Fréttablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.10.2020, Blaðsíða 24
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, ári fara um það bil 1.300 manns í gegnum endurhæfingarmeðferð á Reykjalundi, f lestir í fjórar til sex vikur í senn. Auk þess kemur fjöldi fólks í viðtal á göngudeild á hverju ári,“ greinir Pétur frá og bætir við að endurhæfing skipti sköpum þegar kemur að líkamlegri og and- legri heilsu. Hvað er endurhæfing? „Eftir alvarleg veikindi, slys, áföll eða aðgerð er mikilvægt að fá endurhæfingu til að hjálpa fólki að ná aftur fótfestu í hversdagslífinu. Læknisfræðileg endurhæfing er sérhæfð meðferð sem byggir á þeirri hugmyndafræði að taka heildrænt á afleiðingum sjúkdóma og slysa. Endurhæfingin byggir á samvinnu margra fag aðila, sjúklings og hans nánustu. Beitt er sálfræðilegum, líkamlegum og félagslegum aðferðum, með það að markmiði að uppræta, minnka eða bæta fyrir skerðingu í færni og virkni sem sjúkdómur eða slys hefur valdið,“ útskýrir Pétur. „Endurhæfing er teymisvinna sem er einstaklingsmiðuð fyrir hvern sjúkling. Tekið er mið af getu hans og færni sem og persónu- legum þáttum eins og menntun, fjölskyldu, búsetu, kyni, vinnu og fleiru, allt eftir því hvað er verið að vinna með. Mikil áhersla er lögð á fræðslu og þátttöku sjúklings. Lögð er áhersla á grunnþætti heilbrigðs lífs, svo sem heilsusam- legt mataræði, reykleysi, hæfi- lega hreyfingu og góðan svefn. Markmið endurhæfingarinnar er að bæta líðan og lífsgæði sjúklings og getu hans til að nýta sér ýmis bjargráð sem honum eru kennd.“ Þverfagleg samvinna fag- fólks á Reykjalundi „Í upphafi voru aðeins læknar og hjúkrunarfræðingar starfandi á Reykjalundi. En fagfólki hefur fjölgað jafnt og þétt í gegnum árin. Meðal helstu fagstétta sem koma að beinni meðferð sjúklinga á Reykjalundi eru félagsráðgjafar, heilsuþjálfarar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, iðjuþjálfar, læknar, næringarfræðingar, sálfræðingar, sjúkraþjálfarar og talmeinafræðingar,“ upplýsir Pétur og segir að saman geti hópurinn myndað frábært meðferðarteymi. Meðferðarteymin eru hjartað í starfseminni „Hjartað í starfsemi Reykjalundar er teymisvinna fjölbreytts hóps sérhæfðs heilbrigðisstarfsfólks sem myndar meðferðarteymi. Í meðferðarteymunum er sett upp einstaklingsmiðað endur- hæfingarprógramm fyrir hvern og einn sjúkling, sem miðar að því að bæta líkamlega getu og and- lega og félagslega líðan. Misjafnt er hvernig endurhæfingu hver og einn þarf á að halda og því skiptir miklu máli að heilbrigðisstarfs- fólk með ólíka sérfræðiþekkingu vinni saman að bættri líðan. Markmið teymisvinnu er að veita þverfaglega, heildræna meðferð byggða á gagnreyndri þekkingu. Áhersla er lögð á samtalsmeðferð, einstaklings- og hópmeðferð, fjöl- breytta hreyfingu, námskeið og fræðslu. Afar mikilvægt er að sjúklingur- inn sé virkur í sinni endurhæfingu til að hún skili sér sem best.“ Aðstaðan er fyrsta flokks „Á Reykjalundi er fyrsta f lokks aðstaða til endurhæfingar á öllum sviðum. Markmiðið er að hafa heimilislegt, vinalegt og þægilegt umhverfi svo öllum líði sem best. Á Reykjalundi er æfingatækjasalur, fullbúinn íþróttasalur, meðferðarstofur, vinnustofur, smíðaverkstæði, rými fyrir alls kyns handmennt, æfingaeldhús, fræðsluherbergi, slökunarsalur, hvíldarherbergi, setustofur, starfsendurhæfingar- vinnustaður og tvær sund- laugar, svo eitthvað sé nefnt. Á Reykjalundi eru tiltæk hvers kyns hjálpartæki til að aðstoða fólk með mismunandi líkam- lega færni við daglega iðju,“ segir Pétur og bætir við. „Þrátt fyrir að f lestir telji heil- brigðisþjónustu vera einn af hornsteinum samfélagsins, er ljóst að fjármunir í heilbrigðismál eru og munu verða takmarkaðir. Vegna þess er mjög mikilvægt að nota þessa fjármuni með eins markvissum hætti og mögu- legt er, með það að leiðarljósi að hámarka þjónustu og gæði. Mín skoðun er sú að endurhæfing og forvarnir séu vannýttur þáttur í því sambandi og við getum gert töluvert betur. Með fjölgun þjóðarinnar og vaxandi meðal- aldri er nauðsynlegt að skoða og tileinka sér aukna þjónustu og nýja möguleika. Það eru mörg tækifæri og möguleikar í stöð- unni í framtíðarsýn Reykjalundar og ég er spenntur að fá að leggjast á árar með starfsfólki að gera þetta að veruleika með hagsmuni samfélagsins að leiðarljósi.“ Reykjalundur er stærsta endur-hæfingarstöð landsins og þar er unnið fjölþætt starf með mikilli sérhæfingu á mörgum sviðum. Þar er meðal annars verið að þróa meðferð fyrir fólk sem glímir við eftirköst COVID-19. „Hjá Reykjalundi starfa átta fag- teymi, hvert með sína sérhæfingu, en rauði þráðurinn í starfsemi okkar eru stóru heilsuvandamálin í samfélaginu, stoðkerfisvandamál, verkir, ofþyngd og geðheilsa,“ segir Stefán Yngvason, framkvæmda- stjóri lækninga á Reykjalundi. „Birtingarmynd sjúkdóma er önnur í dag en fyrir nokkrum áratugum. Við lifum lengur og það þýðir að þegar við eldumst lifum við með marga sjúkdóma í stað þess að deyja fyrr á ævinni. Þess vegna þurfum við þjónustu sem tekur á mörgum þáttum samtímis.“ Verri kvillar en venjulega „Eftir veirusýkingar getur fólk fengið ýmsa kvilla en svo virðist sem fólk sem fær slíka kvilla eftir COVID-19 fái langvinnari og fjöl- breyttari einkenni en eftir aðra veirusjúkdóma,“ segir Stefán. „Fólk finnur fyrir síþreytu, verkjum, svefntruflunum, heilsukvíða og ýmsu öðru. Þetta veldur óvinnu- færni hjá mörgum og það er ákall um að tekist sé á við þetta. Við bjóðum upp á meðferð og vorum ánægð með yfirlýsingu heilbrigðis- ráðherra um að það standi til að setja 200 milljónir króna í þessi endurhæfingarverkefni. Meðferðin er ólík eftir einkenn- um og það skiptir máli að fara ekki of geyst, en ef það líða vikur eða mánuðir með sömu vandamálin þarf að grípa inn í,“ segir Stefán. „Það getur líka verið mikilvægt að fá viðurkenningu á að þetta sé vandamál sem þarf hjálp með. Nú eru sjö í meðferð hjá okkur og 40 á biðlista. En rétt eins og með lyfjameðferðina og gjörgæslumeð- ferð fyrir COVID-sjúklinga, er fólk enn að prófa sig áfram og finna leiðir í endurhæfingunni,“ útskýrir Stefán. „Við gerum mælingar til að fylgjast með því hvort framfarir hafi orðið og reynum að tengja það við meðferðarúrræði. Þetta er ferli sem tekur langan tíma.“ COVID endurhæfing er krefjandi og spennandi verkefni Bryndís er formaður Hollvinasamtaka Reykjalundar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Hollvinasamtök Reykjalundar eru samtök fólks sem þykir vænt um Reykjalund og er tilbúið til að leggja sitt af mörkum til að efla starfsemina og styrkja frekari uppbyggingu hennar. Margir eiga þessari stofnun líf sitt að þakka, eða eiga vini og ættingja sem hafa fengið bót sinna meina eftir dvöl á Reykjalundi, “ segir Bryndís Haraldsdóttir alþingis- maður og formaður samtakanna. Um fjögur hundruð manns eru í Hollvinasamtökunum. Engin skuldbinding fylgir því að vera félagi, önnur en sú að borga hóflegt árgjald sem nýtt er í þágu starf- semi Reykjalundar. Aðrir sem vilja leggja Reykjalundi lið geta haft samband við samtökin, sem sjá þá um að koma fjármunum rétta leið. „Samtökunum hafa borist miklar og góðar gjafir frá einstaklingum, félagasamtökum og fyrirtækjum á undanförnum árum,“ segir Bryndís. Hollvinasamtökin hafa staðið fyrir kaupum á ýmsum tækjum sem gagnast starfseminni vel en þau eru keypt í samráði við for- stjóra, lækna og aðra sem til þekkja. „Á síðustu árum höfum við gefið hjartaómtæki og öndunarmæli, sem eru til þess gerð að auka enn frekar þjónustu við skjólstæðinga Reykjalundar. Hollvinasamtökin voru stofnuð í lok árs 2013 og hafa frá þeim tíma gefið Reykjalundi gjafir fyrir rúmlega 60 milljónir,“ segir Bryndís. Hollvinasamtökin eru mikilvæg fyrir Reykjalund. „Fjármunir hins opinbera eru oft takmarkaðir og þá skipta svona samtök miklu máli. Það er ánægjulegt hversu margir vilja leggja Reykjalundi lið og það er greinilegt að fólki er annt um þessa stofnun.“ Hægt er að skrá sig sem hollvin á heimasíðu Reykjalundar reykja- lundur.is Hollvinasamtök Reykjalundar Með fjölgun þjóðarinnar og vaxandi meðalaldri er nauðsynlegt að skoða og tileinka sér aukna þjónustu og nýja möguleika. Stefán Yngvason, framkvæmdastjóri lækninga á Reykjalundi, segir að svo virðist sem fólk sem fær kvilla eftir COVID-19 fái langvinnari og fjölbreytt- ari einkenni en eftir aðra veirusjúkdóma. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eftir veirusýkingar getur fólk fengið ýmsa kvilla en svo virðist sem fólk sem fær slíka kvilla eftir COVID- 19 fái langvinnari og fjölbreyttari einkenni. Framhald af forsíðu ➛ Pétur Magnússon er forstjóri Reykjalundar. Hann segir að það séu mörg tækifæri og möguleikar í stöðunni í fram- tíðarsýn Reykjalundar og hann segist vera spenntur að fá að takast á við þau. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN 2 8 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RREYKJALUNDUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.