Austri - 04.09.1997, Blaðsíða 2
2
AUSTRI
Egilsstöðum, 4. september 1997.
Menntun -
byggð -
atvinna
Á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Austurlandi voru
málefni háskóla í fjórðungnum til sérstakrar meðferðar.
Nefnd hefur unnið að athugun á þessu máli á vegum sam-
bandsins og því hefur verið hreyft á Alþingi með þingsá-
lyktunartillögu um fræðslumiðstöð háskólastigsins hér í
fjórðungnum.
Það er ekki að ófyrirsynju að þessi mál eru tekin til með-
ferðar. Það er alveg ljóst að þekking er undirstaða atvinnu
og framfara, og bresti hún býður það stöðnun heim. Þekk-
ingaröflun þarf einnig að laga að nýjum veruleika meðal
annars í upplýsingatækni og fjarskiptum. Gamla mynstrið,
þar sem langskólanám var undirbúningur fyrir embættis-
mannastéttina í landinu gengur ekki lengur.
Tækniframfarir eru mjög hraðfara og breyta vinnuaðferð-
um og daglegu lífi fólks hraðar heldur en hægt er að gera
sér grein fyrir í fljótu bragði. Nú orðið gengur fólk ekki út
úr skólum menntað fyrir lífstíð. Símenntun og endur-
menntun eru orð sem heyrast æ oftar í umræðu dagsins.
Hver og einn hefur þörf á því að bæta við þekkingu sína,
sama hvað vel hefur verið að verki staðið í skólagöngunni.
Háskóli er margslungin stofnun, og til að skapa há-
skólaumhverfi þarf mikið til. Stofnun Háskólans á Akur-
eyri var farsælt skref á sínum tíma, og úti á landi finnst nám
á háskólastigi á afmörkuðum sviðum svo sem í Samvinnu-
háskólanum á Bifröst og í búvísindadeildinni á Hvanneyri.
Á aðalfundi SSA var kynnt könnun sem gerð var á vegum
Háskólans á Akureyri á þörf fyrir háskólanám á Austur-
landi. Könnunin var á ýmsan hátt athyglisverð, þótt halda
þurfi áfram og kanna ákveðna þætti nánar. Þar kom í ljós
að forsvarsmenn fyrirtækja telja þörf fyrir háskólamenntað
fólk, og einnig vakti það athygli að mjög litlu fjármagni fyr-
irtækja er varið til þróunarmála, en slíkt starf kallar á fólk
með háskólamenntun. Fram kom að smæð fyrirtækja sem
þátt tóku í könnuninni gæti verið ein ástæðan fyrir þessari
útkomu.
Sá tónn var í umræðum á fundinum að fyrst í stað bæri að
stefna að fræðslumiðstöð háskólastigsins í tengslum við há-
skóla annars staðar og hún yrði jafnframt miðstöð símennt-
unar og endurmenntunar í fjórðungnum. Þetta gæti verið
skynsamlegt skref í upphafi.
Atvinnulíf sem byggir á þekkingu sem aflað er á fram-
haldsskólastigi og háskólastigi er grundvöllur byggðar og
nútíma samfélags. Því er þetta háskólamál, ásamt skipu-
lagi framhaldsskólanna á Austurlandi eitt brýnasta málið
sem vinna verður að um þessar mundir.
J.K.
Steinboginn í Virkisfellinu
hruninn
Ferðamenn staddir í
Sigurðarskála í Kverk-
fjöllum hrukku heldur
betur við á sunnudags-
morguninn þegar stein-
bogi utanvert í toppi Virk-
isfells hrundi með tilheyr-
andi hávaða og skriðuföll-
um. Skálinn stendur við
rætur fellsins og fylgdist
Þórhallur Þorsteinsson frá
Egilsstöðum með grjót-
hruninu af skálahlaði, en
nokkur myndarleg björg
stöðvuðust á neðri brún
fellsins rétt ofan við skál-
ann. Þórhallur dró þegar
þá ályktun að steinboginn
væri hruninn. Reyndist
það rétt vera þegar betur
var að gáð, en ekki sá upp
á topp fellsins fyrir þoku
þegar ósköpin dundu yfir.
Nokkur dæmi eru um að fjallageitur
og ofurhugar hafi látið sig hafa það
að ganga út á steinbogann. Síðastur
til þess að ganga á Virkisfell var
Bragi Björgvinsson, ferðafélagi
Þórhalls, sem brá sér yfir bogann,
þegar hann gekk á Virkisfell daginn
fyrir hrunið og varð þá ekki var við
neitt óvenjulegt. Þórhallur hafði
samband við Veðurstofuna til að
forvitnast um, hvort orðið hefði vart
við jarðhræringar á svæðinu og
reyndist svo ekki vera. Það er víst
að margir unnendur Kverkfjalla-
svæðisins koma til með að sakna
steinbogans sem óneitanlega setti
sinn svip á Virkisfellið, en svona er
landið okkar stöðugt að breyta um
svip.
Sumarferð Kjördæmissambands
Framsóknarmanna á Austurlandi
• 'iu..;•- h s» u.i'-
Hin árlega sumarferð verður farin í
Hornafjörð og Lón dagana 6. og 7. september nk.
Rútuferð verður frá Norðfírði og Egilsstöðum og ekið með strönd .
Kl. 14.30 á laugardag verður komið til Hafnar í Homafirði.
Kl. 15.00 mætast við Sindrabæ Landsstjóm- og þingflokkur Framsóknarflokksins,
heimamenn í Austur-Skaftafellssýslu og félagar í sumarferðinni og fara saman inn í
Haukafell og planta þar trjám í minningu Ásgríms Halldórssonar (trjáplöntur verða
til sölu á staðnum).
Kl. 18.00-20.00 býður Halldór Ásgrímsson til teitis í Sindrabæ í tilefni af 50 ára afmæli
sínu. Allir velkomnir. Að loknu teiti Halldórs verður farið að Stafafelli í Lóni þar
sem gist verður um nóttina. Þá er komið að okkar árlegu grillveislu, en með þeirri
breytingu að nú koma allir með sinn mat sjálfir. Kvöldvaka.
udaginn, 8. september, verður farið í Stafafellsfjöll og Illakamb, komið aftur að
Stafafelli um kl. 15.00. Reiknað er með að rútan verði á
Egilsstöðum um kl. 20.
Ferðalok.
Frá Norðfiröi
Frá Eskifirði
Frá Reyðarfirði
Frá Egílsstöðum
Frá Reyðarfirði
Frá Fáskrúðsfirði
Frá Stööuarfirði
Frá Breíðdalsuík
Frá Djúpauogi
Komið til Hafnar
kl. 8.00
kl. 8.20
kl. 8.40
kl. 9.30
kl. 10.00
kl. 10.45
kl. 11.15
kl. 12.00
kl. 12.45
kl. 14.30
Uerö fyrir sæti frá
Egs, Norðf. Esk. og Rf.
kr. 3.800,-
Uerö fyrir sæti frá
Fáskr. - Stf. og Brd.
kr. 2.800,-
Uerð fyrir sæti frá
Djúpauogi
kr. 2.400,-
Gisting í Stafafelli
Svefnpokapláss í rúmi kr. 800,-
Uppbúið rúm kr.1,400.-
Verð fyrir ferð í Stafafellsfjöll kr. 1.700,- pr mann
Eftirtaldir einstaklingar t aka við skránin gum í ferðina:
Ólafur Sigurðsson Svínafelli s.478-1760
Bjöm Kristjánsson Höfn s.478-1110
Ragnhildur Steingrímsdóttir Djúpavogi s.478-8810/8801
Soffía Rögnvaldsdóttir Breiðdalsvík s. 475-6677/6639/6689
Albert Geirsson Stöðvarfirði s.475-8830
Amfríður Guðjónsdóttir Fáskrúðsfirði s. 475-1180
Þórarinn Pálmason Fáskrúðsfirði s. 475-1246
Guðmundur Bjamason Reyðarfirði s. 474-1472
Einar Bjömsson Eskifirði s. 476-1452
Sigrún Júlía Geirsdóttir Norðfirði s. 477-1812
Óla Biörg Magnúsdóttir Seyðisfirði s. 472-1217
Þórhalla Snæþórsdóttir Egilsstöðum s. 471-1155/2585
Vígdís Sveinbjömsdóttir Egilsstöðum s. 471-1580
Bjöm Aðalsteinsson Borgarfirði s. 472-9972
Jósep Jósepsson Vopnafirði s. 473-1550
Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst.