Austri - 04.09.1997, Side 12
Jafnþrýstibúnaður - 46 sæta - 3
áhöfn „ „ cnrir
ÍSLfíNDSFLUG
Sími 471-2333
V
Fellabæ
Sími 471-1623
Fax 471-1693
y
Kurl
Árni Vilhjálmsson sem lengi
var læknir á Vopnafirði tók sér
nær aldrei sumarfrí. Þó kom
að því, þegar hann var kominn
á efri ár, að hann ákvað að
taka sér frí í nokkra daga.
Hafði hann þá samband við
Viimund Jónsson landlækni og
bað hann að útvega fyrir sig af-
leysingamann. Líklega hefur
Árni hitt illa á landlækni, því
hann hafði allt á hornum sér
og sagðist engan afleysinga-
mann hafa, enda þyrftu hér-
aðslæknar manna síst á sumar-
leyfi að haida þar sem ævi
þeirra væri í raun samfellt
sumarleyfí. Árni sagði fátt,
þakkaði fyrir sig og Iagði á.
Þegar nokkur ár voru liðin frá
þessum atburði lét Árni af
störfum fyrir aldurs sakir.
Stóðu þá læknamál á Vopna-
firði þannig, að ekki var öruggt
með eftirmann. Þá barst Vil-
mundi landlækni svohljóðandi
skeyti: „Nú, nú, Vilmundur,
nú gefst þér tækifæri til þess að
taka þér sumarfrí - Vopna-
fjörður er laus ! Árni.“
Slátrun
hafin á
Foss-
völlum
Um 800 dilkum var slátrað á
Fossvöllum í síðustu viku ágúst-
mánaðar og buðu verslanir KHB
upp á sláturafurðir og kjöt af
nýslátruðu um sl. helgi. Þann 2.
september sl. hófst síðan haustslátr-
un, en áætlað er, að um 37 þúsund
dilkum verði slátrað á Fossvöllum á
þessu hausti og á því verki að vera
lokið þann 24. október. Þá tekur við
slátrun á fullorðnu fé, en ekki er enn
ljóst hversu margt það verður. Þá
verður um þrjúþúsund fjár af svæð-
inu slátrað utan svæðis vegna út-
flutnings og skiptist það þannig að
1000 dilkar fara í sláturhúsið á
Húsavík en um 2000 dilkar til slát-
urhúss KASK á Höfn. Um 60
manns vinna við slátrunina, en
óvenju illa gekk að fá fólk til starfa.
Sáturhússtjóri er Stefán Pálmason.
KHB verður áfram með Sláturhús
Suðurfjarða á Breiðdalsvík á leigu.
Þar er fyrirhugað að slátra um
10,500 fjár og hefst slátrun þann 15.
september nk. Áætlað er að þar taki
sláturtíð mánuð og ljúki um miðjan
október. Sláturhússtjóri á Breiðdals-
vík verður Stefán E. Stefánsson.
m
RCWELLS
RA
, VERÐ
ÞJONUSTA
KRINGLAN 7 • SIMI 5 88 44 22
Ný frystigeymsla
Kambfell hf. á Reyðarfirði er um þessar mundir að byggja nýja 3000 m3
frystigeymslu. Byrjað var á verkinu í maí og er miðað við að geymslan
verði komin í gagnið í lok september. Bjöm Armann Olafsson, segir félag-
ið hafa verið komið í þrot með pláss fyrir frosnar afurðir, sérstaklega þeg-
ar loðnu og síldveiðar standi sem hæst. Það hafi komið fyrir að sleppa yrði
vinnu við frystingu í einn til tvo daga sökum skorts á geymsluplássi. Með
samningum við KHB um geymslu á frosnum kjötafurðum, í eldri geymsl-
um Kambfells, var með góðu móti hægt að ráðast í þessar framkvæmdir.
Landsleikur í
Neskaupstað
Laugardaginn 6. september
verður í fyrsta skipti landsleikur í
handknattleik á Austurlandi, nán-
ar tiltekið í Neskaupstað. Það eru
frændur vorir og erkifjendur á
handboltavellinum, Danir, sem att
verður kappi við.
Landsleikur þessi er haldinn í
tengslum við 40 ára afmæli HSÍ
og hefst hann kl. 13 í íþróttahús-
inu í Neskaupstað.
Austfirðingar fá nú loksins
tækifæri til að fylgjast með 1.
flokks handknattleik á heimavelli,
en viðureignir Dana og Islendinga
eru jafnan bráðspennandi, og er
skemmst að minnast tveggja leikja
í undankeppni síðasta heimsmeist-
aramóts.
Lögmenn þinga
á Egilsstöðum
Félag lögfræðinga á Norðurlandi og Austurlandi hélt
aðalfund sinn í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum um helg-
ina. Félagið var stofnað árið 1994 og eru allir lögfræð-
ingar búsettir á svæðinu frá Hrútafirði til Skeiðarár fé-
lagsmenn. Rúmlega 30 manns sóttu fundinn. Sú hefð
hefur skapast að fylgja aðalfundinum eftir með fræðslu-
erindi og var að þessu sinni fjallað um hálendi Islands
frá lögfræðilegu sjónarmiði, en stór hluti
hálendisins heyrir undir landsfjórðungana
tvo sem félagssvæðið nær yfir. Fyrirlesari
var Tryggvi Gunnarsson hæstaréttarlög-
maður í Reykjavík. I erindi sínu gerði
hann grein fyrir stjómarfrumvarpi til laga
um þjóðlendur og ákvörðun eignamarka
þjóðlenda og afrétta. Frumvarpið var lagt
fram á Alþingi á síðastliðnum vetri, en var
ekki afgreitt og verður lagt fram aftur á
komandi þingi. Við gerð frumvarpsins var
stuðst við álit nefndar sem starfað hefur
frá árinu 1984. Þá kom Tryggvi inn á
nokkur mál sem höfðuð hafa verið vegna
eignarhalds og réttar til nýtingar á hálend-
inu og rakti þá dóma sem gengið hafa.
Fram að þessu hefur aðalfundurinn verið
haldinn á Akureyri, en var nú fluttur til
Egilsstaða og er meiningin að hann flytjist
milli staða á félagssvæðinu í framtíðinni.
Um undirbúning og stjóm fundarins sáu
lögmennimir Ólafur Börkur Þorvaldsson
og Hilmar Gunnlaugsson. Ný stjóm Lögfræðingafélags-
ins er þannig skipuð: Ólafur Birgir Ámason, hæstaréttar-
lögmaður á Akureyri, Jón ísberg, fyrrverandi sýslumað-
ur Blönduósi, Ásgeir Pétur Ásgeirsson, héraðsdómari
Akureyri, Berglind Svavarsdóttir, lögmaður Húsavík og
Bjami Björgvinsson lögmaður Egilsstöðum.
Fundarmenn utan við Hótel Valaskjálf. AustramyndAÞ
wmm |—.-| | I I ; ’ ’ 1
Heimasíða Austra. http://eldhorn.is/austri
.
GLERAUGU
ÚR & KLUKKUR
SKART & GJAFAVARA
Skólaúr - irtikið úrval
Vekjaraklukkur
/
G-SHDCK
SÍMI471-2020 /471-1606 FAX471-2021
LAGARÁSS-PÓSTHÓLF96- 700EGILSSTAÐIR
CASIO Baby G-Shock
í tnörgum litum
/>
G-SHOCK