Austri


Austri - 04.12.1997, Síða 4

Austri - 04.12.1997, Síða 4
4 AUSTRI Egilsstöðum, 4. desember 1997. Loðnuvinnslan Fáskrúðsfírði 100.000 tonn komin á land Afkoman batnar enn Frá áramótum til 28. nóvember sl. hafði loðnuvinnslan hf. á Fáskrúðsfirði tekið á móti réttum 100 þús. tonnum af sfld og loðnu til vinnslu. Móttekin loðna var þá 65.500 tonn, loðna frá flokkunarstöð var 7.500 tonn og síld 27.000 tonn. Þá hafði verið framleitt 7.700 tonn af lýsi og 17.000 tonn af mjöli. Afkoma verksmiðjunnar, sem aðeins hefur starfað í tæp tvö ár, var góð. Hagnaður af rekstrinum fyrstu 9 mánuðina á þessu ári var tæpar 77 millj- ónir króna en var allt árið 1996 36.5 millj. króna. Eigið fé var nú 612.4 millj.kr (50.15%) en var 31. desember sl. 485.1 millj.kr( 44.5%). Jan.-jún Rekstrarreikningur M»«ónir 1997 1996 Rekstrartekjur ! 1.050,8 | 810,2 Rekstrargjöld 944,9 750,3 Hreinn Fjármagnskostnaður | 30,8 | 25,5 Hagnaður af reglulegri starfsemi 75.1 34,4 Aðrar tekjur og gjöld 1,5 ; 2,1 Hagnaður tímabilsins 76,6 36,5 Efnahagsreikningur 30/6 ‘97 30/6 ‘96 H Eignir l|| Veltufjármunir 195,8 60,6 Fastafjármunir ,1.025,5 1.028,4 Eignir samtals 1.221,3 1.089,0 JSkuldirogefgiðfé ; lilii Skammtímaskuldir 1 U7,5 125,4 Langtímaskuldir 491,3 478,6 Eigið fé B 612,5 485,0 Skuldir og eigið fé samtals 1.221,3 1.089 Kennitölur 1997 1996 Eignafjárhlutfall 50,15% 44,55% Veltufjárhlutfall 1 1,67 0,49 Veltufé frá rekstri 178,1 122,0 / Utsala, útsala, útsala Nú stendur yfir mánuður verslunar- og kaupgleði og eru allir auðvitað á þeim bux- unum að reyna gera nú sem best kaup. Gamansagan sem hér fer á eftir er eftir Björn Jónsson frá Hrærekslæk. Hún birtist upphaflega í 1. tölublaði Samherja, starfsmanna- blaðs KHB, sem kom út í byrjun árs 1963. Björn hafði þá nýlega hafið störf sem verslun- arstjóri í járnvörudeild KHB á Reyðarfirði þar sem hann starfaði um þriggja áratuga skeið. Björn lést árið 1992 á 63. aldursári. Eftir hann liggur töluvert af kveðskap og gam- ansögum. En bregðum okkur nú á útsölu með Birni Jónssyni í byrjun 6. áratugsins. Það sem ég ætla að segja ykkur núna er algjört leyndarmál, svo það er aldeilis gagn að þið segið engum frá því. í heilan dag núna í síðasta mánuði hafði ég séð allar bestu frúr bæjarins hlaupa við fót framhjá glugganum á skranvörudeildinni minni og rogast svo til baka með stóra pakka í fanginu. Ég fór að brjóta heilann um hvað stæði eiginlega til og hvað gengi á. Þær eru nefnilega vanar blessaðar að líta inn, þó erindið sé nú ekki alltaf mikið, skiljið þið (uss, en um þetta verðið þið að steinþegja). Og alltaf gekk Björn Jónssson Verðkönnun á tónlistar- námi barna og unglinga Neytendasamtökin, ASÍ og BSRB gengust á dögunum fyrir verðkönn- un á hljóðfæranámi fyrir börn og unglinga hjá skólum sem eru reknir af sveitarfélögum eða styrktir af þeim. Þar kom í ljós að verðmunur er mikill milli sveitarfélaga og dýr- ast er að nema tónlist í Reykjavík. Það skal tekið fram að niðurstöð- ur könnunarinnar sýna einungis verðmun, en enginn mælikvarði er lagður á gæði menntunarinnar. í könnuninni er spurt um verð í forskóla, hljóðfæranámi með tón- fræðigreinum og hver sé kostnaður við að mennta tvö eða þrjú böm. Hér fyrir neðan sjást niðurstöður könnunarinnar á Austurlandi: Forskóli hljóðfæranám með tón- fræðigreinum 1 barn í forskóla og 1 í hljóðfæranámi 1 barn í forskóla og 2 í hljóðfæranámi Hljóðfæra leiga Tónlistarsk. á Egilsstöðum Grunnskóli 24.000 24.000 40.000 4.000 Tónlistarsk. Seyðisfjarðar 9.000 18.000 23.850 32.850 1.000 Tónlistarsk. Eski- og Reyðarfj. 11.600 18.000 29.000 41.300 3.000 Tónlistarsk. Neskaupstaðar 11.000 18.000 23.500 32.500 ókeypis Tónsk. Austur-Skaftafellssýslu Gmnnskóli 20.000 20.000 34.000 ókeypis T ónlistarskóli Austur-Skaftafells- sýslu er ódýrastur á landinu er kemur að því að setja eitt barn í forskóla og eitt í hljóðfæranám, en þar er forskóli ókeypis og kostnaður því 20.000 alls. Hæsta gjald á landinu, til samanburðar, er í Tónskóla Sigursveins, í Reykjavík, 66.240. Það er ódýrast á landsvísu að hafa eitt bam í forskóla og tvö í hljóðfæranámi í Neskaupstað, 32.500, en þar er Tónskóli Sigursveins aftur hæstur á lands- vísu, þar kostar sama nám 109.440. þetta eins, sami straumurinn fyrir gluggann, og ég satt að segja orðinn talsvert forvitinn. En svo skálmar ein að dyrunum og vindur sér inn fyrir. Ég reyni að setja upp mitt blíðasta bros, en hvernig það tókst veit ég ekki því ég var orðinn talsvert þungt hugsi, og ætlaði að spyrja frúna hvað ég gæti gjört fyrir hana. En áður en ég kom upp nokkru hljóði, hálfkallaði hún: „Bjössi, hvar er útsalan?" „U-U-U-Utsalan,“ stamaði ég og nú rann loksins upp ljóstýra í mínum formyrkvaða haus. „Hún hún hún hlýtur að vera á sau- sau-saumastofunni.“ Og nú skyldi ég allt, auðvitað hlaut að vera útsala, þetta hefði ég getað sagt mér sjálfur. Punktur, allt fyrirgefið. Og frúin hraðaði sér á útsöluna. Þegar hún var farin og ég sestur niður aftur, fór ég að brjóta heilann um hvað það væri sem gæti dregið þær af svona ómótstæðilegum krafti á þessar útsölur. Ég hafði aldrei komið á útsölu, þangað koma karlmenn ekki, við kaupum ekki eldgamalt og óhreint drasl á uppsprengdu verði, ekki aldeilis, nei. En það væri nú annars ansi fróðlegt að vita hvað þessar útsölur eru, hugsaði ég, en fjandakornið, eiginlega skammaðist ég mín fyrir að láta nokkurn sjá að ég færi á útsölu, en ég yrði að reyna að laumast og kíkja og ef einhver sæi mig þá ætlaði ég að spyrja eftir einhverjum sem ég vissi að væri ekki á útsölunni. Og ég fór og kíkti, og sjá, það var nú þarna ýmislegt sem hægt var að nota. Og áður en ég vissi af var ég farinn að gramsa og róta í vörunum. Nei þarna sá ég ökklasíðar nærbuxur á 25 krónur, þær voru að vísu ansi stórar No 48 og ég nota No 36, en 25 kr á viðreisnaröld. Auðvitað keypti ég buxurnar, já og gallabuxur, maður á 110 krónur, með löngum axlaböndum og stóru brjóstaspeldi. Kjarakaup, en þær voru No 46, en ég nota No 50, svo ég kemst aldrei í þær, en þær kostuðu heldur ekki nema 110 krónur. Nærskyrtu keypti ég einnig á 20 krónur, 13 pör sokka á 15 kr. parið. Hvoru tveggja vel við vöxt en þetta kostaði ekkert, já og skóna maður, þessa fínu lakkskó á 216 krónur, hvar færðu skó á 216 krónur núna? Þeir voru að vísu reimalausir, og hællinn dottinn undan öðrum þeirra, og svo voru þeir 4 númerum of stórir, en hugsaðu þér, skó á 216 krónur færðu hvergi annars staðar. Og skyrtan, þessi fína skyrta á 85 krónur. Hún var að vísu flibbalaus og stór skítablettur á bringunni en nokkum veginn mátulega stór, kannski ívið þröng í hálsinn, en þetta er ekkert verð. Já ég keypti margt, jafnvel brjóstahöld sem ég veit ekkert hvað ég á að gera við, en þetta var allt svo ódýrt. Já seinast rakst ég á lopapeysu á 200 krónur, hlægilegt verð, lopapeysa á 200 krónur, alveg mátulega stór, að vísu var stórt gat á hægra brjóstinu og peysan að öðm leyti lítilsháttar mölétin en verðið var heldur ekkert. Og þarna sá ég þessi fínu föt aldeilis sallafín, maður, næstum því tandurhrein og svo ansi falleg. „En heyrðu góði, þessi föt eru ekki á útsölunni,“ sagði konan sem afgreiddi. „En þetta eru þó ágætis föt og kosta ekki nema 2840 kr.“ og auðvitað varð ég að kaupa fötin þó þau pössuðu ekki alveg. Og nú ætlaði ég að borga og fara, já borga segi ég, eiginlega kostaði þetta ekkert nema fötin. Þá segir konan: „Nú áttu bara eftir að fá þér hatt.“ „Já hatt,“ segi ég. „Já, auðvitað verð ég að fá mér hatt.“ Og hattinn keypti ég, hann fer að vísu ekki sem best við fötin, ljósbrúnn en þau blá, en skítt með það hann kostaði bara 480 krónur, en var svo lítill, að hann tollir ekki á hausnum á mér nema ég sé inni, og sitji helst alveg grafkyrr, en samskonar hatt færðu ekki í búð fyrir minna en 700 krónur. Og nú dró ég upp veskið og borgaði „7683 krónur, takk,“ sagði konan og brosti blíðlega. Ég renndi augunum að síðustu yfir útsöluna, og hvað sé ég, en ekki þama upp í hillu gamla draslið úr skranvörudeildinni minni. Gamla draslið sem ég var svo montinn af að ég hefði selt fyrir næst síðustu helgi, því ég sá það ekki í hillunum á mánudaginn þegar ég kom í búðina. Og ægilegri hugsun skaut upp í huga mér. - Þetta sem ég var að kaupa skyldi þó aldrei vera óþverra dótið úr deildinni við hliðina á minni deild, deildinni þar sem hann Marinó og stelpurnar ráða ríkjum. - Ja hver fjárinn og allt í einu mundi ég eftir lopapeysunni með stóra gatinu. Já vinir mínir þið skuluð aldrei fara á útsölu. Það geri ég aldrei framar. Já og þið munið það að ég sagði ykkur þetta í trúnaði en ef þið skilduð nú kjafta frá þá skuluð þið minnast þess að ég sagði ykkur ekki að ég heiti,- Bjöm Jónsson

x

Austri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/792

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.