Austri


Austri - 04.09.1997, Blaðsíða 5

Austri - 04.09.1997, Blaðsíða 5
Egilsstöðum, 4. september 1997. AUSTRI -KYNNINGARBLAð 5 Egilsstaðabær - Vallahreppur - Skriðdalshreppur - Eiðahreppur - Hjaltastaðahreppur Samstarfsnefnd um sameiningu Hjaltastaðaþinghár, Eiðaþinghár, Egilsstaðabæjar, Vallahrepps og Skriðdalshrepps er nú í þann mund að ljúka störfum sínum. Með út- gáfu þessa aukablaðs í Austra vilj- um við í nefndinni koma á framfæri upplýsingum og hvetja til íhugunar og umræðna um þetta mikilvæga mál sem nú er kosið um. Hér eru í einu blaði þær greinar sem undan- farnar vikur hafa birst á vegum sameiningarnefndarinnar og er blaðinu dreift í öll hús á svæðinu. Nefndin hóf störf 14. mars 1996. Þá voru sveitarfélögin reyndar að- eins þrjú. í upphafi árs 1997 bættist síðan Vallahreppur í hópinn og að lokum Skriðdalshreppur í júní sl. í nefndinni sátu Þuríður Backman og Vigdís Sveinbjömsdóttir fyrir Egils- staðabæ, Þórarinn Ragnarsson og Halldór Sigurðsson fyrir Eiðaþing- há, Sævar Sigurbjarnarson og Sig- mundur Halldórsson fyrir Hjalta- staðaþinghá, Stefán Sveinsson og Katrín Ásgrímsdóttir fyrir Valla- hrepp og Jón Júlíusson og Kjartan Runólfsson fyrir Skriðdalshrepp. Vinna nefndarinnar hefur einkum beinst að því að gera almennan ramma eða stefnuyfirlýsingu fyrir þau málefni sem leyst hafa verið með misjöfnum hætti til þessa, ramma sem við getum öll verið sátt við og tryggir sem best þjónustu og búsetuskilyrði alstaðar í nýju sveit- arfélagi. Niðurstöðum nefnd- arinnar var dreift í vor í öll hús og hvetjum við alla til að kynna sér þær. Þessar tillögur geta þó einungis gefið tóninn til nýrrar sveitarstjórnar. Þess ber þó að geta að um þær hefur verið fjall- að í öllum sveitarstjórnum og þær voru formlega samþykktar í bæjar- stjóm Egilsstaðabæjar, á Völlum og í Eiðaþinghá. Þar situr fólk úr öll- um flokkum sem starfar að sveitar- stjómarmálefnum og er því ljóst að ný sveitarstjórn er nokkuð bundin að tillögum þessum. Sjötta septem- ber nk. gefst kjósendum þessara sveitarfélaga tækifæri til að hafa áhrif á framtíð svæðisins og dæma um það hvort þær tillögur, sem sam- starfsnefndin hefur unnið að, séu þess eðlis að við getum sameinast um þær. Við leggjum það nú í hendur kjósenda í sveitarfélögunum fimm að taka afstöðu og vonum að það sem fram kemur í þessu blaði verði til að létta þá ákvörðunar- töku.

x

Austri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Austri
https://timarit.is/publication/792

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.