk her-
flutningaflugvél af gerðinni
Ilyushin IL 76 og var hún á vell-
inum þegar vélin frá íslandsflugi
kom. Þegar flugmaður íslands-
flugs sá flykkið spurði hann í
forundran: „hvað er nú þetta?“
Benedikt var að vanda fljótur að
hugsa og svaraði: „Það er nú
hugmyndin að nota hana þessa í
Norðfjarðarflugið.“
Grásleppu-
vertíðin
þokkaleg
Grásleppuvertíð er enn í fullum
gangi en henni lýkur þann 20. júní
nk. Aðaiverstöðin er Bakkafjörður
en þaðan róa á milli 20 og 25 bátar.
Veiði er mun betri en í fyrra, en
aflabrögð eru misjöfn eftir bátum
og hafa sumir haft lítið. Hraungerði
er stærsta söltunarstöðin en þar er
tekið á móti afla af 18 bátum. Þar
höfðu sl. mánudag verið saltaðar
919 tunnur sem er mun betra en í
fyrra, en þá var heildarsöltunin yfir
vertíðina 620 tunnur. Tveir aðrir
hrognaverkendur eru á Bakkafirði,
hafði annar verkað í 103 tunnur en
hinn í 38 þannig að heildarsöltun,
það sem af er vertíðar, nemur um
1060 tunnum.
Gleraugnanælur
Sólgleraugu
-mikið úrval
SIMI471-2020 /471-1606 FAX 471-2021
LAGARÁS 8 - PÓSTHÓLF 96 - 700 EGILSSTAÐIR
Birta Einarsdóttir úrsmiður - Sævar Benediktsson sjóntækjafræðingur
POLAROID
BIRTA