Fréttablaðið - 08.10.2020, Síða 8

Fréttablaðið - 08.10.2020, Síða 8
NÝTT ab mjólk Nú bætist við í flórunabanana NORÐURLAND „Við teljum ekki ásættanlegt að setja engan tíma­ ramma um hvenær ráðist verður í úrbætur,“ segir Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar, um bréf Vegagerðarinnar varðandi jarð­ göng sveitarfélagsins. „Hann þarf ekki að vera upp á dag en að ein­ hver viðmið séu sett.“ Þrenn jarðgöng eru í Fjalla­ byggð, Héðinsfjarðargöng, Múla­ göng og Strákagöng. Þau tvenn síðarnefndu, sem voru grafin árin 1990 og 1967, uppfylla ekki nútíma­ kröfur um brunavarnir og þykja barn síns tíma. Ámundi Gunnarsson, slökkvi­ liðsstjóri Fjallabyggðar, benti á í sumar að Múlagöng og Strákagöng gætu brunnið endanna á milli því að klæðningin væri ekki eldvarin. Þó að áratugir hafi liðið án elds­ voða væri ekki hægt að treysta á guð og lukkuna í þeim efnum. Þar að auki vantaði lýsingu í göngin og að koma upp útvarpssendingum til þess að geta varað fólk við inni í göngunum. Í máli Vegagerðarinnar í sumar kom fram að framkvæmdirnar væru ekki á áætlunum og að nýir staðlar væru ekki afturvirkir fyrir eldri mannvirki. Í lok septem­ ber sendi Vegagerðin Fjallabyggð hins vegar bréf með tillögum um úrbætur. „Það eru allir orðnir sammála um að ástandið er ekki eins og best verður á kosið,“ segir Elías. „Eins og ég hef þekkingu til líst mér ágætlega á tillögurnar sem koma fram í bréfinu. Við í bæjarráði erum ánægð með að Vegagerðin hafi játað að hægt sé að gera ýmis­ legt betur og að samtalið sé farið í gang.“ Hvað klæðningu í Múlagöngum varðar eru nefndar tvær leiðir. Annaðhvort að skipta um klæðn­ ingu sem gæti kostað um einn og hálfan milljarð króna eða setja upp dúka í áföngum. Í Strákagöngum er hins vegar aðeins dúkalausnin fær. En skoða þurfi þetta út frá framtíð­ aráformum um göngin og nýtingu þeirra. Þá segir í bréfinu að vilji sé til að setja upp rýmingarljós í Héðins­ fjarðargöng og að kostnaðurinn sé metinn á 825 milljónir króna. Þau hafi þegar verið sett upp í Múla­ göngum en Strákagöng séu ekki á dagskrá. Kostnaður við útvarps­ sendingar í Héðinsfjarðargöngum og Múlagöngum er samanlagt um 50 milljónir. Viljayfirlýsingar og tillögur eru þó ekki nóg að mati bæjarstjórans. „Ef tímasetningar eru ekki settar fram þá er ekki verið að segja neitt til um það hvenær þetta gerist.“ kristinnhaukur@frettabladid.is Óánægð með skort á tímaáætlunum Bæjarstjórn Fjallabyggðar er óánægð með skort á tímaramma þeirra verkefna sem þarf að grípa til vegna eldhættu í jarðgöngum sveitarfélagsins. Vegagerðin sendi bænum bréf þar sem ýmsar tillögur um úrbætur voru viðraðar en göngin uppfylla ekki kröfur. Strákagöng voru grafin árið 1967 og uppfylla ekki nútíma öryggisstaðla. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Við í bæjarráði erum ánægð með að Vegagerðin hafi játað að hægt sé að gera ýmislegt betur og að samtalið sé farið í gang. Elías Pétursson, bæjarstjóri Fjallabyggðar GRIKKLAND Hægripopúlistaflokk­ urinn Gullin dögun hefur verið úrskurðaður glæpasamtök af grísk­ um dómstól og leiðtogar f lokksins fundnir sekir um aðild að voðaverk­ um. Réttarhöldin hafa staðið yfir í fimm ár og niðurstöðunnar hefur verið beðið með eftirvæntingu. Fimmtán þúsund andstæðingar f lokksins voru samankomnir fyrir utan dómshúsið í Aþenu í gær þegar úrskurðurinn var tilkynntur. Lög­ gæsla var aukin víða um Grikkland af ótta við reiði f lokksmanna. Tæplega 70 meðlimir f lokksins, þar á meðal fyrrverandi þingmenn, voru fundnir sekir um aðild að morðum, of beldisverkum, vopna­ burði og að reka skipulögð glæpa­ samtök. Einhverjir þeirra gætu átt yfir höfði sér 15 ára fangelsisdóma. Gullin dögun var stofnuð árið 1980 en upp úr aldamótum fóru vinsældir f lokksins að rísa og eftir evrukrísuna 2010 varð hann að stóru afli í grískum stjórnmálum, með þingmenn bæði á þjóðþinginu og í Evrópu. Flokkurinn kastaði þó aldrei harðlínustefnu sinni og of beldismenningu. Hefur hann því verið kallaður bæði fasistaflokkur og nýnasistaflokkur. Meðal þeirra sem hafa orðið fyrir árásum og of beldi af hálfu með­ lima f lokksins eru innf lytjendur, samkynhneigðir, vinstrimenn og leiðtogar verkalýðshreyfinga. Árið 2013 myrti Giorgos Roupakias, háttsettur meðlimur samtakanna, rapparann Pavlos Fyssas sem var vinstrisinnaður aktívisti. – khg Leiðtogar flokksins sekir Magda, móðir hins myrta rappara Pavlos Fissas, fagnaði dóminum. SVÍÞJÓÐ Vísindamennirnir Emm­ anuelle Charpantier og Jennifer Doudna hlutu í gær Nóbels­ verðlaun í efnafræði fyrir rann­ sóknir sínar á sviði erfðamengja­ fræði. Þær urðu heimsfrægar þegar þær fundu upp á CRIPSR/Cas9­ tækni sem er aðferð til að breyta erfðamengi lífvera. Rannsóknir þeirra hafa umbylt líffræði og hafa vaknað upp margar siðferðislegar spurningar um notk­ un á CRISPR­tækni, þá aðallega um muninn á því að breyta genum til þess að uppræta arfgenga sjúk­ dóma eða til að hafa áhrif á útlit. Hin franska Charpentier og hin bandaríska Doudna eru sjötta og sjöunda konan til að vinna Nóbels­ verðlaun í efnafræði og er þetta í fyrsta sinn sem kvenkyns tvíeyki vinnur þessi verðlaun. Marie Curie var fyrsta konan til að hljóta verðlaun í þessum flokki en hún hafði áður unnið Nóbels­ verðlaun í eðlisfræði, einnig fyrst kvenna. – ilk Fyrsta kventvíeykið til að fá Nóbelsverðlaunin Emmanuelle Charpentier og Jennifer Doudna. MYND/EPA 8 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.