Fylkir - des. 2019, Blaðsíða 23
FYLKIR - jólin 2019
°
°
Hlíðarveg 4 sem er næst stærsta sjóvarma-
dælustöð í heiminum. Í Drammen í Noregi
er 14MW sjóvarmadælustöð.
Fyrir rúmum hundrað árum var hér í Eyjum
einn mesti frumkvöðull sem Ísland hefur
átt, en það var Eyjapeyinn Gísli J Johnsen
(10.3.1881 – 6.9.1965). Hann tók eftir því
að Danir voru farnir að vélfrysta fisk. Hann
dreif sig til Danmerkur og keypti frysti-
pressur og stofnaði fyrsta frystihús landsins
í Vestmannaeyjum. Gísli keypti pressur frá
framleiðandanum Sabroe. Nú rúmlega 100
árum seinna erum við Eyjamenn fyrstir til
að byggja sjóvarmadælustöð á Íslandi, og
viti menn, það eru einnig Sabroe pressur!
Hvernig virkar varmadælan?
Vinnslumiðillinn ammóníak fer í gegnum
sjóvarmaskiptin. Í sjóvarmaskiptinum fer
sjór um aðra hlið hans og ammóníak um
hina. Vegna lágs suðumarks ammóníaks
sýður ammóníakið í varmaskiptinum og
breytist í ammóníaksgufu og sjórinn kælist.
Ammóníaksgufan fer þaðan inn í Sabroe
skrúfupressu sem þjappar gasinu saman
upp í rúm 30 bar og þá er hitinn á gasinu
orðinn um 115°C. Ammóníaksgasið heita
fer þaðan í varmaskipta hitaveitunnar og
hitar upp vatn hitaveitunnar í 75°-77°C.
Eftir það er ammóníakið orðið kaldur vökvi
og fer síðan aftur í sjóvarmaskiptinn og
hringrásin hefst aftur.
Sjóvarmadælustöðin við Hlíðarveg
Haustið 2015 var farið í útboð á 8-12MW
sjóvarmadælum og bárust 12 tilboð. Árið
2016 ákvað stjórn HS Veitna hf. að fara
út í þessa framkvæmd og fjárfestinga-
samningur var gerður við ríkisvaldið ásamt
samningum um orkukaup við Landsvirkjun
og HS Orku hf. Samið var um kaup á sjó-
varmadælum frá danska framleiðandanum
Sabroe með 10,4MW varmaafli samkvæmt
útboði 2015.
Engar lóðir voru á lausu næst sjó á hafnar-
svæðinu, sem hefði verið fyrsti kostur. Vest-
mannaeyjabær átti lausa lóð að Hlíðarvegi
4 sem HS Veitum hf. var úthlutað. Byrjað
var að byggja sjóvarmadælustöðina vorið
2017. Aðalverktaki byggingar var Steini og
Olli ehf.
Sumarið 2018 voru vélarnar settar inn í
bygginguna og í október það ár voru vél-
arnar ræstar, og upphitun á hitaveituvatn-
inu hófst. Reksturinn þetta fyrsta ár hefur
gengið vel. Að sjálfsögðu hafa komið upp
byrjunarörðugleikar, en þau verkefni hafa
verið leyst.
Þessi framkvæmd, sem er töluvert stór
á mælikvarða okkar Eyjamanna, var að
stórum hluta unnin af fyrirtækjum hér í
Eyjum.
Þann 29. maí fór fram vígsla á sjóvarma-
dælustöðinni, þar sem Þórdís Kolbrún
Reykfjörð Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar-
og nýsköpunarráðherra Íslands, og Ívar Atl-
ason tæknifræðingur HS Veitna hf. klipptu
á borða og opnuðu stöðina formlega. Eftir
skoðunarferð um stöðina var haldið í Akó-
geshúsið þar sem ávörp og kynningar fóru
fram.
Lokaorð
Sjóvarmadælustöðin sér um að hita upp
mestan hluta bæjarins. Til þess að sjóv-
armadælustöðin geti hitað upp allan bæ-
inn allan ársins hring, þarf að bæta fimmtu
vélinni við. Við smíði hússins var gert ráð
fyrir henni. Vonandi mun þessi framkvæmd
verða hagkvæm fyrir íbúa Vestmannaeyja
um ókomna framtíð.
23
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Þórdís Kolbrún Reykfjörð gylfadóttir, Iðnaðarráðherra og greinarhöfundur klippa á
borðann við vígslu stöðvarinnar
Ívar Atlason með forseta á báðar hendur. Forseti Þýskalands Frank-Walter Stein-
meier og eiginkona hans Elke Büdenbender ásamt forseta Íslands guðna Th. Jó-
hannessyni og Elizu Reid eiginkonu hans heimsóttu varmadælustöðina 13. júní sl.
Foreinangruð hitaveiturör frá Set voru lögð frá kyndistöðinni við Kirkjuveg að
Sjóvarmadælustöðinni að Hlíðarvegi 4.